Víkurfréttir - 31.08.2022, Qupperneq 58
Karen Sturlaugsson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, mun lengi muna eftir þjóð-
játíðardeginum 17. júní 2022. Þann dag var hún gerð að bæjarlistamanni Reykjanesbæjar og á sama
degi fékk hún Fálkaorðuna.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
Það var farið í tvö tónleikaferðalög.
Fyrst fór ég með Lúðrasveit Verka-
lýðsins, sem ég stjórna, í lok júní til
Ítalíu. Frábær ferð en mjög heitt og
erfitt stundum að spila í svona hita. Í
lok júlí fór ég með Bjöllukór Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar á heimsmót
bjöllukóra í Nashville, Tennessee.
Skemmtilegt ferð.
Hvað stóð upp úr í sumar?
Ég myndi segja 17. Júní. Þá fékk ég
útnefningu sem listamaður Reykja-
nesbæjar og á sama dag fékk ég
einnig Fálkaorðuna!
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
Einmitt þetta sem gerðist allt saman
á 17. Júní.
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
Það eru margir staðir. Þórsmörk,
Gjáin við Stöng, Eldborg á Snæfells-
nesi - en svo er næst um því hvar
sem er á landinu í góðu veðri.
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
Vinna, vinna, vinna. En svo mun ég
líka stjórna ýmsum hljómsveitum
í haust t.d. á landsmóti skólalúðra-
sveita (SÍSL) og einnig á landsmóti
lúðrasveita (SÍL).
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Frábær.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja
á Ljósanótt?
Árgangagönguna. Svo reynum við
hjónin alltaf að fara á myndlistar-
sýningar.
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
Árgangagangan – í góðu veðri.
Stemningin þar er ólýsanleg.
Ógleymanlegur þjóðhátíðardagur
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Rannveig L. Garðarsdóttir segir sumarið búið að einkennast af gefandi gönguferðum, ferðalögum
innanlands og samveru með fjölskyldunni. Rannveigu, eða Nanný, finnst Ljósanótt gera mikið fyrir
bæinn sinn, sem breytist í borg þegar hátíðin gengur í garð. Nanný ætlar pottþétt í árgangagöng-
unar og á allar myndlistarsýningar hátíðarinnar.
Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án takmarkana?
Sumarið er búið að einkennast af gefandi gönguferðum,
ferðalögum innanlands og samveru með fjölskyldunni.
Fyrsta sumarfríið mitt án takmarkana var fjögurra daga
gönguferð um Hornstrandir með skemmtilegum hópi
fólks á vegum Ferðafélags Íslands þar sem gengið var
með fjörum og fjallstindum í góðum félagsskap við refi,
yrðlinga og seli og þar var sko gott að vera.
Hvað stóð upp úr sumrinu?
Það sem stóð uppúr í sumar er allt þetta skemmtilega
fólk sem ég kynntist í öllum leiðsögu-ferðunum í sumar
sem ég fór með í sumar bæði söguferðir um bæinn minn
og skoðunarferðir um Suðurnesin og víðar.
Ég á líka ógleymanlega stund frá ferðinni á Horn-
strandir, það var þegar við vorum loksins komin uppá
topp á Skálakambi í Hlöðuvík á Hornströndum eftir
göngu í mikilli þoku og skyndilega hverfur þokan einsog
hendi sé veifað og við blasa fallegustu fjöll og firðir sem
ég hef nokkru sinni augum litið, þessi stund stóð nógu
lengi yfir til að hægt var að festa stundina á filmu en
eftir stendur minningin með lyktinni og tilfinningunni
sem fylgir slíkri stund
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands?
Ég á nokkra uppáhalds staði á landinu, einn er Reykja-
nesviti, ég fer þangað reglulega til að sækja mér jarð-
tengingu því mér finnst hvergi vera eins stutt í kjarna
jarðarinnar og þar.
Meðalfellsvatn í Kjós er annar uppáhaldsstaður, þar
eigum við fjölskyldan sumarhús og þar finnst mér vera
fallegasta útsýni sem er í boði á suðvesturlandi.
Vatnið stendur norðan við Esjuna og mætti því segja
að það sé staðsett á bak við Esjuna og þar nýt ég þess að
ganga um ótal gönguleiðir Esjunnar og þreytist seint á að
finna nýjar leiðir um þetta magnaða fjall. Einnig finnst
mér mjög gaman að ganga hringinn í kringum vatnið sem
er 9 km. gangur og er það orðinn stór hluti af heilsulífinu
mínu og segir gönguappið Strava að ég hafi ég gengið 22
sinnum þennan hring á þessu ári sem hlýtur að teljast
bara nokkuð gott.
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
Ég hef það fyrir sið að setja mér markmið til lengri og
skemmri tíma og ég lít á það sem einskonar leiðarvísi í
mínu lífi og ég á eftir að uppfylla nokkur atriði á þessu
ári m.a ætla ég sækja fleiri tónleika en ég hef gert undan-
farin ár og ég mun skipuleggja gott ferðalag langt út fyrir
minn þægindahring.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Mér finnst Ljósanótt gera mikið fyrir
bæinn minn því þá breytist bærinn í borg
og gaman að sjá og finna alla gróskuna sem
er í gangi hjá íbúum bæjarins og einnig
er gaman að fylgjast með undirbúningi
fyrir hátíðina þar sem ótal margir taka
þátt hvort sem það eru skólarnir, menn-
ingin eða íþróttir fyrir utan alla hina, mér
finnst ég oft finna fyrir hve samtakamátt-
urinn er mikill í bænum í undirbúningi
fyrir þennan viðburð.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á
Ljósanótt?
Ég fer alveg pottþétt í Árgangagönguna
og ætla að reyna að skoða allar mynd-
listarsýningar sem eg kemst yfir og
að ég tali nú ekki um tónleikana, mér
finnst þetta allt svo spennandi að ég get
eiginlega ekki tekið neitt útúr.
Hver er besta minningin þín frá Ljósa-
nótt?
Mér finnst erfitt að velja bestu minninguna frá Ljósanótt
því ég á mjög margar góðar minningar ekki síst úr þeim
ferðum sem ég hef skipulagt og vel því að rifja upp eina
af gönguferðunum sem ég stóð fyrir.
Eitt árið græjaði ég sögugöngu í samstarfi við sr. Erlu
Guðmundsdóttur prestinn okkar og planið var að ganga
um bæinn með allskonar skemmtilegheitum m.a að koma
við í garðinum hjá henni og þiggja kaffi og með-því. Allur
undirbúningur gekk vel og svo þegar kom að deginum
þá mættu rúmlega 200 manns í gönguna sem liðaðist
einsog kröfuganga um bæinn en sr. Erlu brá svolítið í
brún þegar við 200 manns gengum inn götuna í garðinn
til hennar og var ekki alveg búin að græja meðlæti fyrir
200 manns en allt fór þetta vel og flestir bara ánægðir
með gönguna og fóru sáttir heim.
BÆRINN BREYTIST Í BORG Á LJÓSANÓTT
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
58 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM