Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 25
Apótekarinn Keflavík Suðurgötu 2
- lægra verð
Ljósanæturtilboð
20% afsláttur af öllum
húðvörum og snyrtivörum20%
Afsláttur gildir 1.– 4. september
í Apótekaranum Keflavík
styrkt íþróttahreyfinguna og fleiri
aðila á Suðurnesjum. Við þurfum
öll sem erum í rekstri á Suður-
nesjum að gera það,“ en kappinn
er gallharður Njarðvíkingur og er í
stjórn knattspyrnudeildar UMFN.
Njarðvíkurfánar eru við hún á
vinnusvæði Grjótgarða í Njarðvík.
„Já, ég er gallharður Njarðvíkingur.
Við erum komnir upp um deild og
stefnum hátt. Það var gaman þegar
við unnum Keflavík í bikarkeppninni
í sumar,“ segir Hjalti.
Aðspurður út í horfurnar í at-
vinnulífinu á svæðinu segist hann
hafa nokkrar áhyggjur af hækkunum
á aðföngum og verðbólgu og fleiru
sem tengist rekstrinum. Á leið frétta-
manns út af skrifstofunni eftir okkar
spjall hittum við fyrir Geirnýju, betri
helming Hjalta en hún sér um bók-
haldið og fleiru því tengdu. Grjót-
garðar náðu þeim frábæra árangri á
síðasta ári að komast í hóp Framúr-
skarandi fyrirtækja á Íslandi en um
2% fyrirtækja landsins eru í þeim
hópi. „Við ætluðum aldrei að verða
svona stór þegar við byrjuðum í bíl-
skúrnum. Við erum saman í þessu
og gengur bara vel,“ segir Geirný og
brosir. Hjalti tekur undir þetta hjá
eiginkonunni og segir mikilvægt að
sinna þessum ábyrga þætti í fyrir-
tækjarekstri vel. „Það eru ekki allir
sem mæla með því að hjón séu
saman í vinnunni en það hefur
gengið vel hjá okkur,“ segir Hjalti að
lokum.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
„Þessi framkvæmd var ótrúlega
skemmtileg og líklega er þetta ein flottasta
skólalóð landsins. Algjört meistaraverk
og frábært verkefni.“
Hjalti horfir stoltur á myndir af tækjaflota
fyrirtækisins en hann hefur stækkað mikið.
Séð yfir Stapaskólalóðina í Innri Njarðvík.
Fyrirtækið byrjaði með einar hjólbörur.
Nú eru þær fleiri og tækin líka.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 25