Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 40

Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 40
„Þrjú ár á hvalaveiðum.“ „Reynt margt, gefið þig að mörgum störfum?“ „Ég á aðeins eitt óreynt.“ „Hvers vegna?“ „Svo eru forlög mín.“ Öldungurinn yppti öxlum. „En mér virðist þú of gamall til þessa starfs.“ „Herra!“ sagði öldungurinn skyndilega. Rödd hans titraði og honum var mikið niðri fyrir. „Ég er mjög þreyttur. Ég hefi reynt margt um dagana. Og þetta er einmitt það, sem ég hef þráð mest. Ég er gamall orðinn. Ég þarfnast hvíldar. Ég vildi geta sagt við sjálfan mig: Hér skaltu dvelja fram á aldurtilastund. Loks hefirðu náð í höfn. — Herra! Það er undir yður komið. Svona tækifæri býðst mér aldrei aftur. Hvílík heppni, að ég var staddur í Panama. Ég bið yður sem Guð mér til hjálpar. Ég er sem fleyið, er djúpið mun geyma, komist það ekki í höfn. Þér getið gert gamlan mann hamingjusaman. Ég sver ég er ráðvandur. Ég er þreyttur á öllu flakki.“ Það skein slík einlægni úr bláu augunum öldungsins, að Falcon- bridge ræðismanni hitnaði um hjataræturnar. „Gott og vel. Ég tek umsókn þína gilda. Þú ert vitavörður frá þessari stund.“ „Ég þakka yður.“ „Geturðu farið út í dag?“ »Já.“ „Far vel, þá. Aðeins eitt: Rækiðu ekki starf þitt svo vel fari á, verður annar tekinn í þinn stað.“ „Ég skil það.“ Sama kvöldið, þegar sólin var hnigin til viðar, á þessum slóðum, þar sem rökkur þekkist ekki, hóf vitavörðurinn nýi starf sitt. Frá vitanum bárust glampar út á sjóinn. Kvöldið var kyrrt. Það var eins og kvöld í hitabeltinu eru svo oft. Kringum mánann var baugur með öllum regnbogans litum. Og flóðið eitt hreyfði sjóinn. Skavinski stóð á svölunum og frá sjónum mun hann ekki hafa sýnzt nema agnarstór. Hann reyndi að safna mörgum hugsunum í einn farveg. Hann hugsaði um sjálfan sig og þessa nýju stöðu. En það var enn mara í huga hans og hver hugsun lömuð. Fyrir honum var líkt ástatt og veiðidýrinu, sem elt hefur verið ósleitilega og kapplega og skyndilega finnur skjól og felustað í helli. Loksins, loksins átti hann kyrra stund. Tilfinning um öruggleika fyllti sál 40
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.