Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 30
Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis er ný-
flutt í Reykjanesbæ og lumar ekki á neinni minningu frá Ljósanótt því þessi hátíð verður sú fyrsta
sem hún sækir. Guðbjörg tók frelsi eftir heimsfaraldur fagnandi og fór víða í sumar.
Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu eftir Covid án
takmarkana?
„Ég notaði sumarið mikið til útiveru í alls konar
veðrum en svo fór ég aðeins til útlanda að finna sólina.“
Hvað stóð upp úr?
„Að þurfa ekki sífellt að vera að passa sig og að vera
meðvitaður um smithættu.
Það var líka svo létt yfir öllum og allir glaðir að vera
lausir úr prísund.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
„Hvernig allt er fljótt að fara í sama farið aftur. Við
erum fljót að taka við okkur og fljótt að fenna yfir.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands?
„Strandirnar. Ég er ættuð þaðan og það er alltaf eins og
fara heim að fara þangað.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Verð líklega á kafi í vinnu þar sem samningar eru
lausir og síðan ætla ég í nám.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Mér finnst svona bæjarhátíðir algjör snilld. Þetta
hristir fólk saman og gefur svo skemmtilegan blæ á
bæjarlífið. Þetta er mín fyrsta Ljósnæturhátíð eftir að
ég flutti í bæinn.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
„Ég ætla að fara í bæinn á fimmtudagskvöldinu. Hef
heyrt að það sé mikið fjör þá. Síðan ætla ég á Alda-
mótatónleika. Ég er á namskeiði alla helgina og ætla að
reyna að komast á sem flesta atburði samhliða því.“
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
„Þetta er fyrsta hátíðin mín. Þannig að þetta er frum-
raunin.“
Allir glaðir að vera
lausir úr prísund
Birna Björg Davíðsdóttir kunni að meta rigninguna og kuldann á
Íslandi í sumar eftir að hafa upplifað hitabylgju á Ítalíu. Hún nýtti
sumarið í að hitta fjölskyldu og vini og vinna. Henni finnst Ljósa-
nótt æði en hún ætlar að fylgjast með hátíðinni í gegnum netið í
ár þar sem hún verður að vinna.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
„Ég nýtti öll tækifæri til að hitta
vini og fjölskyldu og var dugleg að
vinna.“
Hvað stóð upp úr?
„Það sem stóð upp úr í sumar var
heimsókn til Mílanó á Ítalíu með
kærastanum.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Það kom skemmtilega á óvart í
sumar hvað ég kunni að meta rign-
inguna og kuldann á Íslandi eftir að
hafa upplifað hitabylgju í Ítalíu.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Uppáhalds staðurinn minn til að
sækja heim innanlands er litli bú-
staðurinn hennar ömmu.“
Finnst Ljósanótt æði
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Í vetur ætla ég að vera í skólanum,
ég er að klára þriðja árið í háskóla
og svo bara vinna og vera dugleg að
hitta fólkið mitt.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Mér finnst Ljósanótt æði!“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á
Ljósanótt?
„Ég er því miður að vinna á Ljósa-
nótt í ár en ég hlakka til að fylgjast
með í gegnum netið.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Besta minningin mín frá Ljósanótt
er þegar við slepptum blöðrunum
fyrir framan Myllubakkaskóla og
auðvitað flugeldasýningin.“
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Samvera
er besta
forvörnin!
Ljósanótt er menningar- og fjöl-
skylduhátíð!
Foreldrar! stöndum saman, sýnum
ábyrgð okkar, ást og umhyggju í
verki og tryggjum að börnin okkar
séu ekki eftirlitslaus eftir að flug-
eldasýningu og útivistartíma
lýkur. Leggjum áherslu á að eiga
góða stund með börnum okkar á
ljósanótt og setjum velferð barna
okkar í fyrsta sæti.
Vert er að minna foreldra á úti-
vistartíma barna og unglinga.
Börn 12 ára og yngri skulu ekki
vera úti lengur en til kl. 20.00
nema í fylgd með fullorðnum og
börn á aldrinum 13-16 ára skulu
ekki vera ein á almannafæri eftir
klukkan 22:00.
Góða skemmtun á Ljósanótt.
Ásdís Ragna Einarsdóttir
lýðheilsufulltrúi
Hafþór Barði Birgisson
íþrótta- og tómstundafulltrúi
S AMVERA E R B E S T A F ORVÖRN I N !
SAMTAKA
H Ó P U R I N N
Söfnum góðum fjölskylduminningum,
höfum gaman saman á Ljósanótt.
Verum samferða heim.
30 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM