Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 58

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 58
Karen Sturlaugsson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, mun lengi muna eftir þjóð- játíðardeginum 17. júní 2022. Þann dag var hún gerð að bæjarlistamanni Reykjanesbæjar og á sama degi fékk hún Fálkaorðuna. Hvernig varðir þú fyrsta sumar- fríinu án takmarkana? Það var farið í tvö tónleikaferðalög. Fyrst fór ég með Lúðrasveit Verka- lýðsins, sem ég stjórna, í lok júní til Ítalíu. Frábær ferð en mjög heitt og erfitt stundum að spila í svona hita. Í lok júlí fór ég með Bjöllukór Tónlist- arskóla Reykjanesbæjar á heimsmót bjöllukóra í Nashville, Tennessee. Skemmtilegt ferð. Hvað stóð upp úr í sumar? Ég myndi segja 17. Júní. Þá fékk ég útnefningu sem listamaður Reykja- nesbæjar og á sama dag fékk ég einnig Fálkaorðuna! Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Einmitt þetta sem gerðist allt saman á 17. Júní. Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands? Það eru margir staðir. Þórsmörk, Gjáin við Stöng, Eldborg á Snæfells- nesi - en svo er næst um því hvar sem er á landinu í góðu veðri. Hvað ætlar þú að gera í vetur? Vinna, vinna, vinna. En svo mun ég líka stjórna ýmsum hljómsveitum í haust t.d. á landsmóti skólalúðra- sveita (SÍSL) og einnig á landsmóti lúðrasveita (SÍL). Hvernig finnst þér Ljósanótt? Frábær. Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Árgangagönguna. Svo reynum við hjónin alltaf að fara á myndlistar- sýningar. Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? Árgangagangan – í góðu veðri. Stemningin þar er ólýsanleg. Ógleymanlegur þjóðhátíðardagur Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Rannveig L. Garðarsdóttir segir sumarið búið að einkennast af gefandi gönguferðum, ferðalögum innanlands og samveru með fjölskyldunni. Rannveigu, eða Nanný, finnst Ljósanótt gera mikið fyrir bæinn sinn, sem breytist í borg þegar hátíðin gengur í garð. Nanný ætlar pottþétt í árgangagöng- unar og á allar myndlistarsýningar hátíðarinnar. Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án takmarkana? Sumarið er búið að einkennast af gefandi gönguferðum, ferðalögum innanlands og samveru með fjölskyldunni. Fyrsta sumarfríið mitt án takmarkana var fjögurra daga gönguferð um Hornstrandir með skemmtilegum hópi fólks á vegum Ferðafélags Íslands þar sem gengið var með fjörum og fjallstindum í góðum félagsskap við refi, yrðlinga og seli og þar var sko gott að vera. Hvað stóð upp úr sumrinu? Það sem stóð uppúr í sumar er allt þetta skemmtilega fólk sem ég kynntist í öllum leiðsögu-ferðunum í sumar sem ég fór með í sumar bæði söguferðir um bæinn minn og skoðunarferðir um Suðurnesin og víðar. Ég á líka ógleymanlega stund frá ferðinni á Horn- strandir, það var þegar við vorum loksins komin uppá topp á Skálakambi í Hlöðuvík á Hornströndum eftir göngu í mikilli þoku og skyndilega hverfur þokan einsog hendi sé veifað og við blasa fallegustu fjöll og firðir sem ég hef nokkru sinni augum litið, þessi stund stóð nógu lengi yfir til að hægt var að festa stundina á filmu en eftir stendur minningin með lyktinni og tilfinningunni sem fylgir slíkri stund Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands? Ég á nokkra uppáhalds staði á landinu, einn er Reykja- nesviti, ég fer þangað reglulega til að sækja mér jarð- tengingu því mér finnst hvergi vera eins stutt í kjarna jarðarinnar og þar. Meðalfellsvatn í Kjós er annar uppáhaldsstaður, þar eigum við fjölskyldan sumarhús og þar finnst mér vera fallegasta útsýni sem er í boði á suðvesturlandi. Vatnið stendur norðan við Esjuna og mætti því segja að það sé staðsett á bak við Esjuna og þar nýt ég þess að ganga um ótal gönguleiðir Esjunnar og þreytist seint á að finna nýjar leiðir um þetta magnaða fjall. Einnig finnst mér mjög gaman að ganga hringinn í kringum vatnið sem er 9 km. gangur og er það orðinn stór hluti af heilsulífinu mínu og segir gönguappið Strava að ég hafi ég gengið 22 sinnum þennan hring á þessu ári sem hlýtur að teljast bara nokkuð gott. Hvað ætlar þú að gera í vetur? Ég hef það fyrir sið að setja mér markmið til lengri og skemmri tíma og ég lít á það sem einskonar leiðarvísi í mínu lífi og ég á eftir að uppfylla nokkur atriði á þessu ári m.a ætla ég sækja fleiri tónleika en ég hef gert undan- farin ár og ég mun skipuleggja gott ferðalag langt út fyrir minn þægindahring. Hvernig finnst þér Ljósanótt? Mér finnst Ljósanótt gera mikið fyrir bæinn minn því þá breytist bærinn í borg og gaman að sjá og finna alla gróskuna sem er í gangi hjá íbúum bæjarins og einnig er gaman að fylgjast með undirbúningi fyrir hátíðina þar sem ótal margir taka þátt hvort sem það eru skólarnir, menn- ingin eða íþróttir fyrir utan alla hina, mér finnst ég oft finna fyrir hve samtakamátt- urinn er mikill í bænum í undirbúningi fyrir þennan viðburð. Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Ég fer alveg pottþétt í Árgangagönguna og ætla að reyna að skoða allar mynd- listarsýningar sem eg kemst yfir og að ég tali nú ekki um tónleikana, mér finnst þetta allt svo spennandi að ég get eiginlega ekki tekið neitt útúr. Hver er besta minningin þín frá Ljósa- nótt? Mér finnst erfitt að velja bestu minninguna frá Ljósanótt því ég á mjög margar góðar minningar ekki síst úr þeim ferðum sem ég hef skipulagt og vel því að rifja upp eina af gönguferðunum sem ég stóð fyrir. Eitt árið græjaði ég sögugöngu í samstarfi við sr. Erlu Guðmundsdóttur prestinn okkar og planið var að ganga um bæinn með allskonar skemmtilegheitum m.a að koma við í garðinum hjá henni og þiggja kaffi og með-því. Allur undirbúningur gekk vel og svo þegar kom að deginum þá mættu rúmlega 200 manns í gönguna sem liðaðist einsog kröfuganga um bæinn en sr. Erlu brá svolítið í brún þegar við 200 manns gengum inn götuna í garðinn til hennar og var ekki alveg búin að græja meðlæti fyrir 200 manns en allt fór þetta vel og flestir bara ánægðir með gönguna og fóru sáttir heim. BÆRINN BREYTIST Í BORG Á LJÓSANÓTT Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is 58 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.