Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 34

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 34
Deiliskipulag í Reykjanesbæ Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi 23. ágúst 2022 að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagstillögur í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Framnesvegur 11 Breytingu á deiliskipulaginu Framnesvegur 11 með uppdrætti og kynningargögnum dags. 7. júlí 2022. Breytingin felur í sér fjölgun íbúða um 23, eða úr 87 íbúðir í 110 en nýtingarhlutfall óbreytt. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. október 2022. Skila skal inn skriflegum umsögnum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Eða á netfang skipulagsfulltrúa skipulag@reykjanesbaer.is. Reykjanesbær 31. ágúst 2022 Skipulagsfulltrúi Æskuvinirnir Stefán Jónsson og Gunnar Þór Jónsson verða með myndlistarsýningu í Fishershúsi, Hafnargötu 2, á Ljósanótt. Stefán hélt sína fyrstu myndlistarsýningu á Ljósanótt 2003 en sýningin í ár er frumraun Gunnars. „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Gunnar aðspurður hvort myndlistarsýningar verða árleg hefð héðan í frá. Stefán og Gunnar eru æskuvinir en mæður þeirra voru einnig vinkonur. „Við erum búnir að vera vinir alla tíð, þó svo að við munum ekki mikið eftir fyrstu árunum, “ segir Gunnar. Þeir félagar voru saman í barna- skóla og gagnfræðaskóla en síðan skildu leiðir þegar Stefán fór að læra prentun og Gunnar kennarann. Krotaði í allar skólabækurnar Stefán hefur verið að mála og teikna frá því hann man eftir sér, hann var að eigin sögn í „tossabekknum“ í grunnskóla og eyddi mestum tíma í að teikna í skólabækurnar sínar. „Áhuginn hefur alltaf verið til staðar, myndlist var eina fagið sem ég nennti í skóla. Ég teiknaði bara út í eitt, skólabækurnar mínar voru allar út í teikningum og hljómsveitar- nöfnum sem ég hafði teiknað,“ segir Stefán. Aðspurður hvers vegna hann ákvað að byrja að sýna verkin sín segir hann: „Það var einhver hátíð hérna í bænum sem tengdist list af einhverju leiti. Einhver í fótbolt- anum vissi að ég væri svolítið í því að teikna og ég endaði á því að sýna í gamla vallarhúsinu á Hringbraut- inni. Ég sýndi þar slatta af myndum og svo þróaðist þetta og ég er búinn að vera annað hvert ár á Ljósanótt,“ segir Stefán. Teiknar sér til slökunar og yndisauka Gunnar hefur einnig alltaf verið mikið fyrir það að „krota og krassa,“ eins og hann kallar það. „Ég byrjaði svolítið á þessu á námsárunum í Kennaraskólanum, síðan flyt ég vestur á firði og var þar skólastjóri eftir að ég hafði starfað á Breiðuvík. Þar var ég að teikna svolítið mikið yfir veturinn í myrkrinu. Síðan liggur þetta niðri hjá mér mörg ár þegar ég fór að kenna og var skóla- stjóri í Heiðarskóla. Eftir að ég hætti að vinna í skólanum fór ég smátt og smátt að krota og krassa aftur. Þetta er mín leið til slökunar og yndisauka, svo hefur þetta bara þróast,“ segir Gunnar og bætir við: „Það var aldrei ætlun mín að fara að sýna það sem ég hef verið að gera. Ég hef aðallega bara verið að gefa vinum og ætt- ingjum þessar myndir mínar. Eftir því sem á hefur liðið hef ég fengið smá hvatningu og mig minnir að Stebbi hafi stungið upp á því að halda sýningu saman á Ljósanótt. Það tók mig smá tíma að melta það en ég ákvað að slá til og hugsaði með mér að það yrði bara gaman.