Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 44

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 44
Magnús Orri Arnarson greindist með Tourette þegar hann var í fjórða bekk og einhverfu í áttunda bekk, hann er úr Garði en býr núna á Ásbrú, flutti þangað í litla íbúð í desember. Magnús hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist kvikmyndum og byrjaði snemma að vinna í klippiforritum. Víkurfréttir settust niður með Magnúsi og við ræddum saman um lífið og tilveruna. Þú elst upp í Garðinum og gengur í skóla þar ... „... og síðan fer ég upp í FS [Fjöl- brautaskóla Suðurnesja],“ botnar Magnús og heldur áfram: „Ég byrjaði þar á starfsbraut og fór svo þaðan á kvikmyndabraut. Á kvikmynda- brautinni lærði ég að fótósjoppa, grafíska hönnun og fleira en samt útskrifast ég af starfsbraut, sem er svona fyrir fatlaða, en er samt með gráðu í þessum áföngum; Photoshop og kvikmyndagerð. Núna er þetta fullt starf hjá mér. Þegar ég var á þriðja ári í FS þá byrjaði ég í þáttunum Með okkar augum. Það byrjaði mjög óvænt út af því að ég var að keppa á heims- leikum Special Olympics árið 2019, í fimleikum, og hún Anna Kar- ólína Vilhjálmsdóttir, sem er fram- kvæmdastjóri Special Olympics á Ís- landi, hún bað mig um að taka upp kynningarmyndband fyrir heims- leikana, fara og hitta keppendur í hinum og þessum íþróttum fyrir heimsleikana. Það sló svo algerlega í gegn víðs vegar um heiminn, sér- staklega á Íslandi. Hún Elín Sveins- dóttir, pródúser Með okkar augum, sá þetta vídeó og vildi endilega fá mig til að bætast í liðið Með okkar aukum.“ Hvað eruð þið mörg sem eru í ...? „Við erum sex sem erum í Með okkar augum, með aðeins reyndara fólki eins og Elínu.“ Er þetta ekki rosalega gaman? „Þetta er geggjað. Ég er búinn að vera að starfa þarna á sumrin og á meðan hef ég verið að taka alls kyns námskeið á veturna, í kvikmynda- tökum og grafískri hönnun. Auka við þekkinguna, ég tók til dæmis nám- skeið hjá Stúdíó Sýrlandi í hljóð- blöndun og er stundum að mixa tónlist og svoleiðis. Svo hef ég verið að taka námskeið í kvikmyndatökum þegar ég var ekki í vinnu og ég út- skrifaðist úr fjölbraut í fyrra svo ég tók þessi námskeið með skólanum. Svo var ég líka að æfa fimleika og hafa tíma til að hitta vini – það var pínu krefjandi.“ Ertu ennþá að æfa fimleika? „Já, ég er ennþá í fimleikum og er afreksmaður þar. Ég byrjaði að æfa fimleika þegar ég var þriggja ára. Ég æfði fótbolta og körfubolta líka, svo fór ég einstaka sinnum í golf og sund á sumrin en entist ekki lengi í því.“ Vinnur við draumastarfið Á síðasta ári bauð Sigmundur Ernir Rúnarsson Magnúsi starf á sjón- varpsstöðinni Hringbraut sem töku- maður, klippari og við stiklugerð. „Ég er þar í 50% vinnu og sam- hliða því er ég að vinna sjálfstætt við þessa hluti. Ég er ennþá að mennta mig, taka námskeið og svona. Það gengur rosalega vel og það er markmið hjá mér að sækja um áframhaldandi nám í Kanada, í kvik- myndagerð. Ég legg mesta áherslu á að vera tökumaður og klippari. Svo kemur alveg fyrir í þáttunum Með okkar augum að ég er fyrir framan myndavélina, að taka viðtöl og svona. Ég er fjandi góður í því líka.