Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 62

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 62
Freyr er smiður og tveggja barna faðir. Hann flutti til Reykjanes- bæjar fyrir nokkrum árum og líkar vel. Í frítíma hans finnst honum fátt skemmtilegra en að spila folf með vinunum. Hvers vegna byrjaðir þú að spila folf? „Ég byrjaði fyrir svona þremur árum síðan, þá fór ég með félaga mínum að prófa þetta og ég sá það strax að ég væri með flott flug á diskunum og þá kviknaði áhuginn um leið. Ég sá það að ef ég myndi æfa mig yrði ég ágætlega góður. Eftir það byrjaði ég bara á fullu í þessu.“ Hvað hefur þú tekið þátt í mörgum mótum? „Ég held ég hafi tekið samtals þátt í fjórum mótum. Ég er að fara að taka þátt í Ljósanæturmótinu núna um helgina, ég hef áður tekið þátt í því móti. Ég hef líka tekið þátt í þriðjudagsdeildinni í Reykjavík, þau standa svona helst upp úr.“ Hvert er markmiðið fyrir Ljósa- næturmótið? „Markmiðið er alltaf að reyna að gera eins vel og maður getur, það eru rosalega margir góðir sem koma að spila á þessu móti.“ Hver er þinn styrkleiki í þessu sporti? „Ég myndi segja að mín sterkasta hlið séu löngu köstin sem og styttri köstin frá u.þ.b. 30 metrunum. Ég þarf aðeins að æfa mig betur í pút- ternum.“ Hvað er það skemmtilegasta við folf? „Aðallega þegar maður nær flottu flugi á diskunum og nær að kasta langt. Svo er rosalega gaman að kíkja út með strákunum á kvöldin og kasta. Mótin eru hrikalega skemmtileg og útiveran alltaf góð.“ Hver er skemmtilegasti völlurinn að þínu mati? „Ég myndi segja völlurinn í Njarðvík og völlurinn í Guð- mundarlundi í Kópavogi. Völlurinn hjá tjaldsvæðinu á Akureyri er líka mjög skemmtilegur.“ Myndir þú segja að þetta væri sport fyrir hvern sem er? „Ég fer með börnin í þetta, ég fer með vinunum og ég fer með for- eldrum mínum og allir hafa mjög gaman af þessu. Við vinirnir förum að æfa okkur svona tvisvar til þrisvar í viku og það er gaman að segja frá því að tveir félagar mínir, sem eru nýlega byrjaðir í þessu, ætla líka að taka þátt í mótinu um helgina.“ Hvaða ráð hefur þú fyrir einhvern sem er að byrja í folfi? „Það er mikilvægt að byrjendur í folfi velji réttan disk. Því hver folfd- iskur hefur sinn eiginleika og talna- röðin á disknum gefur til kynna hvernig og í hvaða átt diskurinn flýgur. Ég mæli þess vegna með því að byrjendur velji sér disk sem flokkast undir „understable“ en það eru diskar sem hafa mínus fyrir framan þriðju töluna á disknum.“ Áttu einhverjar eftirminnileg atvik frá folfhring? „Það koma nokkur eftirminnileg atvik upp í hugann. Eitt þeirra er þegar ég spilaði einn minn besta hring í Njarðvíkurskógi þar sem ég fékk svo kallaðan fugl á fyrstu tíu körfurnar og endaði hringinn á -13. Annað eftirminnilegt atvik var var þegar folfdiskurinn lenti upp í tré og ég ætlaði að losa hann með því að kasta öðrum disk í hann en endaði með tvo fasta diska uppi í tré og því var ekkert annað í stöð- unni en að príla upp um fjóra metra til að losa þá báða.“ Íþrótt sem allir hafa gaman af Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Frisbígolf, eða folf, er íþrótt sem hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu. Folf fer fram á svipaðan hátt og venju- legt golf. Leikmenn notast við svifdiska og reynt er að ljúka hverri braut í sem fæstum köstum. Freyr Marínó Valgarðsson er einn af þeim sem byrjuðu að æfa folf á síðustu árum en hann hefur tekið þátt í fjórum mótum. Hann segir íþróttina vera fyrir fólk á öllum aldri. „Ég fer með börnin í þetta, ég fer með vinunum og ég fer með foreldrum mínum og allir hafa mjög gaman af þessu,“ segir Freyr. 62 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.