“ Gerðu sömu mynd fyrir tilviljun Þeir Gunnar og Stefán draga báðir innblástur frá nærumhverfi sínu. Að- spurðir hvort verkin þeirra tengist með einum eða öðrum hætti segir Gunnar: „Þetta var ekki þannig að við hittumst og ræddum saman um það hvað við ætlum að sýna en þegar við skoðuðum verkin okkar nánar þá er sumt svipað - fyrir algjöra til- viljun. Það hefur hitt þannig á að við Stefán höfum fengið sömu hug- myndina. Ég teiknaði einmitt mynd af bát sem var hálfsokkinn í Njarð- víkurhöfn og Stebbi málaði held ég nákvæmlega sömu mynd“ og Stefán bætir við: „Ég málaði líka einhvern tíman mynd af litla húsinu sem er í Straumsvík og Gunni teiknaði líka mynd af því, án þess að vita að ég hafði gert það líka.“ Myndlistarsýning Gunnars og Stefáns verður opin milli klukkan 17:00 og 22:00 á fimmtudeginum og föstudeginum, frá klukkan 14:00 til 18:00 á laugardeginum og 13:00 til 16:00 á sunnudeginum. Þeir félagar bjóða alla velkomna á sýninguna og vonast til þess að sjá sem flesta. Fjöldi listasýninga verða á Ljósa- nótt 2022, meðal annars í Fishers- húsi, Duus Safnahúsum, Svarta Pakkhúsinu, Hótel Keflavík, í Gróf- inni og heimahúsum. Sjá nánar í dag- skrá Ljósanætur í miðopnu blaðsins. Æskuvinir halda mynd- listarsýningu á Ljósanótt Listráð Reykjanesbæjar sýnir verk sín í Bíósal Duus húsa á Ljósa- nótt. Listráð skipaða þau; Kristinn Már Pálmason, Andrea Maack og Gunnhildur Þórðardóttir. Öll hafa þau rætur í Reykjanesbæ, annað hvort með búsetu eða eru fædd og uppalin bæjarfélaginu. Andrea rífur mörkin á milli listsköpunar og tísku. Listsköpun Andreu er drifin áfram af þörf fyrir að skapa nýstárleg verk sem höfða til allra skynfæra. Kristinn Már Pálmason er fæddur í Keflavík árið 1967 og tilheyrir því hinni svokölluðu pönk kynslóð. Á síðustu árum hafa myndverk Kristins verið byggð upp á dulhyggju og táknfræði. Formin eru tákn sem þó eru án sértækrar merkingar fyrir utan myndverkið sjálft. Myndverk Gunnhildar styðjast oft við fundna endurunna hluti sem finna má í nærumhverfi listamannsins. Segja má að hún setji á svið eigin upp- lifun af hinu hversdagslega lífi, sem í tilfelli Gunnhildar er kannski ekki svo hversdagslegt. Oft má finna hættulega dulúð sem dregur áhorfandann inn í myndheim listamannsins. Byggðasafn Reykjanesbæjar opnar nýja sýningu fimmtudaginn 1. sept- ember kl. 18 í Duus safnahúsum. Sýningaropnunin er hluti af dagskrá Ljósanætur. Sýningin ber heitið Hér sit ég og sauma. Byggðasafnið varðveitir yfir 60 saumavélar, þar á meðal saumavél sem framleidd var á árunum 1860- 1870. Líklega er um að ræða eina af elstu saumavélum landsins. Fatasaumur var eitt af verkefnum kvenna á árum áður og var sauma- skapur mikils metið handverk. Til- koma saumavélarinnar olli byltingu og sagt var að saumavél gæti sparað eina vinnukonu. Sumar konur urðu þekktar fyrir saumaskap sinn og gerði sauma- vélin þeim kleift að afla tekna. Listráð Reykjanes- bæjar sýnir verk sín í Bíósal Duus húsa Hér sit ég og sauma í Duus safnahúsum FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Myndir eftir Gunnar og Stefán. Félagarnir Gunnar og Stefán. 34 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.