Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 54
54 – Sjómannablaðið Víkingur
bátur og þegar DGzRS ákvað að endur-
nýja bátaflota sinn að hluta um þetta
leyti komu nokkrir eldri björgunarbátar
í sölu og vorum við Íslendingar svo
heppnir að fá tvo af þessum bátum til
landsins. Ágætt samband hafði ríkt milli
Slysavarnafélags Íslands og DGzRS um
árabil og var Uwe Klein, þáverandi fram-
kvæmdastjóri þýska björgunarbátafélags-
ins kunnugur starfsemi SVFÍ og vel-
gjörðarmaður þess má segja. Góð vinátta
hafði tekist milli hans og Hannesar Haf-
stein fyrrverandi framkvæmdastjóra SVFÍ
sem var að vísu hættur störfum á þessum
tíma en fylgdist með á hliðarlínunni.
Nokkrum árum áður, eða 1993 hafði
Slysavarnafélagið keypt björgunarbát til
Sandgerðis sem skírður var Hannes Þ.
Hafstein og reyndist sá bátur afskaplega
vel og hentaði starfsemi björgunarsveit-
arinnar þar, hafði gott drægi og gat siglt
langar vegalengdir ef þurfti svo sem til
að sækja veika eða slasaða menn langt á
haf út. Björgunarbátarnir fengust á góðu
verði enda komnir til ára sinna en í góðu
standi og höfðu fengið gott viðhald frá
upphafi. Þeim fylgdu líka nauðsynlegir
varahlutir sem við tókum með okkur
heim.
Í brælu á Norður-Atlantshafi
Otto Schulke var af svokölluðum 19
-m-klassa, smíðaður árið 1969 Í Þýska-
landi og eins og nafnið bendir til, var
báturinn 19 m. langur, nokkuð vel útbú-
inn siglingatækjum í neðra rórhúsi en
efri stjórnpallur var opinn eins og er á
flestum björgunarbátum af þessari stærð.
Í Ottó Schülke var ein aðalvél og aukavél
í vélarúmi sem tengja mátti inn á skrúfu-
öxulinn ef aðalvélin bilaði, báturinn var
því sæmilega ganggóður um 16 hnútar
við góðar aðstæður og hörku góður sjó-
bátur.
Aftan við yfirbyggingu var lítill dótt-
urbátur sem hægt var að sjósetja aftur
af skuti bátsins og kom hann að góðum
notum hjá Þjóðverjunum við ýmsar að-
stæður við aðstoð og björgun, en einnig
til að selflytja menn eða vörur milli
skipa.
Otto Schülke var keyptur til Ísafjarðar
en hinn báturinn sem sigldi í samfloti
með okkur og fór til Siglufjarðar, systur-
skip Schülke, G. Kuchenbecker kom frá
Eystrasalti, en báturinn hafði verið stað-
settur í björgunarstöðinni á Maasholm
við fjörðinn Schlei. Hann þjónaði því
hafsvæðinu milli Danmerkur og Þýska-
lands og að Kiel í vestri.
Eftir stutta afhendingarathöfn í Brem-
en 16. maí þar sem báturinn var af-
hentur Slysavarnafélaginu formlega að
viðstöddum framkvæmdastjóra félagsins
Esther Guðmundsdóttur og forseta þess
Gunnari Tómassyni ásamt Uwe Klein
forstjóra DGzRS, lögðum við af stað og
var ferðinni heitið fyrst til eyjunnar Hel-
goland norður af ánni Weser og stoppuð-
um við þar í nokkra klukkutíma. Okkur
var boðið að skoða nýtt og glæsilegt
björgunarskip DGzRS sem var meðal
annars útbúið þyrlupalli og bráðamót-
töku.
Næst lá leiðin til Stonehaven í Skot-
landi, en það var rúmlega 30 klukku-
stunda sigling. Veður var þokkalegt á
leiðinni yfir Norðursjóinn og ekkert
markvert bar til tíðinda. Bátarnir héldu
vel ferð og sigldu samsíða og í Stone-
haven tók á móti okkur Hamish McDon-
ald eigandi björgunarskólans MRI -
Maritime Rescue Institute. Mánuði
seinna hélt hann ráðstefnu um sjóbjörg-
unarmál og tókum við Slysavarnarfélags-
menn þátt í henni ásamt fjórtán löndum;
frá björgunarsamtökum, strandgæslum,
lögreglu og ýmsum fleiri aðilum er komu
með einum eða öðrum hætti að björg-
unarmálum og eftirliti á sjó. Fulltrúi
SVFÍ flutti erindi um björgunarstörf við
erfiðar aðstæður á afskekktum stöðum
og sýnd var notkun fluglínutækja sem
vakti nokkra athygli ekki síst fyrir þá
staðreynd að þau höfðu bjargað lífi fjölda
sjómanna í tímans rás á fyrri hluta síð-
ustu aldar og allt fram að þeim tíma er
þyrlur komu til sögunnar hérlendis sem
björgunartæki.
Nöfn
Otto Schülke
Báturinn er skírður eftir Sjómanni
og skipstjóranum Otto Schülke
(1914-1967) sem var skipstjóri á
björgunarbátnum Adolph Berm-
pohl (staðsettur í Helgoland).
Hann fórst ásamt 3 öðrum áhafn-
armeðlimum 24. febrúar 1967 í
aftakaveðri við björgun áhafnar á
hollenskum fiskibáti.
Johann-Fidi
Nefndur eftir þremur skipstjórum
(afa, föður og syni) sem hétu Jo-
hann Friedrich Rass frá Nordern-
ey, en þeir höfðu yfirumsjón með
björgunarstöðinni í Norderney frá
1880 – 1987.
Helstu atburðir
1991 Áhafnarmeðlimur Cassen
Knigge frá Norderney lést um
borð í vondu veðri eftir að drátt-
arkrókur slóst í hann.
1995 Tók þátt í björgunaraðgerð
ásamt björgunarbátnum Alfried
Krupp í aftakaveðri. Tveir áhafn-
armeðlimir Alfried Krupp létust
en Otto Schülke sem var mun
minna skip tók Krupp í drátt og
kom í veg fyrir að skipið strand-
aði.
1997 Seldur til Íslands, skírður
Gunnar Friðriksson.
2000 Seldur einkafyrirtæki á Ís-
landi.
2002 Seldur til Noregs og notaður
sem þjónustubátur.
2016 Settur á land og notaður
sem húsbátur.
2019 Seldur Safninu Verein Muse-
umskreuzer Otto Schülke Nord-
erney.
2020 Fluttur til Þýskalands.
Otto Schülke á æfingu.