Víkurfréttir - 31.08.2022, Síða 34
Deiliskipulag
í Reykjanesbæ
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á
fundi 23. ágúst 2022 að auglýsa eftirfarandi
deiliskipulagstillögur í samræmi við 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Framnesvegur 11
Breytingu á deiliskipulaginu Framnesvegur 11 með
uppdrætti og kynningargögnum dags. 7. júlí 2022.
Breytingin felur í sér fjölgun íbúða um 23, eða úr 87
íbúðir í 110 en nýtingarhlutfall óbreytt. Þeim sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillögurnar.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. október
2022. Skila skal inn skriflegum umsögnum á skrifstofu
Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Eða á
netfang skipulagsfulltrúa skipulag@reykjanesbaer.is.
Reykjanesbær 31. ágúst 2022
Skipulagsfulltrúi
Æskuvinirnir Stefán Jónsson og Gunnar Þór Jónsson verða með myndlistarsýningu í Fishershúsi,
Hafnargötu 2, á Ljósanótt. Stefán hélt sína fyrstu myndlistarsýningu á Ljósanótt 2003 en sýningin í
ár er frumraun Gunnars. „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Gunnar aðspurður
hvort myndlistarsýningar verða árleg hefð héðan í frá.
Stefán og Gunnar eru æskuvinir en
mæður þeirra voru einnig vinkonur.
„Við erum búnir að vera vinir alla
tíð, þó svo að við munum ekki mikið
eftir fyrstu árunum, “ segir Gunnar.
Þeir félagar voru saman í barna-
skóla og gagnfræðaskóla en síðan
skildu leiðir þegar Stefán fór að læra
prentun og Gunnar kennarann.
Krotaði í allar skólabækurnar
Stefán hefur verið að mála og teikna
frá því hann man eftir sér, hann var
að eigin sögn í „tossabekknum“ í
grunnskóla og eyddi mestum tíma
í að teikna í skólabækurnar sínar.
„Áhuginn hefur alltaf verið til
staðar, myndlist var eina fagið sem
ég nennti í skóla. Ég teiknaði bara
út í eitt, skólabækurnar mínar voru
allar út í teikningum og hljómsveitar-
nöfnum sem ég hafði teiknað,“ segir
Stefán. Aðspurður hvers vegna hann
ákvað að byrja að sýna verkin sín
segir hann: „Það var einhver hátíð
hérna í bænum sem tengdist list
af einhverju leiti. Einhver í fótbolt-
anum vissi að ég væri svolítið í því
að teikna og ég endaði á því að sýna
í gamla vallarhúsinu á Hringbraut-
inni. Ég sýndi þar slatta af myndum
og svo þróaðist þetta og ég er búinn
að vera annað hvert ár á Ljósanótt,“
segir Stefán.
Teiknar sér til slökunar
og yndisauka
Gunnar hefur einnig alltaf verið
mikið fyrir það að „krota og krassa,“
eins og hann kallar það. „Ég byrjaði
svolítið á þessu á námsárunum í
Kennaraskólanum, síðan flyt ég
vestur á firði og var þar skólastjóri
eftir að ég hafði starfað á Breiðuvík.
Þar var ég að teikna svolítið mikið
yfir veturinn í myrkrinu. Síðan
liggur þetta niðri hjá mér mörg ár
þegar ég fór að kenna og var skóla-
stjóri í Heiðarskóla. Eftir að ég hætti
að vinna í skólanum fór ég smátt og
smátt að krota og krassa aftur. Þetta
er mín leið til slökunar og yndisauka,
svo hefur þetta bara þróast,“ segir
Gunnar og bætir við: „Það var aldrei
ætlun mín að fara að sýna það sem
ég hef verið að gera. Ég hef aðallega
bara verið að gefa vinum og ætt-
ingjum þessar myndir mínar. Eftir
því sem á hefur liðið hef ég fengið
smá hvatningu og mig minnir að
Stebbi hafi stungið upp á því að
halda sýningu saman á Ljósanótt.
