Rökkur - 01.10.1922, Page 6

Rökkur - 01.10.1922, Page 6
mína — og kannske allra , er þar voru, að ég þá fyrst fyndi til, vissi af návist, nærveru sálar íslands. Mér fannst, þegar ég leit á silfur- hærur öldungsins, að hann væri þar sem fulltrúi íslands, beztu manna íslands, fulltrúi alls þess, sem ísland hefir átt og á bezt, full- trúi þess fegursta, sem íslenzkur andi og hönd hefir skapað: íslenzkra lista. Og ég á þar ekki eingöngu við tónlist, málara- og myndhöggv- aralist og ljóðlist, heldur „alla orðsins list“ (Á. P.), allar íslenzkar listir að fornu og nýju, frá því víkingurinn skar út drekahöfuð á framstafn skips síns, og þangað til Ásgrímur málaði Krist á fjallinu. Mér fannst, á þeirri stund, að það eitt, að sjá öldunginn silfurhærða, hefði orðið þess valdandi, að ísland hefði birzt að nýju þessum hóp, ísland, sál þess, að fyrir hann hefðum við öll litið það að nýju, feg- urra en áður, margfallt fegurra. Og ég skildi þá, betur en nokkru sinni fyrr, að enginn veit, hvað átt hefir, fyrr en misst er. Því að mér fannst sál öldungsins vera ímynd, endurmynd íslenzku þjóðsálar- innar, sálar fslands, vera hún, vera ísland sjálft, ef ég má svo að orði komast, ísland sjálft, eins og það er fegurst. Og mér fannst þá einnig, að ísland hlyti á þeirri stund, að hafa eignast aftur að nokkru leyti eða öllu, hverja þá sál, er þar var, sem var því glötuð. Og þó ég ef til vill reikni skakkt, þá urðu áhrifin þannig á sál mína. Og síðan hefi ég oft hugsað um silfurhærur öldungsins, daglega, á hverri and- vökunótt. Og ég lýt þessum silfurhærða öldung og þakka honum í huga mínum. Og nú, er ég hugsa um gömlu, góðu dagana heima á Fróni, og gömlu, góðu mennina, beztu syni íslands, kemur aftur fram í huga mér orði: Silfurhærur. Ég minnist Gröndals og Matthiasar — og föður míns. Ég minnist þeirra og margra fleiri, í hvert skipti og ég hugsa um það orð. En ég ætla í þetta skipti aðeins að tala um þann, sem ég þekki bezt, ef til vill skildi bezt og áreiðanlega unni mest. Það má vel — og það var oft gert — heimfæra upp á þá alla þessi vísuorð: Elli, þú ert ekki þung Anda guði kærum, Fögur sá er ávallt ung Undir silfurhærum. En þau áttu ekki sízt við um þann, sem orti þau. En ég ætla ekki að ræða um skáldskap hans, um þýðingar hans eða um hann 6

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.