Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 41

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 41
Grænmeti og ávextir Skemmtileg keppni milli bæjarfélaga fór fram á Flughóteli á Ljósanótt árið 2012 þar sem m.a. voru smíðuð farartæki úr ávöxtum og grænmeti. Þá voru gerðar athyglisverðar tilraunir með egg. Glæsileg dagskrá var á hátíðarsviðinu þar sem minning söngsystkinanna Ellýar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna var heiðruð með vandaðri söngdagskrá. Að venju voru listamenn duglegir að sýna verk sín. Halla Har, einn af eldri listamönnum bæjarins var ein af mjög mörgum sem sýndu á Ljósanótt í mörg ár. Þá var setning Ljósanætur lit- skrúðug með blöðrusleppingu. Magnús og Árgangagangan Magnús Jónsson, bróðir Steinþórs Jónssonar sem er einn af upphafsmönnum Ljósanætur, átti þessa frábæru hug- mynd að Árgangagöngunni, sem nú er orðið eitt vinsælasta atriðið á Ljósanótt. Hér er Maggi í göngunni í sólinni 2011 en honum við hlið er nýbökuð bæjarstjórafrú, Jónína Guðjónsdóttir og fremst til hægri er Elísabet Magnús- dóttir, ritari bæjarstjórans. Meðal atriða þetta árið 2011 var Með blik í auga í fyrsta sinn og þótti heppnast afar vel. Á myndinni má sjá söngkonurnar Fríðu Dís Guðmundsdóttur og Birnu Rúnarsdóttur á sviðinu. FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR12 Svipmyndir frá Ljósanótt 2012 Fornbílar óku í halarófu niður Hafnargötuna á laugardeginum. Skólamatur bauð 5000 manns upp á rjúkandi heita kjötsúpu. Gróa Hreins var að mynda son sinn, Sigurð Guðmundsson, á símann en Sigurður heiðraði minningu Ellýar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna. Glæsileg dagskrá var á stórtónleikum á hátíðarsviðinu á laugardagskvöldinu. Þar var minning þeirra Ellýar og Vilhjálms heiðruð með vandaðri söngdagskrá. Árgangar safnast saman við hátíðarsviðið við Ægisgötu en þúsundir tóku þátt í árgangagöngunni sem fór niður Hafnargötuna. Elsti göngugarpurinn er fæddur 1922 og því níræður á árinu. Um 20.000 manns voru á stórtónleikum Ljósanætur sem fóru fram á laugardagskvöldið. Tónleikarnir náðu svo hápunkti þegar glæsileg flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes var á ellefta tímanum. Taekwondo-deild Keflavíkur sýndi bardagalist í miðbæ Keflavíkur á laugardeginum... ... og á sama tíma tróðu fjölmargir tónlistarmenn upp við Rokkheima Rúnars Júlíussonar við Skólaveg. Listakonan Halla Har hefur tekið þátt í Ljósanótt frá upp- hafi og ávallt sýnt sín nýjustu verk. Árgangur 1962 skipaði sérstakan sess í árgangagöngu Ljósanætur þetta árið. Hér er fyrirliði árgangsins. Danssýningar voru víða um bæinn þar sem dansskólarnir sýndu það sem nemendur þeirra eru að vinna að. Yfir 2000 blöðrum var sleppt á setningarhátíð Ljósanætur sem ávallt fer fram við Myllubakkaskóla í Keflavík. Skemmtileg keppni milli bæjar- félaga fór fram á Flughóteli þar sem m.a. voru smíðuð farartæki úr ávöxtum og grænmeti. Þá voru gerðar athyglisverðar tilraunir með egg. - Sjá nánar á vf.is. Ýmis íþróttaafrek voru unnin á Ljósanótt. Sundkrakkar frá ÍRB syntu áheitasund frá Innri Njarðvík til Keflavíkur og þá fór fram aflraunakeppnin Sterkasti maður Suðurnesja. Ljósanótt 2012 var haldin há- tíðleg um nýliðna helgi. Þetta var 13. Ljósanæturhátíðin. Dag- skrárliðir skiptu hundruðum. Ljósmyndarar Víkurfrétta voru á ferðinni með myndavélar og fönguðu stemmninguna. Hér er lítið brot af myndum en á vef Vík- urfrétta má sjá hundruð mynda í fjölmörgum myndasöfnum. Árið 2011Árið 2012 Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartansson, einn af „sonum“ Keflavíkur, kveikti á Stefnumótastaur á horni Hafnargötu og Tjarnargötu í Keflavík á Ljósanótt 2014. Hugmyndin að staurnum á rætur að rekja til lags Magnúsar Kjartans- sonar, Skólaball, sem hljómsveitin Brimkló flutti svo eftir- minnilega á sínum tíma. Björgvin Halldórsson söng lagið og segir það eitt af vinsælustu lögum sem hann hafi sungið í gegnum tíðina. Á þessari Ljósanótt var einnig opnað fjölskyldusetur auk fleiri flottra viðburða eins og ljósmyndasýningar 1940-1960. Magnús og Bó og stefnumótastaurinn Árið 2014 Andlit bæjarbúa og heimatónleikar „Andlit bæjarins“ var aðal sýning Ljósanætur 2015 en Björgvin Guðmundsson, ljósmyndari í áhugaljósmyndarafélaginu Ljósopi og félagar hans í því settu upp magnaða sýningu af 300 bæjarbúum sem teknar voru fyrir sýningu. Að vanda var dagskráin fjölbreytt með tugum sýninga og viðburða um allan bæ. Þá var í fyrsta sinn boðið upp á „heimatónleika“ en þar skemmta og syngja tónlistarmenn við eða í heimahúsum í gamla bænum í Keflavík. Fjölmennasta hátíðin? Fjölmennasta Ljósanæturhátíðin frá upphafi segir í miðopnu Víkurfrétta árið 2016 en mjög vel þótti takast til í hátíðarhöldum með mjög virkri þátttöku bæjarbúa. Þetta var í sautjánda sinn sem hátíðin var haldin. Ein breyting varð á við setningu Ljósanætur en í fyrsta sinn, allt frá því að leikskólabörn og yngstu grunnskólanemendur slepptu blöðrum við Myllubakkaskóla, var það ekki gert. Stórum boltum var hent á milli en höfðu all nokkrir á orði að þeir söknuðu þess að sjá blöðrum fljúga út í himinhvolfið. Allt gekk þó vel í fjölbreyttri dagskrá Íbúar Reykjanesbæjar voru þátttakendur í stærstu sýningunni á Ljósanótt 2018 en það var ljósmyndasýningin „Ein mynd segir meira en þúsund orð“. Sextíu ljósmyndarar sendu nærri 400 myndir í keppnina og afraksturinn var sýningur á hátíðinni í aðalsal Duus-safnahúsa. Ein af sérstæðum sýningum á Ljósanótt 2018 var í Stofunni í Duus en þar voru sýndir Silver Cross barna- vagnar, gamlir og nýir. Mörg undanfarin ár hefur verið menningardagskrá í Höfnum, minnsta hverfi Reykjanesbæjar. Elíza Newman hefur í mörg ár staðið fyrir tónleikum og fengið iðulega þekkta tónlistarmenn til að koma og leika í Kirkjuvogskirkju. Þá var á Ljósanótt 2018 skemmtilegt sagnarölt um Hafnirnar. Barnavagnar og ljósmyndasýning Árið 2015 Árið 2016 Árið 2018 vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.