Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 4
Stórlax tekinn Traustataki
Njarðvíkingurinn Trausti Arn-
grímsson komst í meistaradeild
laxveiðimanna þegar hann veiddi
risalax í Iðunni í hádeginu síðasta
laugardag. Laxinn mældist 104 sm.
Morgunvaktinni var að ljúka þegar
Trausti ákvað að velja nýja flugu í
blálokin og freista þess að negla einn
fyrir hádegismat. Hann kom stöng-
inni á milli fóta sér og náði í flugu-
boxið en þá verður hann var við að
rifið er af afli í línuna. Trausti náði að
rétta stöngina upp og bregðast við
trölli hinum meginn á línunni.
„Ég tók fantalega á honum án
þess að vita hvað fiskurinn væri
stór. Viðureignin var ekki löng, lík-
lega út af því hvað ég tók hressilega
eða eigum við að segja traustataki,
á stórlaxinum,“ sagði Trausti sem
fékk aðstoð frá veiðifélaga sínum,
Margeiri Vilhjálmssyni sem náði að
háfa tröllið rétt um tíu mínútum eftir
að laxinn kom á. Þeir mældu fiskinn
vandlega en hann var 104 sm. Al-
vöru krókudíll eins og risa hængar
eru oft nefndir vegna útlits eftir
sumarlegu í ánum. Þetta mun vera
næst stærsti lax sem veiðst hefur í
sumar en breskur lávarður veiddi lax
sem var einum sentimetra lengri í
Laxá í Ásum snemma í sumar.
Trausti og Margeir voru í holli
með fleiri Suðurnesjamönnum. Holl
sem fer nokkrum sinnum í Iðuna á
hverju sumri. Túrinn gekk vel og
fleiri fiskar, laxar og sjóbirtingar
komu á land. Allir glaðir. Trausti í
skýjunum með sinn stærsta fisk á
ferlinum en kappinn er þaulvanur
laxveiðigaur og hefur unnið við
veiðileiðsögn í Ytri-Rangá í sumar.
Trausti og tröllið!
Fallegur er hann sá stóri úr Iðunni, -
nýmældur 104 sm. og fékk frelsi skönmmu
seinna. Myndir/Margeir Vilhjálmsson.
4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM