Rökkur - 01.10.1922, Page 7

Rökkur - 01.10.1922, Page 7
sem kennara. Um allt þetta hafa mætir menn skrifað og ljóð hans eru yður kunn og þýðingar. Ég ætla aðeins að mæla fáein orð um manninn Steingrím Thorsteinsson. Um venjur hans, dag- legt líf hans, hvernig hann orti, hvað hann mat mest, hvað ítak átti í sál hans, minnast fornra atvika, sem ef til vill gætu varpað dálitlu ljósi á líf hans, sem að minnsta kosti tvo síðustu áratugi æfi hans, var mörgum að meira eða minna leyti lokuð bók. Því að hann var maður, sem oft mátti um segja: Hann fór einn. Mér liggur við að segja, að hann hafi viljað fara einn, þó að sál hans hafi æ sótzt eftir hverjum geisla úr ljósbreiðu hvers andans snillings, er hann kynntist af bókum. Hann fór ekki einn í andlegum skilningi. Með honum var æ heil hersing. En samt fór hann einn, í vissum skilningi, til þess ef til vill, að geta notið í næði þeirrar samveru, dvalar sinnar í sálargörðum and- ans mikilmenna, þeirrar samveru, sem bezt er, hugðnæmust. Og ég ætla einnig að mæla nokkur orð um þá manneskju, sem án efa skildi hann bezt, reyndist honum bezt og unni honum mest. Þá manneskju, sem snerti hverja bók hans með lotning, sem gekk um hljóðlega, ef hann tók sér penna í hönd, og lét kyrrðina ríkja í kringum hann, þegar hann þurfti kyrrðar með; þá manneskju, sem sjálf hirti gamla skrifborðslampann hans, jafnaði kveik og kveikti á og fyllti olíu; þá manneskju, sem lét lampa hans loga, ekki eingöngu skrifborðslampa hans, heldur og lampa sálar hans, í ást, kærleika og lotning, hverja stund, hvern dag, löng árin, meðan hún beið þess, að hún gæti orðið honum samferða, í andlegum skilningi, sem og tókst. Og honum skildist æ betur, eftir því sem samvistarárunum fjölgaði, að hún, sem lét lampa hans loga, var ljósgjafi sálar hans, að sál hennar var eins fögur og hin fegursta sál, sem hann hafði ort um, lesið um, þýtt um. Sú manneskja var móðir mín. Eftir inngang þenna, kæru tilheyrendur, vil ég biðja yður að skreppa með mér liðug tuttugu ár aftur í tímann, skreppa með mér til Reykjavíkur, eins og hún var skömmu eftir aldamótin, þegar faðir minn var nýorðinn sjötugur, og ég var aðeins barn að aldri, um sex, sjö ára gamall. Og ég vil leitast við að skýra lítilsháttar mynd- ina af æskuheimilinu mínu þá, segja yður frá ýmsu, sem að vísu er stundum hulið þoku, en sem allt af birtist að nýju, þegar ég finn sálir foreldra minna í nálægð minni, þegar þær sveipa burt þok- 7

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.