Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 53
Sjómannablaðið Víkingur – 53
Þann 17. júní í fyrra hafði maður
að nafni Björn Herrmann frá
Þýskalandi samband við mig og
sagðist vera að vinna að því ásamt hópi
björgunarsveitarmanna frá þýska björg-
unarbátafélaginu DGzRS og annara
áhugamanna að kaupa björgunar-
bátinn Otto Schülke til Þýskalands frá
Noregi.
Góð vinátta
Forsaga málsins er sú, að þessi bátur
ásamt öðrum sömu gerðar var keyptur
til Íslands árið 1997 og sigldi ég honum
heim í maí ásamt tveimur björgunar-
sveitarmönnum frá Ísafirði og þýskum
vélstjóra að nafni Hermann Janssen sem
hafði undangengin ár verið umsjónar-
maður bátsins og vélstjóri. Á hinum
bátnum var Arngrímur Jónsson frá Siglu-
firði skipstjóri.
Otto Schülke var staðsettur í Nordern-
ey sem er stærst Austurfrísnesku eyjanna
um 26km² að stærð. Hún er þriðja stóra
eyjan frá vestri í eyjaklasanum, á milli
eyjanna Juist og Baltrum og búa þar um
6 þúsund manns. Allar tilheyra eyjarn-
ar Neðra-Saxlandi í Þýskalandi. Þar hefur
til langs tíma verið staðsettur björgunar-
Helstu upplýsingar um Otto Schülke
Byggður í Fr.Schweers Shipyard in Bardenfleth (River
Weser) 1968/1969. Skírður 11. júní 1969 í Bremen.
Hermine Lubke, forsetafrú Vestur Þýskalands (gift Hein-
rich Lubke forseta) gaf bátnum nafn. Báturinn var stað-
settur allan tímann frá 1969 – 1997 í Norderney þar til
hann var seldur til Íslands.
Áhöfn 3 menn
Helstu mál Otto Schülke:
Lengd: 18,90 m
Breidd: 4,30 m
Mesta djúprista: 1,30 m
Eiginþungi: 35 t
Ganghraði: 16-18 kn.
Stærð: Aðalvél Mercedes-Benz MB 838
Ea 610 KW/830 hp (fyrri vélin MTU 8V 331
TC 710 kW/965 hp
(sett í bátinn 1977)
Dótturbáturinn
Johann-Fidi:
Lengd: 5,50 m
Breidd:2,10 m
Eiginþyngd: 1,5
Ganghraði: 8-10 kn.
Vél Mercedes-Benz
OM
615 40 kW/54 hp
Sigling þýsks björgunarbáts
heim ti l Íslands sumarið 1997
Páll Ægir Pétursson skipstjóri
Otto Schülke siglir inn á höfninni í Þórs-
höfn í Færeyjum, nýkominn frá
Skotlandi. Ljósmyndina tók Hannes Sig-
urður Pétursson. Hannes Sigurður var að
læra listflug í Skotlandi á þessum tíma
en kom við í Þýskalandi og fékk far með
okkur heim til Íslands. Hann var í áhöfn
G. Kuchenbecker. Hannes er í dag flug-
stjóri hjá flugfélaginu Atlanta en var um
árabil flugkennari hjá Flugskóla Helga
Jónssonar.