Það tók mig smá tíma að melta það
en ég ákvað að slá til og hugsaði með
mér að það yrði bara gaman.“
Gerðu sömu mynd fyrir tilviljun
Þeir Gunnar og Stefán draga báðir
innblástur frá nærumhverfi sínu. Að-
spurðir hvort verkin þeirra tengist
með einum eða öðrum hætti segir
Gunnar: „Þetta var ekki þannig að
við hittumst og ræddum saman um
það hvað við ætlum að sýna en þegar
við skoðuðum verkin okkar nánar
þá er sumt svipað - fyrir algjöra til-
viljun. Það hefur hitt þannig á að
við Stefán höfum fengið sömu hug-
myndina. Ég teiknaði einmitt mynd
af bát sem var hálfsokkinn í Njarð-
víkurhöfn og Stebbi málaði held ég
nákvæmlega sömu mynd“ og Stefán
bætir við: „Ég málaði líka einhvern
tíman mynd af litla húsinu sem er í
Straumsvík og Gunni teiknaði líka
mynd af því, án þess að vita að ég
hafði gert það líka.“
Myndlistarsýning Gunnars og
Stefáns verður opin milli klukkan
17:00 og 22:00 á fimmtudeginum og
föstudeginum, frá klukkan 14:00 til
18:00 á laugardeginum og 13:00 til
16:00 á sunnudeginum. Þeir félagar
bjóða alla velkomna á sýninguna og
vonast til þess að sjá sem flesta.
Fjöldi listasýninga verða á Ljósa-
nótt 2022, meðal annars í Fishers-
húsi, Duus Safnahúsum, Svarta
Pakkhúsinu, Hótel Keflavík, í Gróf-
inni og heimahúsum. Sjá nánar í dag-
skrá Ljósanætur í miðopnu blaðsins.
Æskuvinir halda mynd-
listarsýningu á Ljósanótt
Listráð Reykjanesbæjar sýnir verk sín í Bíósal Duus húsa á Ljósa-
nótt. Listráð skipaða þau; Kristinn Már Pálmason, Andrea Maack
og Gunnhildur Þórðardóttir. Öll hafa þau rætur í Reykjanesbæ,
annað hvort með búsetu eða eru fædd og uppalin bæjarfélaginu.
Andrea rífur mörkin á milli listsköpunar og tísku. Listsköpun Andreu er
drifin áfram af þörf fyrir að skapa nýstárleg verk sem höfða til allra skynfæra.
Kristinn Már Pálmason er fæddur í Keflavík árið 1967 og tilheyrir því
hinni svokölluðu pönk kynslóð. Á síðustu árum hafa myndverk Kristins
verið byggð upp á dulhyggju og táknfræði. Formin eru tákn sem þó eru án
sértækrar merkingar fyrir utan myndverkið sjálft.
Myndverk Gunnhildar styðjast oft við fundna endurunna hluti sem finna
má í nærumhverfi listamannsins. Segja má að hún setji á svið eigin upp-
lifun af hinu hversdagslega lífi, sem í tilfelli Gunnhildar er kannski ekki svo
hversdagslegt. Oft má finna hættulega dulúð sem dregur áhorfandann inn í
myndheim listamannsins.
Byggðasafn Reykjanesbæjar opnar
nýja sýningu fimmtudaginn 1. sept-
ember kl. 18 í Duus safnahúsum.
Sýningaropnunin er hluti af dagskrá
Ljósanætur.
Sýningin ber heitið Hér sit ég og
sauma. Byggðasafnið varðveitir yfir
60 saumavélar, þar á meðal saumavél
sem framleidd var á árunum 1860-
1870. Líklega er um að ræða eina af
elstu saumavélum landsins.
Fatasaumur var eitt af verkefnum
kvenna á árum áður og var sauma-
skapur mikils metið handverk. Til-
koma saumavélarinnar olli byltingu og
sagt var að saumavél gæti sparað eina
vinnukonu. Sumar konur urðu þekktar
fyrir saumaskap sinn og gerði sauma-
vélin þeim kleift að afla tekna.
Listráð Reykjanes-
bæjar sýnir verk sín
í Bíósal Duus húsa
Hér sit ég og sauma í Duus safnahúsum
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Myndir eftir Gunnar og Stefán.
Félagarnir Gunnar og Stefán.
34 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM