Rökkur - 01.10.1922, Side 34

Rökkur - 01.10.1922, Side 34
hana alla. Hún beygir sig niður að honum, kyssir hann og segir: Góða nótt, ástin mín! Daginn eftir er hann veikur. Hann hefir hita. Samstundis fer hann til læknis og lætur hlusta sig. Læknirinn er hár maður vexti og alvarlegur og hlustar hann með mikilli nákvæmni. „Nú megið þér fara í.“ Læknirinn gengur út að glugganum, þungt hugsandi. „Er það nokkuð alvarlegt?" spyr Gunnar. „Það er brjósthimnubólga. Þér verðið að leggjast á spítalann." Hann sagði lækninum allar ástæður sínar. „Ég get ekki séð, að það sé neitt vit í, að þér farið, fyrr en þér hafið náð fullri heilsu. Hún er dýrmætasta eign allra manna. Fyrst og fremst verðið þér að taka tillit til hennar. Það er nú mín skoðun.“ „Það verður þá svo að vera,“ mælti Gunnar. — Hann kvaddi og fór. Áður en hann flytur af gistihúsinu, skrifar hann annað skeyti. Þjónninn tekur við því og lofar að senda það. Þrjár vikur eru liðnar. Og bráðum eru blessuð jólin komin. Honum er óðum að batna. „Systir!“ kallar hann. Nunnan gengur til hans. „Nú má ég víst lesa dálítið í dag.“ „Já. Nú megið þér lesa dálitla stund,“ segir hún alúðlega. Hún kemur með „Kristeligt Dagblad". — Hann les um styrjöldina. Sama þófið á landi. Þjóðverjar hafa verið að sökkja ýmsum skipum upp á síðkastið. Blaðið veit með vissu um þrjú dönsk skip síðasta mánuðinn. Eitt þeirra var „Úranía“. — Og hugurinn flaug til Gösku. Síðasti dagurinn á spítalanum. Hann hefir kvatt systurnar og kunningja sína á spítalanum. Það var aðfangadagskvöld og hann er boðinn til íslenzkra hjóna um jólin. 34

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.