Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 53

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR OG SUNDKENNSLA Íþróttir teljast ekki meðal náms- greina í fyrstu reglugerð skólans, frá 1872. Fyrstu sjö áratugina þurftu börnin að ganga í skólann í mis- jöfnum veðrum, sum langan veg. Í því hefur falist drjúg líkamsþjálfun, jafnvel þrekraun. Ólafur Rosenkranz, sem var frum- kvöðull í þróttum hér á landi, kenndi hér við skólann veturinn 1876–1877. Ekki hafa fundist heimildir um hvort eða hvernig hann kenndi íþróttir það skólaár. Sr. Árni Þorsteinsson kenndi oft og einatt íþróttir þegar hann var hér prestur og kennari 1886 – 1919. Veturinn 1908–1909 mun hann hafa kennt leikfimi þrjár stundir í viku í Norðurkotsskóla, einkum stökk, glímur og ýmsar líkamsæfingar, göngulag og fleira. Húsakynnin voru afar þröng, allt upp í tuttugu nem- endur í u.þ.b. tólf fermetra skólastofu og því líklegt að hann hafi verið með útikennslu. Ungmennafélag Vatnsleysustrandar, sem stofnað var 1907, fékk Guð- mund Sigurjónsson íþróttakennara til að kenna glímur og félagið keypti skíði til að nota í Arahólsbrekkum. Vorið 1924 bendir prófdómari á að sérherbergi vanti fyrir fimleika- kennslu, því það sé nauðsynlegur liður í uppeldinu. Reynir Brynjólfs (nemandi 1944– 1947) segir: „Í Kirkjuhvoli var kennd leikfimi og glíma meðan eldra skóla- húsið var, þar var m.a. stokkið yfir hest. Síðan þegar nýja húsið kom til kenndi Stefán Hallsson leikfimina á ganginum.“ Stefán Hallsson kenndi 1934– 1945, lengst af í Kirkjuhvoli, m.a. íþróttir, síðast 1945 á gangi nýs húss Brunnastaðaskóla, tvær stundir á viku skipt milli stráka og stelpna. Síðan kenndu umferðarkennarar sem fóru á milli skóla, m.a. Lúðvík Jónasson. Jón H. Kristjánsson mun hafa kennt íþróttir 1948–1949 og Ingi Haraldsson 1950–1952. Símon Rafnsson segir enga íþróttakennslu hafa verið á hans tíma, 1955–1961. Særún Jónsdóttir var aldrei í leikfimi, ekki heldur Helgi Guðmundsson en Jóhann Sævar segir Jón H., skóla- stjóra, hafa kennt íþróttir á gangi Brunnastaðaskóla (um 1955). Frá því á síðari hluta sjöunda ára- tugar var börnunum ekið í íþróttir og sund í Njarðvík (reyndar í Sand- gerði eitt ár þegar ekki samdist við Njarðvíkinga). Kópur Kjartansson ók á skólarútunni tveimur eða þremur árgöngum í senn, ásamt kennara sem gætti nemenda. Íþróttakennari Njarðvíkurskóla kenndi, einum hópi í senn meðan hinir biðu. Hver nem- andi fékk eina vikustund í leikfimi og eina í sundi. Þegar Guðmundur Þórðarson réðist til Stóru-Vogaskóla sem íþróttakennari 1983 tók hann við þessari íþróttakennslu og fór þá með rútunni ásamt öðrum kennara. Þetta fyrirkomulag hélst allt þar til haustið 1993 að bylting varð í íþrótta- og sundkennslu í Vogum þegar þar var tekinn í notkun ný- byggður íþróttasalur og sundlaug. Eftir það þurftu skólabörnin aðeins að ganga í fimm mínútur í íþróttir og sund. Hjónin Egill Sæmundsson og Sigríður Jakobsdóttir í Minni-Vogum og María Finnsdóttir í Austurkoti höfðu af rausnarskap gefið 4,5 ha land undir félagsheimili og íþrótta- svæði þegar árið 1966. Myndina tók Eyjólfur Guðmundsson 1996 í áhorfendabrekku við sundlaugina í Vogum tveimur árum eftir að hún tók til starfa. Sund. Jakob A. Sigurðsson í Sól- heimum í Vogum (faðir fyrrnefndrar Sigríðar) var fjölhæfur maður, m.a. sundkennari í Keflavík og víðar. Hann kenndi m.a. sund í sjónum í höfninni