Rökkur - 01.10.1922, Page 21
Skógareldur
Hér á skóggyðjan heima, hér og hvergi annars staðar.
Hér eru lönd hennar og ríki. Hér er höllin hennar, hér á
Skuggavatnsbökkum.
Þú ættir að líta hana, þessa ilmandi, grænu, angandi skógarhöll
— um sólsetursbil.
Sólin er eldrauð og varpar geislum á vatnið, fyrir framan höll-
ina. En á vatninu synda svanir, fannhvítir svanir, eins og snjórinn
á efstu jökulgnípunni, þar sem engin mannleg vera hefur stigið
fæti sínum.
Þeir brosa til kvöldsólarinnar, brosa til hennar og syngja um hana.
Hún er undurfögur þetta kvöld, og þokuhnoðrana í vestrinu
hefir hún gullbrytt og sparibúið.
Því lengur sem ég hugsa um hann, því undarlegri finnst mér
hann, líf hans og allt, sem við hann er tengt.
Það var einmitt á svona kvöldi, sólhlýju vorkvöldi, sem ég rakst
á hann fyrst. Það var skömmu eftir sólarlag, í Ásskóginum, þar sem
hann er dimmastur.
Hann kom svo hljóðlega. Eg varð hans ekki var, fyrr en við stóð-
um augliti til auglitis.
Hann virtist vera gamall maður. Andlitið var raunalegt, ennið
hátt, skær, glampandi augu.
Hann brosti við, svo undarlega, eins og gamlir menn einir geta
brosað.
En brosið hvarf von bráðar. Það kom einskonar tignarsvipur á
andlit hans. Hann benti með hendinni út yfir skógarásana og mælti:
„Þetta eru lönd mín og ríki. Ég er konungur skógarins."
Hann leit á mig með fyrirlitningu og bætti við:
„Ég hefi gengið um skógana í alla nótt og allan dag. Ég er búinn
að telja daggardropana á laufum trjánna. Þeir eru perlur, dýrindis
gimsteinar. Og þessar perlur á ég, því þetta land, sem þú stendur á
21