“ Svo ertu mikill íþróttaáhugamaður – og heldur með Keflavík þótt þú sért úr Garðinum. „Já, ég held með Keflavík þótt ég sé úr Garðinum. Þegar ég var yngri var ég mjög harður Víðismaður en svo þegar ég kynntist Joey Drummer þá færði ég mig alveg yfir í Keflavík og fór að mæta á Keflavíkurleiki. Einhvern veginn var ég Arsenal- maður áður en ég hitti Joey, fór svo yfir í Manchester [United] þegar ég kynntist honum,“ segir Magnús og hlær. Þannig að Joey hefur haft rosalega góð áhrif á þig. „Ég veit það, hann er minn helsti stuðningur. Ég er líka í björgunar- sveit og hann hefur mikinn áhuga á svona björgunarstörfum, lögreglunni og sjúkraflutningum og svona. Það kom tímabil þar sem ég hafði rosa- lega mikinn áhuga á að mennta mig sem lögreglumaður en var samt með áhuga á kvikmyndagerð líka. Mamma og Joey voru að beina mér frá því að fara í lögregluna, það gæti orðið svo krefjandi þar sem ég er með tourette. Þá náði Joey einhvern veginn að snúa mér alfarið yfir í kvikmynda- og sjónvarpsgerðina – og ég held að ég sé ekkert að fara í lögregluna, verði bara í sjónvarps- geiranum. Langtímamarkmiðið mitt er að fara út og vinna í Hollywood. Hún Hildur Guðnadóttir, tónsmiður, er mín helsta fyrirmynd.“ Ert þú sjálfur að semja tónlist? „Það kemur fyrir en rosalega lítið. Ég legg meiri áherslu á að mixa tónlist eftir aðra. Þá fæ ég bara tón- list í hendurnar og laga t.d. hvernig röddin er, hljóðblanda með Auto Tune, en annars er ég mest í svona vídeólistum.“ En lærðir þú eitthvað í tónlist? „Já, ég æfði á trommur fyrst. Byrjaði í sjöunda bekk og alveg fram í tíunda bekk, var þá að tromma með stuðn- ingssveit Keflavíkur og Tólfunni í landsliðinu – og er ennþá að gera það. Ég hef ekkert verið að spila í hljómsveitum en á trommusett, þarf bara að klára að gera það upp. Joey hjálpar mér með það. Hann er alvarlegur trommuleikari, það má segja að hann sé aðeins betri en ég,“ segir Magnús hlægjandi en hann og Joey eru miklir og góðir félagar en vinskapurinn hófst þegar Joey tók Magnús í liðveislu. „Hann byrjaði með mig í liðveislu fyrir sex árum síðan. Þegar hann sá að ég ætti trommusett og væri að æfa trommur þá sagði hann bara: „Ég tek hann!“ Við grínumst svolítið með það að hann hafi bara tekið mig af því að ég væri trommuleikari. Hann byrjaði með mig í liðveislu og svo þróaðist það í þetta vinasamband okkar sem er núna. Ég þorði aldrei að fara á íþróttaleiki og vera innan um fólk út af öllum þessum kækjum sem ég var með út af tourette þegar ég var yngri. Það var alltaf verið að stríða mér og pínu einelti. Svo fór Joey með mig á minn fyrsta körfu- boltaleik og við sátum bara einir út í horni. Gerðum bara það sem okkur langaði til og gátum farið hvenær sem er. Svo fékk ég tækifæri til að hitta í körfuna á þessum leik, þetta var fyrsti leikurinn sem ég fór á og ég hitti í fyrsta skotinu. Við þetta allt jókst sjálfstraustið rosalega mikið og ég fór að mæta á leiki, núna er ég farinn að tromma fyrir Keflavík og Flugeldasjúkur kvikmyndagerðarmaður Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Þegar ég var yngri var ég mjög harður Víðismaður en svo þegar ég kynntist Joey Drummer þá færði ég mig alveg yfir í Keflavík og fór að mæta á Keflavíkurleiki  . . . Vinirnir Joey og Magnús. 44 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.