í Vogum og við Halakot og Knarrarnes. Hann rak niður fjóra staura í fjöruna og batt í þá eins konar rólu sem börnin hanga í þegar þau læra sundtökin, með fæturna öðru megin og bringuna hinu megin. Námskeið þessi voru ekki á vegum skólans og hafa verið á fjórða ára- tugnum. Jakob var í fyrstu stjórn Ungmennafélagsins Þróttar og lengi formaður þess. Myndin af ungmennum standandi á haus mun vera tekin í sundferð til Reykjavíkur 1935. Á neðstu mynd sést hópur á leið á tíu daga sundnámskeið á Laugar- vatni 1936, á mjólkurbílnum. Börnin voru á fermingaraldri, fóru gjarna á eitt námskeið og mun þetta hafa verið ný til komið. Í skólaskýrslum 1943 er þess getið að fermingarbörn, sem gengu til sr. Garðars Þorsteinssonar, prófasts í Hafnarfirði, hafi notið sundkennslu þar í bæ á sama tímabili. Vorin 1944–1947 sóttu börnin sundnámskeið í Sundlaug Hafnar- fjarðar og 1949–1950 í Sundlaug Laugarvatnsskóla. Frá 1952 voru unglingar keyrðir á tveggja vikna sundnámskeið í Sund- höll Keflavíkur, sem opnuð var sem útisundlaug 1939 og byggt yfir hana 1950. Árið 1954 samþykkir skólanefnd að öll börn níu ára og eldri fari á sundnámskeið (líklega í Keflavík). Jón H. Kristjánsson, skólastjóri og skólabílstjóri, sá um börnin og ók þeim fyrir 120 kr. á ferð. Í apríl 1966 (og oftar) fær fræðslu- nefnd sendar ítarlegar reglur um framkvæmd sundskyldu. Þar sem ekki er sundlaug við skóla skulu nemendur njóta námskeiða sem eru minnst 72 stundir fyrir börn og 32 stundir fyrir unglinga. Þorsteinn, íþróttafulltrúi ríkisins, fylgdist með og sendi árlega nöfn nemenda sem höfðu tekið fullnaðar- próf án sundprófs. Um þetta leyti hefst vikulegur akstur allra nemenda í leikfimi og sund í Njarðvík, sem áður greinir frá, og kemst loks í gott horf þegar íþróttamiðstöðin í Vogum kemur til sögunnar 1993. Helstu heimildir m.a.: Myndasafn Minjafélagsins. Óbirt skjöl. Egill Hallgrímsson: Fjörutíu ára minning ungmennafélagshreyfingarinar á Vatnsleysuströnd. SKINFAXI 39. árg. 1948 1. tbl. Viðtöl við Guðrúnu Lovísu Magnúsdóttur (f.1922 d.2020), og við kenn- arana Jón Inga Baldvinsson, Guðmund Þórðarson og Særúnu Jónsdóttur í ágúst 2022. Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu. Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann, tekur saman með góðra manna hjálp. 32. ÞÁTTUR á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG Líf og fjör á 20. Ljósanóttinni Fimmtugum frestað! Ljósanótt 2019 heppnaðist vel og tugir þúsunda gesta úr heimabyggð og nágrenni sóttu hátíðina heim. Dagskráin stóð yfir frá miðvikudegi til sunnudagskvölds. Tónleikar Bliks í auga settu Ljósanótt í gegn og enginn annar en kóngurinn Bubbi Morthens setti punktinn yfir i-ið á tón- leikum í Keflavíkurkirkju. Líklega er þetta mesta menningar-, lista- og tónlistarhátíð landsins. Yfir 150 viðburðir voru í boði og megnið af þeim tengdust menningu, list og tónlist. Árið 2019 Árið 2020 Þeir sem eru 50 ára á árinu eru afmælisár- gangurinn sem er í aðalhlutverki í árganga- göngunni á Ljósanótt. Árið 2020 var hins vegar engin Ljósanótt og gangan verður ekki farin. Hvað gerir 50 ára árgangurinn þá? Víkurfréttir hittu fyrir hóp ungmenna úr þessum árgangi 1970 á hátíðarsvæðinu á Bakkalág í Keflavík þar sem árgangur hittist til myndatöku án þess að fá að láta ljós sitt skína í sjálfri árgangagöngunni. vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.