Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 64

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 64
30% AFSLÁTTUR Af öllum vörum og annað par fylgir öllum keyptum glerjum *Afslátturinn gildir ekki af tilboðsvöru Opið 10 - 18 opticalstudio.is 511-5800 Tilboðið gildir út 3. september HAFNARGATA 45 C M Y CM MY CY CMY K optical_vf_heilsida.pdf 2 26.8.2022 16:33 Við fjölskyldan skelltum okkur í stutta Íslandsheimsókn í síðustu viku. Þetta átti að vera bæði frí og vinna, sem þó aðallega fólst í ýmsum heimilisverkum. Þrátt fyrir fögur fyrirheit er bílskúrinn á Heiðar- brúninni samt alveg jafn troðfullur af allskonar og þegar við komum. Þegar maður býr í útlöndum þýðir nefni- lega ekkert að ætla sér í allsherjar tiltekt í stuttu stoppi því danskortið er fljótt að fyllast. Á viku náði ég að fara í fimmtugs- og sextugsafmæli, allskonar vinkonuhittinga, matarboð, sumarbústað, og sinnti nauðsynlegu persónulegu viðhaldi eins og klipp- ingu og fótsnyrtingu (já ég veit að ég bý í París og ég ætti að geta sinnt slíku viðhaldi hér, en þetta er ein- faldlega allt miklu betra á Íslandi – efni í sér pistil). Hvað um það, ég hitti sum sé heilan her af fólki á meðan ég var hér. Það var svo krúttlegt að öll samtöl snerust fljótlega um veðrið og hvað þetta sumar hafi verið ömur- legt – rigning og kuldi og bara almenn leiðindi. Fólk talaði um sólardaginn sem kom í júlí og svo ekki meir. Hér í Frakklandi hefur líka verið talað mjög mikið um veðrið í sumar, en það er á talsvert öðrum nótum. Hér er kvartað yfir of miklum hita og sögulega miklum þurrki. Fólk talar um daginn í júlí þegar það kom smá úði fyrir hádegi og svo ekki meir. Þetta er algjört svindl. Hversu dásamlegt væri það ef við gætum steypt þessu öllu saman og haft þetta allt aðeins minna og jafnara. Að vísu hefðum við þá reyndar ekkert um að tala! Ég viðurkenni að í mestu hitunum í sumar sáum við Lubbi hressandi Strandleiðargöngu í hillingum. Og svo viðurkenni ég líka að, vel dúðuð, í hressandi Strand- leiðargöngu í síðustu viku sá ég stuttbuxna- og hlýrabolagöngu í Boulogne skóginum alveg fyrir mér. Reyndar kvarta ég alls ekki yfir veðrinu sem við fengum – við tókum sólina með okkur til Íslands í hand- farangrinum. En svona er þetta – okkur langar í það sem við ekki höfum. Ég verð aldrei meiri Íslendingur en þegar ég bý í útlöndum og sakna mjög skrýt- inna hluta. Þegar ég bjó í Bandaríkj- unum á námsárunum kom enginn til mín í heimsókn án þess að taka með sér Normalbrauð – sem ég nóta bene hef varla smakkað eftir að ég flutti aftur heim árið 1997. Hingað til Frakklands kemur enginn til okkar án þess að hafa Chili Mæjó frá Ham- borgarafabrikkunni og Smjörva með sér. Af öllum hlutum! Þessu öllu er hægt að redda, en auðvitað það sem maður saknar mest er ekki hægt að flytja á milli landa - stemningin á Ljósanótt er eitt af því. Ég hefði svo sannarlega viljað mæta í árgangagönguna eftir þetta Covid hlé og hitta góða vini – og nota þetta tækifæri að sjálfsögðu til að senda mínum eðal 67 árgangi súper kveðjur. Svo finnst mér framtak ná- granna minna í „Holtunum heima“ stórkostlegt og vona að þetta gigg heppnist sem allra best og verði endurtekið. Og aftur að veðrinu. Eins og veðurspáin stendur þegar þetta er skrifað á að vera sól í Keflavík á laugardaginn en rigning í París. Ég vona svo sannarlega að það gangi eftir og að þið njótið dásamlegrar Ljósanætur – bestu kveðjur úr rign- ingunni! Misskipting veðurs LO KAO RÐ RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.