Víkurfréttir - 31.08.2022, Qupperneq 48
„Þetta er félagsskapur fyrir alla sem hafa gaman af því að ferðast um náttúru Íslands og eiga
skemmtilegar stundir saman,“ segja þær Íris Sigtryggsdóttir og Karitas Sara G Haesler, talskonur
Melrakka. Í dag eru Melrakkar deild innan Akstursíþróttafélags Suðurnesja en svo gæti farið að Mel-
rakkar verði sjálfstætt félag þar sem starfsemi deildarinnar er mun meira í þá átt að vera ferðafélag
en íþróttafélag. Í Melrökkum ferðast fólk um á fjórhjólum og Buggybílum og hópurinn, sem telur um
eitt hundrað manns, er duglegur að skipuleggja ferðalög og viðburði.
Nú seint í ágúst fóru á annan tug
Melrakka í sex sólarhringa ferðalag
frá Reykjanestá og að Fonti á Langa-
nesi, horn í horn. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem félagar í Mel-
rökkum fara þessa leið en þetta er í
fyrsta skipti sem ferðalagið er tekið á
svona löngum tíma og er ekki kapp-
hlaup við klukkuna.
Á slóðir þar sem
heimilisbíllinn kemst ekki
Það sem sameinar fólk í Melrökkum
er ferðamátinn, fjórhjólin og buggy-
bílarnir. Það eru tæki sem komast á
þær slóðir sem hinn venjulegi heim-
ilisbíll fer ekki. Mikil áhersla er lögð
á virðingu við náttúruna og aldrei er
farið út fyrir slóða og þær stöllur, Íris
og Karitas, segjast svíða að sjá þegar
náttúrunni hefur verið spólað upp
á fjöllum, eins og sýnt hefur verið í
fjölmiðlum að undanförnu.
Ferðanefndin hjá Melrökkum
skipuleggur reglulegar ferðir um
landið, stórar sem smáar. Þá er fram-
undan fjölskylduferð þar sem börnin
eru tekin með í smá útivist, grillað
og haft gaman. Sumar ferðir eru
skipulagðar með löngum fyrirvara
á meðan hnoðað er í aðrar með nær
engum fyrirvara.
Margra mánaða skipulag
Melrakkar hafa nokkrum sinnum
farið horn í horn en leiðin er ekki
alltaf sú sama. Drög að ferðinni
núna voru lögð upp úr síðustu ára-
mótum. Þegar þátttaka liggur fyrir
þarf að skipuleggja leiðina og hvar
séu gistimöguleikar, hvar sé hægt
að taka eldsneyti og hvar sé hægt
að komast í mat, því það er tak-
markað sem hægt er að ferðast með
á hjólunum. Stundum þarf að koma
fyrir eldsneyti og vistum á leiðinni,
en þess þurfti ekki núna þar sem
ferðin var skipulögð með aðgengi
að bensínstöðvum, þó svo allir væru
með varabirgðir á hjólunum.
Ferðalagið núna hófst á Reykja-
nestá. Fyrsta gisting var í Hraun-
eyjum, síðan í Bárðardal og þar hófst
síðasti leggurinn út á Font á Langa-
nesi. Á bakaleiðinni var gist rétt við
Þórshöfn. Þaðan var farið að Lauga-
felli á miðhálendinu og síðasta nóttin
var svo í Húsafelli.
Spurðar hvort það hafi verið eitt-
hvað vesen eða bilanir, þá segja
þær að það hafi ekki verið. Eitt hjól
hafi bilað á bakaleiðinni og það hafi
verið skilið eftir í Varmahlíð. „Svo
eyðilagðist eitt dekk og það fór
hosuklemma hjá mér en það redd-
aðist allt. Dekkinu var bara reddað á
næsta bóndabæ,“ segir Íris. Karitas
bætir við að það sé óhjákvæmilegt
að það verði smá vesen en það séu
bara áskoranir fyrir hópinn. Það sé
bara leiðinlegt þegar einhver dettur
út úr hópnum með miklar bilanir.
„Þetta eru þaulvanir hjólarar. Þarna
erum við með bifvélavirkja, rafvirkja,
pípara, kokka. Það er öll flóran,
þannig að allir geta gert eitthvað,“
segir Íris.
Með náttúruna í fanginu
„Þetta er hrá ferðamennska. Það er
ekkert sambærilegt við þetta, nema
kannski ganga. Þú ert með náttúruna
í fanginu,“ segir Karitas þegar þær
eru spurðar um hvernig sé að upp-
lifa landið með þessum hætti, að fara
um það á fjórhjólum og buggybílum.
Í ferðinni horn í horn fékk hópurinn
gott veður mestan hluta leiðarinnar
en einnig rigningu og rok. Það var
þó ekki nema einn dagur sem var
þungu veðurfarslega, þegar verið var
að fara yfir Sprengisand. Íris segir
betra að vera á þungu hjóli þegar
keyrt er í miklum vindi, því það geti
verið áskorun að halda sér á hjólinu
í mesta vindinum. Þau segjast hafa
farið hratt yfir Sprengisand í því
veðri sem var þar, enda svo sem lítið
að sjá annað en sand og auðn.
Það er nauðsynlegt að vera
með góðar varnir þegar ferðast er
með þessum hætti. Góðir hjálmar,
brynjur, kragar, góðir gallar og skó-
búnaður skipta öllu. Þá er ekki verra
að hafa nýrnabelti til að taka álagið
Melrakkar horn í horn
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
48 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM