Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 10
Mikill meðbyr meðal íbúa og
fyrirtækja fyrir Ljósanótt
Ljósanótt verður haldin í tuttugasta
og fyrsta skiptið dagana 1.-4. sept-
ember. Í síðustu viku fór fram upp-
lýsingafundur þar sem fyrirtæki
veittu Reykjanesbæ styrki fyrir há-
tíðarhöld Ljósanætur. Helstu styrkt-
araðilar eru Landsbankinn, Skóla-
matur, Isavia, Lagardère og Nettó.
Þá var skrifað undir samninga, for-
stöðumaður Súlunnar, bæjarstjórinn
og menningarfulltrúi Reykjanes-
bæjar tóku til máls.
„Það má segja að þetta sé fyrsta
samkoman í dagskrá Ljósanætur,
þar sem við þökkum styrktarað-
ilum fyrir að styrkja þessa hátíð
og gera okkur kleift að halda hana.
Eftir langa bið þá eru það ákveðin
tímamót að fá tækifæri til að halda
Ljósanótt, við finnum fyrir mikilli
eftirvæntingu meðal íbúa. Undir-
búningur hátíðarinnar gengur mjög
vel. Að halda svona hátíð eins og
Ljósanótt er stórt verkefni og væri í
raun ekki hægt að halda hana nema
ef við myndum öll taka þátt í hátíð-
inni. Þetta er gríðarlega stórt og flott
verkefni en þetta væri ekki hægt ef
við hefðum alla þessa styrktaraðila
með okkur,“ sagði Þórdís Ósk Helga-
dóttir, forstöðumaður verkefnastofu
Súlunnar.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, þakkaði
öllum þeim sem leggja hátíðinni og
samfélaginu lið. „Ljósanótt hefur
stundum verið kölluð hátíð íbúanna
og við erum alltaf að sjá meira og
meira um frumkvæði af hálfu íbúa,
sem er gott. Við viljum að íbúarnir
finni þörf og kraft sem við náum
svo að leysa úr læðingi. Allra bestu
þakkir til allra þeirra sem eru að
leggja hér samfélaginu lið og svo ég
noti eina klisju sem eitthvert fyrir-
tækið er að nota í auglýsingum: Nú
ætlum við að gera þetta saman,“
sagði Kjartan.
Guðlaug María Lewis, menn-
ingarfulltrúi Reykjanesbæjar og
verkefnastjóri Ljósanætur, sagði
að í íbúakönnun sem gerð var um
Ljósanótt árið 2019 hafi komið fram
að um 80-90% íbúa Reykjanesbæjar
töldu að hátíðin skapaði samkennd
meðal íbúa. „Í verkefninu starfar
stór hópur af fólki af öllum sviðum
Reykjanesbæjar. Við vinnum með
öðrum aðilum og ætli þetta séu
ekki nokkrir tugir aðila sem koma
beint að hátíðinni. Þá erum við
ekki að taka með í reikninginn aðra
þátttakendur í verkefninu sem eru
íbúar og fyrirtæki. Við erum búin
að vera að vinna að undirbúningi
síðan í febrúar. Þá byrjuðum við að
funda og höfum fundað jafnt og þétt.
Þetta er því heilmikið verkefni og
ómetanlegur þessi stuðningur sem
er að koma úr samfélaginu. Það er
svo frábært að fá þessa styrki og fá
viðtökur frá fyrirtækjum sem finnst
sjálfsagt að koma til móts við þetta
verkefni. Það er mikill meðbyr og frá-
bært að finna það. Í íbúakönnuninni
kom einnig fram að 90% íbúa þótti
hátíðin hafa jákvæð áhrif á ímynd
Reykjanesbæjar. Þetta er því mikil-
vægt verkefni í hjörtunum okkar og
út á við,“ sagði Guðlaug.
Flugmenn framtíðarinnar í Flugbúðum
Flugbúðir Flugakademíu Íslands
fóru fram dagana 9.-11. ágúst þar sem
farið var yfir allt það áhugaverðasta
og skemmtilegasta sem kennt er í
flugtengdum fögum. Flugbúðirnar
eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum
13-16 ára sem hafa áhuga á flugi
og flugtengdum málum til þess að
spreyta sig og fá betri innsýn í flug-
heiminn. Í ár voru um 20 þátttak-
endur og fengu allir tækifæri á að
fara í flughermi Flugakademíunnar,
fara í vettvangsferðir sem og að sitja
fyrirlestra í flugtengdum fögum.
Á fyrsta degi Flugbúðanna fengu
þátttendur kynningu á starfi, vélum
og námi Flugakademíu Íslands áður
en haldið var á athafnasvæði Fis-
félagsins Sléttunnar. Þar léku flug-
garpar listir sínar sem vakti mikla
lukku þátttakenda.
Á degi tvö fengu þátttakendur að
spreyta sig í flughermi Flugakademíu
Íslands og leysa hin ýmsu verkefni.
Því næst kom Ólafur Axel Kárason,
flugstjóri hjá Play, Rúnar Ingi Erl-
ingsson flugumferðarstjóri, Telma
Rut Frímannsdóttir og Kristín Edda
Egilsdóttir, flugkennarar og fyrrum
nemendur Flugakademíunnar, í
heimsókn og kynntu þau störf flug-
manna og flugumferðastjóra.
Síðasta daginn var vettvangsferð
inn á flugverndarsvæði Keflavíkur-
flugvallar þar sem rætt var við vakt-
stjóra slökkviliðsins sem sýndi þátt-
takendum alla starfsstöð ISAVIA á
austurhlaði Keflavíkurflugvallar.
Þá var ferðinni næst heitið í flug-
skýli Flugakademíunnar þar sem
hópurinn fékk að komast í kynni
við kennsluflugvélarnar. Að endingu
tók tæknistjóri Icelandair á móti
hópnum og leiddi hann þau um að-
stöðu og skýli þeirra.
Umsjónarmenn Flugbúðanna í ár
voru þau Andrés Páll Baldursson
og Kristjana Henný Axelsdóttir og
sagði Andrés að mikil ánægja hafi
ríkt meðal hópsins. „Það er mjög
gleðilegt að Flugbúðirnar séu aftur
komnar á dagskrá hjá okkur með
reglubundnum hætti. Það er alltaf
mikill áhugi fyrir Flugbúðunum
og sýndi það sig vel í þátttöku-
fjöldanum. Allir þátttakendur voru
gríðarlega glaðir með búðirnar og er
ég viss um að við eigum eftir að sjá
mörg af þessum ungmennum í há-
loftunum í framtíðinni“.
Flugbúðir Flugakademíu Íslands
fyrir 13-16 ára ungmenni verða næst
haldnar 13.–15. júní 2023 og er hægt
að kaupa gjafabréf í Flugbúðirnar allt
árið í kring.
Frá undirritun styrktarsamninga vegna Ljósanætur 2022. VF-mynd: pket
10 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM