Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 42

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 42
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Íslands- meistara Njarðvíkur í körfuknattleik kvenna, hefur haft nóg fyrir stafni í sumar og ferðaðist víða með fjöl- skyldunni. Hann á margar góðar minn- ingar frá Ljósanótt og segir mikilvægt fyrir bæjarfélagið að eiga svona flotta hátíð. Hvernig varðir þú fyrsta sumar- fríinu án takmarkana? „Það er búið að vera nóg að gera í sumar, blanda af fótboltaleikjum, körfuboltaþjálfun og vinnu ásamt smá fríi inn á milli þar sem við fjöl- skyldan fórum í ferðalag til Norður- Ítalíu og svo hef ég verið að finna mig meira og meira á flugustöng- inni með pabba í Eldvatninu.“ Hvað stóð upp úr? Hvað kom skemmti- lega á óvart í sumar? „Ítalíuferðin var alveg frábær og klárlega hápunktur sumarsins. Vorum á smá flakki og heimsóttum sjö mismunandi staði en Feneyjar, Lake Garda og Cinque Terre stóðu upp úr. Einnig verð ég að minnast á skyndiferð með eiginkonunni á Þjóðhátíð en við fórum í eitt kvöld í Herjólfsdal sem er alltaf geggjuð upplifun.“ Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands? „Það eru svo margir fallegir staðir en ef ég þyrfti að velja einn þá er það Eldvatnið í Meðallandi. Það er algjör paradís, hvort sem það er í veðiferð eða bara til þess að slaka á með fjölskyldunni. Múlagljúfur er svo kannski uppáhaldsferðamanna- staðurinn, það er magnað að labba þangað.“ Hvað ætlar þú að gera í vetur? „Veturinn verður skemmtilegur, vinna í flugturninum, kenna hjá Flugakademíu Íslands og svo auð- vitað ætlum við í meistaraflokki kvenna hjá Njarðvík að verja titilinn og reyna bæta við í bikaraskápinn á kveðjuárinu í Ljónagryfjunni. Þannig það er nóg framundan ásamt því að njóta með fjölskyldunni.“ Hvernig finnst þér Ljósanótt? „Mér finnst Ljósanótt ótrúlega skemmtileg hátíð og það er virki- lega mikilvæg fyrir okkur sem bæj- arfélag að eiga svona flotta hátíð. Það er eitthvað að gera fyrir alla og hefur verið gaman að sjá hvernig hátíðin hefur þróast í gegnum árin.“ Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? „Ég ætla mér að fara á nokkra tón- leika, árlega kjötsúpan og árganga- gangan. Svo er bara skemmtilegt að taka röltið niður í bæ og finna einhverjar faldar perlur.“ Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? „Hvar á ég að byrja? Nokkur ár á gamla Ný-Ung planinu á ungl- ingsárunum voru skemmtileg , tón- leikar með Hjálmum og Valdimar eru minnistæðir en labbitúr í öll hús Reykjanesbæjar með körfunni í Njarðvík að selja Ljósanætur- geisladiskinn er eitthvað sem maður gleymir aldrei – Velkominn á Ljósanótt!“ Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Ljósanótt er ótrúlega skemmtileg hátíð og mikilvæg fyrir okkur sem bæjarfélag Fjölskyldan á Cinque Terre sem er svæði á ítölsku riveríunni. Rúnar og Natasha Anasi á Þjóðhátíð þar sem þau trúlofuðu sig fyrir fjórum árum. Rúnar hefur verið að spreyta sig á fluguveiði í sumar með góðum árangri. Harper Eyja Rúnarsdóttir pósar í Feneyjum. Það er ekki ofsögum sagt að Múlagljúfur sé magnaður staður. Ljósmyndir úr safni Rúnars Inga. 42 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.