Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 4
Stórlax tekinn Traustataki Njarðvíkingurinn Trausti Arn- grímsson komst í meistaradeild laxveiðimanna þegar hann veiddi risalax í Iðunni í hádeginu síðasta laugardag. Laxinn mældist 104 sm. Morgunvaktinni var að ljúka þegar Trausti ákvað að velja nýja flugu í blálokin og freista þess að negla einn fyrir hádegismat. Hann kom stöng- inni á milli fóta sér og náði í flugu- boxið en þá verður hann var við að rifið er af afli í línuna. Trausti náði að rétta stöngina upp og bregðast við trölli hinum meginn á línunni. „Ég tók fantalega á honum án þess að vita hvað fiskurinn væri stór. Viðureignin var ekki löng, lík- lega út af því hvað ég tók hressilega eða eigum við að segja traustataki, á stórlaxinum,“ sagði Trausti sem fékk aðstoð frá veiðifélaga sínum, Margeiri Vilhjálmssyni sem náði að háfa tröllið rétt um tíu mínútum eftir að laxinn kom á. Þeir mældu fiskinn vandlega en hann var 104 sm. Al- vöru krókudíll eins og risa hængar eru oft nefndir vegna útlits eftir sumarlegu í ánum. Þetta mun vera næst stærsti lax sem veiðst hefur í sumar en breskur lávarður veiddi lax sem var einum sentimetra lengri í Laxá í Ásum snemma í sumar. Trausti og Margeir voru í holli með fleiri Suðurnesjamönnum. Holl sem fer nokkrum sinnum í Iðuna á hverju sumri. Túrinn gekk vel og fleiri fiskar, laxar og sjóbirtingar komu á land. Allir glaðir. Trausti í skýjunum með sinn stærsta fisk á ferlinum en kappinn er þaulvanur laxveiðigaur og hefur unnið við veiðileiðsögn í Ytri-Rangá í sumar. Trausti og tröllið! Fallegur er hann sá stóri úr Iðunni, - nýmældur 104 sm. og fékk frelsi skönmmu seinna. Myndir/Margeir Vilhjálmsson. 4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.