Víkurfréttir - 31.08.2022, Síða 42
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Íslands-
meistara Njarðvíkur í körfuknattleik
kvenna, hefur haft nóg fyrir stafni
í sumar og ferðaðist víða með fjöl-
skyldunni. Hann á margar góðar minn-
ingar frá Ljósanótt og segir mikilvægt fyrir
bæjarfélagið að eiga svona flotta hátíð.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
„Það er búið að vera nóg að gera í
sumar, blanda af fótboltaleikjum,
körfuboltaþjálfun og vinnu ásamt
smá fríi inn á milli þar sem við fjöl-
skyldan fórum í ferðalag til Norður-
Ítalíu og svo hef ég verið að finna
mig meira og meira á flugustöng-
inni með pabba í Eldvatninu.“
Hvað stóð upp úr?
Hvað kom skemmti-
lega á óvart í sumar?
„Ítalíuferðin var alveg
frábær og klárlega
hápunktur sumarsins.
Vorum á smá flakki
og heimsóttum sjö
mismunandi staði en
Feneyjar, Lake Garda og
Cinque Terre stóðu upp úr. Einnig
verð ég að minnast á skyndiferð
með eiginkonunni á Þjóðhátíð en
við fórum í eitt kvöld í Herjólfsdal
sem er alltaf geggjuð upplifun.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að
sækja heim innanlands?
„Það eru svo margir fallegir staðir
en ef ég þyrfti að velja einn þá er
það Eldvatnið í Meðallandi. Það er
algjör paradís, hvort sem það er í
veðiferð eða bara til þess að slaka
á með fjölskyldunni. Múlagljúfur er
svo kannski uppáhaldsferðamanna-
staðurinn, það er magnað að labba
þangað.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Veturinn verður skemmtilegur,
vinna í flugturninum, kenna hjá
Flugakademíu Íslands og svo auð-
vitað ætlum við í meistaraflokki
kvenna hjá Njarðvík að verja titilinn
og reyna bæta við í bikaraskápinn á
kveðjuárinu í Ljónagryfjunni. Þannig
það er nóg framundan ásamt því að
njóta með fjölskyldunni.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Mér finnst Ljósanótt ótrúlega
skemmtileg hátíð og það er virki-
lega mikilvæg fyrir okkur sem bæj-
arfélag að eiga svona flotta hátíð.
Það er eitthvað að gera fyrir alla og
hefur verið gaman að sjá hvernig
hátíðin hefur þróast í gegnum árin.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja
á Ljósanótt?
„Ég ætla mér að fara á nokkra tón-
leika, árlega kjötsúpan og árganga-
gangan. Svo er bara skemmtilegt
að taka röltið niður í bæ og finna
einhverjar faldar perlur.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Hvar á ég að byrja? Nokkur ár
á gamla Ný-Ung planinu á ungl-
ingsárunum voru skemmtileg , tón-
leikar með Hjálmum og Valdimar
eru minnistæðir en labbitúr í öll
hús Reykjanesbæjar með körfunni
í Njarðvík að selja Ljósanætur-
geisladiskinn er eitthvað sem
maður gleymir aldrei – Velkominn á
Ljósanótt!“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Ljósanótt er ótrúlega
skemmtileg hátíð
og mikilvæg fyrir okkur sem bæjarfélag
Fjölskyldan á Cinque
Terre sem er svæði á
ítölsku riveríunni.
Rúnar og Natasha Anasi á
Þjóðhátíð þar sem þau trúlofuðu
sig fyrir fjórum árum.
Rúnar hefur verið að spreyta
sig á fluguveiði í sumar
með góðum árangri.
Harper Eyja Rúnarsdóttir
pósar í Feneyjum.
Það er ekki ofsögum sagt að
Múlagljúfur sé magnaður staður.
Ljósmyndir úr safni Rúnars Inga.
42 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM