Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 20
Forvitnileg andlit, skopmyndir og litrík götulistaverk eftir listmálarann Seweryn
Chwala má sjá víða um Reykjanesbæ. Seweryn kemur frá Póllandi en hann og kona
hans, Natalia, fluttu til Reykjanesbæjar eftir að þau giftu sig, með það í huga að
stoppa stutt og safna sér fyrir íbúð í Póllandi. Þremur árum seinna eru þau enn bú-
sett í Reykjanesbæ og sjá meðal annars um listanámskeið fyrir pólsk börn í bænum.
Seweryn er með meistaragráðu
í myndlist frá Skłodowska-há-
skólanum í Lublin og var sjálfstætt
starfandi í Póllandi. Þar sá hann um
vinnustofur fyrir fólk á öllum aldri
og kenndi þeim meðal annars götu-
list. Seweryn segist hafa lært að
gera götulistaverk með því að horfa
á aðra. „Í Póllandi var ég mikið í
kringum annað fólk sem var að
graffa svo lærir maður líka mest á
því að prófa sjálfur,“ segir hann.
Götulist góð auglýsing
Listaverk hans sem prýða veggi húsa
í Reykjanesbæ hafa vakið mikla at-
hygli bæjarbúa en hann segir lista-
verk hans við Ungmennagarð 88
hússins hafa vakið hvað mesta
lukku. Þá hafa þau Seweryn og Na-
talia fengið önnur verkefni vegna
sýnileika andlitanna. „Við fengum
verkefni í hendurnar frá Íslands-
húsum fyrir sýninguna Verk og vit
sem var haldin í Laugardalshöll. Við
fengum það verkefni út frá lista-
verkunum við Hafnargötu 88. Þau
hringdu sem sagt í okkur og sögðust
hafa séð andlitin á steinunum og
báðu okkur um að taka þetta að
okkur. Þannig það má segja að þetta
sé fínasta auglýsing,“ segir Natalia.
Líður vel á Íslandi
Seweryn og Natalia eru bæði frá
Austur-Póllandi en þau kynntust í
gegnum vefsíðu. Eftir að þau giftu
sig, árið 2019, fluttu þau frá Póllandi
til Reykjanesbæjar og var planið að
vera þar um stutt skeið til að safna
pening fyrir íbúð í Póllandi. Nú
þremur árum síðar eru þau enn bú-
sett í Reykjanesbæ. „Þetta áttu svo
sem bara að vera u.þ.b. sex mánuðir
en núna þremur árum seinna erum
við enn hér og við elskum það,“ segir
Seweryn. Hjónin hafa komið sér vel
fyrir í bænum en Seweryn vinnur
á bílaleigunni Europcar og Natalia
vinnur á leikskólanum Akri og líkar
vel við. Þrátt fyrir það sjá þau fyrir
sér að flytja aftur til Póllands. „Við
höfum ákveðið það að við munum
einn daginn flytja aftur til Póllands,
aftur á móti held ég að við munum
alltaf leita aftur til Íslands, lífið hérna
er bara allt öðruvísi,“ segir Natalia.
Aðspurð hvað hún meinar með því
segir hún: „Til dæmis þegar kemur
að vinnu, hér fer maður í vinnuna
og utan vinnu er maður með frelsi
til þess að gera það sem manni sýnist
án þess að taka vinnuna með þér
heim. Svo er lífið bara svo kyrrlátt
hér, kannski finnst okkur það vegna
þess að í Póllandi eru stórar borgir
og meira „kaos“. Hér er lífið rólegra,
ef mann langar að fara að skoða
náttúruna þá er stutt að sækja. Við
elskum það og kunnum að meta
þannig lifnaðarhætti.“
Rækta móðurmál pólskra
barna með listanámskeiðum
Seweryn og Natalia segja pólskt
fólk á Íslandi eiga það til að hópa
sig saman. „Flestir Pólverjar hér á
svæðinu þekkjast, við erum frekar
ný og okkur líður alveg þannig.
Margir hafa búið hérna hátt í
tuttugu ár og eru jafn vel heilu fjöl-
skyldurnar saman,“ segir Natalia.
Hjónin bjóða upp á listanámskeið
fyrir pólsk börn á aldrinum fimm til
fimmtán ára á svæðinu. Námskeiðin
eru einhvers konar vinnustofur
sem fara fram í pólsku kirkjunni
og 88 húsinu. Seweryn segir nám-
skeiðin skapa ákveðna nálægð við
pólska samfélagið í Reykjanesbæ.
„Ég myndi samt segja að við séum
mitt á milli þess að vera partur af
pólska samfélaginu og þess íslenska
þar sem við vinnum í kringum mikið
af íslensku fólki og svo erum við líka
með vinnustofurnar. Þessar vinnu-
stofur færa okkur vissulega nær
pólska fólkinu en meginástæðan
fyrir því að við erum að halda þessi
námskeið er einfaldlega tungumálið.
Jafnvel þótt flest börnin tali mjög
góða íslensku þá gefur þetta þeim
tækifæri til að rækta móðurmálið
og líða eins og partur af heild. Ef við
tvö munum læra íslensku betur, já
eða bara ensku, þá gætum við lík-
lega haldið slík námskeið eða vinnu-
stofur fyrir íslendinga líka,“ segir Na-
talia. Aðspurð hvernig hefur gengið
með námskeiðin segir Seweryn með
bros á vör: „Við elskum að hafa þessi
námskeið“ og bætir við: „Í hverjum
tíma eru mismunandi áherslur og
við kennum þeim ýmsar aðferðir.
Það er virkilega gaman að sjá börnin
læra nýja hluti, fá meira sjálfsöryggi
og þroskast.“
Málaði bílinn eins og tígrisdýr
Bíll þeirra Seweryn og Nataliu hefur
vart farið framhjá bæjarbúum en
þau rúlla um á bíl sem er málaður
eins og tígrisdýr. Seweryn málaði
bílinn en þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem hann ræðst í slík verkefni. „Ég
hef gert nokkur svona verkefni
áður, sem dæmi gerði ég það sama
við einn bíl í Póllandi. Það var
reyndar stærri jeppi og það kom vel
út og þess vegna datt mér í hug að
það væri gaman að gera það aftur.
Natalia kom eiginlega með hug-
myndina, hún allaveganna nefndi að
það gæti verið flott að gera það sama
við bílinn okkar hér,“ segir Seweryn.
Natalia og Seweryn grínast mikið
með það að þau eigi eina tígrisdýrið
á landinu. „Það er heldur óvenju-
legt að sjá svona skreytta bíla á Ís-
landi. Ég vil meina að við eigum eina
tígrisdýrið á landinu. Ég var einmitt
að grínast með þetta á Facebook að
við getum ekki farið í Safari hérna
svo Safari kom til okkar, segir Na-
talia flissandi.
Eiga eina tígrisdýrið á Íslandi
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Seweryn og kona
hans Natalia.
Nokkur götulistaverk eftir Seweryn.
20 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM