Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Page 20

Víkurfréttir - 31.08.2022, Page 20
Forvitnileg andlit, skopmyndir og litrík götulistaverk eftir listmálarann Seweryn Chwala má sjá víða um Reykjanesbæ. Seweryn kemur frá Póllandi en hann og kona hans, Natalia, fluttu til Reykjanesbæjar eftir að þau giftu sig, með það í huga að stoppa stutt og safna sér fyrir íbúð í Póllandi. Þremur árum seinna eru þau enn bú- sett í Reykjanesbæ og sjá meðal annars um listanámskeið fyrir pólsk börn í bænum. Seweryn er með meistaragráðu í myndlist frá Skłodowska-há- skólanum í Lublin og var sjálfstætt starfandi í Póllandi. Þar sá hann um vinnustofur fyrir fólk á öllum aldri og kenndi þeim meðal annars götu- list. Seweryn segist hafa lært að gera götulistaverk með því að horfa á aðra. „Í Póllandi var ég mikið í kringum annað fólk sem var að graffa svo lærir maður líka mest á því að prófa sjálfur,“ segir hann. Götulist góð auglýsing Listaverk hans sem prýða veggi húsa í Reykjanesbæ hafa vakið mikla at- hygli bæjarbúa en hann segir lista- verk hans við Ungmennagarð 88 hússins hafa vakið hvað mesta lukku. Þá hafa þau Seweryn og Na- talia fengið önnur verkefni vegna sýnileika andlitanna. „Við fengum verkefni í hendurnar frá Íslands- húsum fyrir sýninguna Verk og vit sem var haldin í Laugardalshöll. Við fengum það verkefni út frá lista- verkunum við Hafnargötu 88. Þau hringdu sem sagt í okkur og sögðust hafa séð andlitin á steinunum og báðu okkur um að taka þetta að okkur. Þannig það má segja að þetta sé fínasta auglýsing,“ segir Natalia. Líður vel á Íslandi Seweryn og Natalia eru bæði frá Austur-Póllandi en þau kynntust í gegnum vefsíðu. Eftir að þau giftu sig, árið 2019, fluttu þau frá Póllandi til Reykjanesbæjar og var planið að vera þar um stutt skeið til að safna pening fyrir íbúð í Póllandi. Nú þremur árum síðar eru þau enn bú- sett í Reykjanesbæ. „Þetta áttu svo sem bara að vera u.þ.b. sex mánuðir en núna þremur árum seinna erum við enn hér og við elskum það,“ segir Seweryn. Hjónin hafa komið sér vel fyrir í bænum en Seweryn vinnur á bílaleigunni Europcar og Natalia vinnur á leikskólanum Akri og líkar vel við. Þrátt fyrir það sjá þau fyrir sér að flytja aftur til Póllands. „Við höfum ákveðið það að við munum einn daginn flytja aftur til Póllands, aftur á móti held ég að við munum alltaf leita aftur til Íslands, lífið hérna er bara allt öðruvísi,“ segir Natalia. Aðspurð hvað hún meinar með því segir hún: „Til dæmis þegar kemur að vinnu, hér fer maður í vinnuna og utan vinnu er maður með frelsi til þess að gera það sem manni sýnist án þess að taka vinnuna með þér heim. Svo er lífið bara svo kyrrlátt hér, kannski finnst okkur það vegna þess að í Póllandi eru stórar borgir og meira „kaos“. Hér er lífið rólegra, ef mann langar að fara að skoða náttúruna þá er stutt að sækja. Við elskum það og kunnum að meta þannig lifnaðarhætti.“ Rækta móðurmál pólskra barna með listanámskeiðum Seweryn og Natalia segja pólskt fólk á Íslandi eiga það til að hópa sig saman. „Flestir Pólverjar hér á svæðinu þekkjast, við erum frekar ný og okkur líður alveg þannig. Margir hafa búið hérna hátt í tuttugu ár og eru jafn vel heilu fjöl- skyldurnar saman,“ segir Natalia. Hjónin bjóða upp á listanámskeið fyrir pólsk börn á aldrinum fimm til fimmtán ára á svæðinu. Námskeiðin eru einhvers konar vinnustofur sem fara fram í pólsku kirkjunni og 88 húsinu. Seweryn segir nám- skeiðin skapa ákveðna nálægð við pólska samfélagið í Reykjanesbæ. „Ég myndi samt segja að við séum mitt á milli þess að vera partur af pólska samfélaginu og þess íslenska þar sem við vinnum í kringum mikið af íslensku fólki og svo erum við líka með vinnustofurnar. Þessar vinnu- stofur færa okkur vissulega nær pólska fólkinu en meginástæðan fyrir því að við erum að halda þessi námskeið er einfaldlega tungumálið. Jafnvel þótt flest börnin tali mjög góða íslensku þá gefur þetta þeim tækifæri til að rækta móðurmálið og líða eins og partur af heild. Ef við tvö munum læra íslensku betur, já eða bara ensku, þá gætum við lík- lega haldið slík námskeið eða vinnu- stofur fyrir íslendinga líka,“ segir Na- talia. Aðspurð hvernig hefur gengið með námskeiðin segir Seweryn með bros á vör: „Við elskum að hafa þessi námskeið“ og bætir við: „Í hverjum tíma eru mismunandi áherslur og við kennum þeim ýmsar aðferðir. Það er virkilega gaman að sjá börnin læra nýja hluti, fá meira sjálfsöryggi og þroskast.“ Málaði bílinn eins og tígrisdýr Bíll þeirra Seweryn og Nataliu hefur vart farið framhjá bæjarbúum en þau rúlla um á bíl sem er málaður eins og tígrisdýr. Seweryn málaði bílinn en þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann ræðst í slík verkefni. „Ég hef gert nokkur svona verkefni áður, sem dæmi gerði ég það sama við einn bíl í Póllandi. Það var reyndar stærri jeppi og það kom vel út og þess vegna datt mér í hug að það væri gaman að gera það aftur. Natalia kom eiginlega með hug- myndina, hún allaveganna nefndi að það gæti verið flott að gera það sama við bílinn okkar hér,“ segir Seweryn. Natalia og Seweryn grínast mikið með það að þau eigi eina tígrisdýrið á landinu. „Það er heldur óvenju- legt að sjá svona skreytta bíla á Ís- landi. Ég vil meina að við eigum eina tígrisdýrið á landinu. Ég var einmitt að grínast með þetta á Facebook að við getum ekki farið í Safari hérna svo Safari kom til okkar, segir Na- talia flissandi. Eiga eina tígrisdýrið á Íslandi Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Seweryn og kona hans Natalia. Nokkur götulistaverk eftir Seweryn. 20 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.