Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 16
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík, var á fyrstu árum Ljósanætur oft kallaður Ljósálfur
vegna ómetanlegs frumkvölastarfs hans við Ljósanótt. Í seinni tíð hefur Steini dregið sig aðeins í
hlé hvað varðar undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar en VF langaði að vita hvað hann hafi farið
og gert sumarfríinu og hvað hann ætli nú að gera á Ljósanótt í ár.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu eftir Covid án takmarkana?
„Hjá okkur Hildi eru frí oftast tekin
á öðrum tímum en yfir hásumarið.
Í gegnum tíðina hefur fjölskyldan
því notið vetrar sólarinnar í Florida
en þar eigum við afdrep með tjörn
og garði þar sem við njótum villtra
fugla og dádýra sem ganga frjáls um
svæðið. Að sjálfsögðu lokaðist þessi
paradís fyrir okkur í Covid en við
náðum þetta sumarið að fara þangað
í ömmu og afa ævintýraferð með
barnabörnin okkar þrjú snemma í
vor.“
Hvað stóð upp úr?
„Fyrir utan þakklæti fyrir að geta
loks ferðast stóð upp úr þær nýju
áherslur hvernig fríinu er varið bara
með barnabörnunum þarna fimm,
sex og sjö ára, og deginum varið í
samræmi við þeirra óskir. Þessi nær
tveggja vikna samverustund mun
ávallt skipa stóran sess í minning-
unni og mun verða endurtekin um
leið og tækifæri gefast.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Það er gaman að sjá hve Íslendingar
almennt voru tilbúnir að gera sér
glaðan dag og njóta þess að geta
átt eðlileg samskipti aftur. Veitinga-
staðurinn okkar KEF Restaurant
og Diamond Bar voru þéttsettnir í
sumar alla daga vikunnar af bæjar-
búum. Síðustu ár var það frekar
þannig að grunnurinn kæmi með
hótelgestum en í sumar voru þeir
bara hrein viðbót.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Meðalfellsvatn í Kjós stendur upp
úr hjá okkur Hildi og fjölskyldunni
allri enda fallegasti staðurinn á
landinu að okkar mati. Þessi perla er
í aðeins hálftíma fjarlægð frá höfuð-
borginni en hefur allt það besta
upp á að bjóða sem íslensk náttúra
hefur fram að færa. Á það bæði við
um sumrin og veturnar. Einstaklega
falleg fjöll, gróður og vatn sem gefur
bæði lax og silung á góðum degi. Þá
er Ólafsfjörður staður sem ég heim-
sótti með foreldrum mínum sem
barn og geri enn.“
Hvað er á dagskránni hjá „Ljósa-
Steina“ á Ljósanótt 2022?
„Eðlilega þarf ég að miða dag-
skránna aðeins út frá því sem við
sjálf erum að bjóða upp á í kringum
Hótel Keflavík, KEF Restaurant,
Diamond Lounge & Bar og í gler-
skálunum öllum. Síðustu mánuði
höfum við t.d. verið að byggja yfir
útipallinn okkar, Sunny KEF, og huga
að framkvæmdum utandyra sem og
í almennu rými með Ljósanóttina
sem lokapunkt í því ferli. Við erum
eðlilega fullbókuð alla þessa daga á
hótelinu en eigum líka von á vel yfir
þúsund gestum í mat eða drykk svo
áherslan er þar.
Þar fyrir utan langar mig að leggja
áherslu á sýningar og fara með
barnabörnin, dæturnar og tengda-
foreldra á það sem þeim hugnast í
frábærri dagskrá Ljósanætur hverju
sinni. Þetta er sannkölluð fjölskyldu-
hátíð og þess ætla ég að njóta framar
öllu öðru.“
Þegar þú lítur til baka á 20 ára sögu
Ljósanætur, hvað er svona eftir-
minnilegast í þínum huga?
„Í fyrsta lagi er ótrúlegt hve 20 ár
líða hratt en þegar lífið er gefandi og
nóg að gera flýgur tíminn. Samstaða
allra bæjarbúa frá fyrsta degi um
að gera Ljósanótt að alvöru menn-
ingar- og fjölskylduhátíð fyrir svæðið
stendur upp úr hjá mér. Eðlilega
var ég stressaður hvernig til myndi
takast og varð meðal annars að bera
fulla ábyrgð á veðrinu á Ljósanótt,
allavega fyrstu árin. Þar að auki var
stress hvernig listaverkið, Ljósin á
Berginu, myndi takast í raunveru-
leikanum því kaldur og náttúrulegur
klettaveggurinn er bæði skörðóttur
og ójafn eftir þúsund ára ágang
sjávar og mitt verk að ljúka þessari
margra alda uppbyggingu Bergsins
með fallegum ljósum. Ég er per-
sónulega sáttur með útkomuna, og
hef reyndar aldrei heyrt annað frá
fólki, og fullyrði samhliða að fallegri
skotpall fyrir flugeldasýningu með
speglun yfir sjávarflötinn er vand-
fundinn.
Það sem mér fannst skemmti-
legast fyrstu tíu Ljósanæturnar voru
þær framkvæmdir sem voru vígðar á
Ljósanótt enda framkvæmdarmaður
og vil sjá hlutina vaxa og dafna.
Ljósanóttin er ákveðin tímamót í
okkar samfélagi og fólk segir iðulega
fyrir og eftir Ljósanótt eins og um
áramót séu að ræða. Þetta gleður
mig mest af öllu.
Það sem stendur upp úr svona
persónulega í tengslum við Ljósa-
nótt er;
þegar dætur mínar fengu að
kveikja á Ljósunum á Berginu í fyrsta
skiptið og mannfjöldinn klappaði
undir veglegri flugeldasýningu.
Þegar ég sá fallega viðtalið hans
Páls Ketilssonar við pabba minn, Jón
William Magnússon, og hve vel hann
naut sín á Ljósanótt en viðtalið var
tekið á súpukvöldinu árið 2014 en ég
sá það fyrst á jarðarfaradegi pabba
sléttum tveimur mánuðum síðar.
Ég er mjög þakklátur fyrir Ljósa-
nóttina okkar, samstöðuna í bænum
og góðar minningar sem ég vona að
við eigum sem flest frá hátíðinni. Að
lokum vonumst við Hildur til að sjá
ykkur sem flest og allir að sjálfsögðu
velkomnir til okkar á KEF til að upp-
lifa alvöru Ljósanæturstemmingu -
og já ég lofa sól og fallegu veðri.“
Samstaða allra bæjar-
búa stendur upp úr
Barnabörnin, Ísabella Ósk, Óskar Örn og Alexander Helgi, heima í garðinum í Florida.Jón William heitinn Magnússon árið 2014 í Skólamatar kjötsúpu og í VF spjalli.
„Meðalfellsvatn í Kjós stendur
upp úr hjá okkur Hildi og
fjölskyldunni allri enda
fallegasti staðurinn á landinu
að okkar mati“
Miklar breytingar hafa verið á KEF resturant og Hótel Keflavík.
16 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM