Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 48

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 48
„Þetta er félagsskapur fyrir alla sem hafa gaman af því að ferðast um náttúru Íslands og eiga skemmtilegar stundir saman,“ segja þær Íris Sigtryggsdóttir og Karitas Sara G Haesler, talskonur Melrakka. Í dag eru Melrakkar deild innan Akstursíþróttafélags Suðurnesja en svo gæti farið að Mel- rakkar verði sjálfstætt félag þar sem starfsemi deildarinnar er mun meira í þá átt að vera ferðafélag en íþróttafélag. Í Melrökkum ferðast fólk um á fjórhjólum og Buggybílum og hópurinn, sem telur um eitt hundrað manns, er duglegur að skipuleggja ferðalög og viðburði. Nú seint í ágúst fóru á annan tug Melrakka í sex sólarhringa ferðalag frá Reykjanestá og að Fonti á Langa- nesi, horn í horn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem félagar í Mel- rökkum fara þessa leið en þetta er í fyrsta skipti sem ferðalagið er tekið á svona löngum tíma og er ekki kapp- hlaup við klukkuna. Á slóðir þar sem heimilisbíllinn kemst ekki Það sem sameinar fólk í Melrökkum er ferðamátinn, fjórhjólin og buggy- bílarnir. Það eru tæki sem komast á þær slóðir sem hinn venjulegi heim- ilisbíll fer ekki. Mikil áhersla er lögð á virðingu við náttúruna og aldrei er farið út fyrir slóða og þær stöllur, Íris og Karitas, segjast svíða að sjá þegar náttúrunni hefur verið spólað upp á fjöllum, eins og sýnt hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Ferðanefndin hjá Melrökkum skipuleggur reglulegar ferðir um landið, stórar sem smáar. Þá er fram- undan fjölskylduferð þar sem börnin eru tekin með í smá útivist, grillað og haft gaman. Sumar ferðir eru skipulagðar með löngum fyrirvara á meðan hnoðað er í aðrar með nær engum fyrirvara. Margra mánaða skipulag Melrakkar hafa nokkrum sinnum farið horn í horn en leiðin er ekki alltaf sú sama. Drög að ferðinni núna voru lögð upp úr síðustu ára- mótum. Þegar þátttaka liggur fyrir þarf að skipuleggja leiðina og hvar séu gistimöguleikar, hvar sé hægt að taka eldsneyti og hvar sé hægt að komast í mat, því það er tak- markað sem hægt er að ferðast með á hjólunum. Stundum þarf að koma fyrir eldsneyti og vistum á leiðinni, en þess þurfti ekki núna þar sem ferðin var skipulögð með aðgengi að bensínstöðvum, þó svo allir væru með varabirgðir á hjólunum. Ferðalagið núna hófst á Reykja- nestá. Fyrsta gisting var í Hraun- eyjum, síðan í Bárðardal og þar hófst síðasti leggurinn út á Font á Langa- nesi. Á bakaleiðinni var gist rétt við Þórshöfn. Þaðan var farið að Lauga- felli á miðhálendinu og síðasta nóttin var svo í Húsafelli. Spurðar hvort það hafi verið eitt- hvað vesen eða bilanir, þá segja þær að það hafi ekki verið. Eitt hjól hafi bilað á bakaleiðinni og það hafi verið skilið eftir í Varmahlíð. „Svo eyðilagðist eitt dekk og það fór hosuklemma hjá mér en það redd- aðist allt. Dekkinu var bara reddað á næsta bóndabæ,“ segir Íris. Karitas bætir við að það sé óhjákvæmilegt að það verði smá vesen en það séu bara áskoranir fyrir hópinn. Það sé bara leiðinlegt þegar einhver dettur út úr hópnum með miklar bilanir. „Þetta eru þaulvanir hjólarar. Þarna erum við með bifvélavirkja, rafvirkja, pípara, kokka. Það er öll flóran, þannig að allir geta gert eitthvað,“ segir Íris. Með náttúruna í fanginu „Þetta er hrá ferðamennska. Það er ekkert sambærilegt við þetta, nema kannski ganga. Þú ert með náttúruna í fanginu,“ segir Karitas þegar þær eru spurðar um hvernig sé að upp- lifa landið með þessum hætti, að fara um það á fjórhjólum og buggybílum. Í ferðinni horn í horn fékk hópurinn gott veður mestan hluta leiðarinnar en einnig rigningu og rok. Það var þó ekki nema einn dagur sem var þungu veðurfarslega, þegar verið var að fara yfir Sprengisand. Íris segir betra að vera á þungu hjóli þegar keyrt er í miklum vindi, því það geti verið áskorun að halda sér á hjólinu í mesta vindinum. Þau segjast hafa farið hratt yfir Sprengisand í því veðri sem var þar, enda svo sem lítið að sjá annað en sand og auðn. Það er nauðsynlegt að vera með góðar varnir þegar ferðast er með þessum hætti. Góðir hjálmar, brynjur, kragar, góðir gallar og skó- búnaður skipta öllu. Þá er ekki verra að hafa nýrnabelti til að taka álagið Melrakkar horn í horn Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is 48 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.