Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 84

Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 84
„Ég ætla bara að tína nokkrar sóleyjar, mamma,“ kallaði hann. Þórunn beygði sig niður og fór að þvo. Hún strauk hárið ljósa frá augunum. Hátt og hvelft enni kom í ljós, stór, bládjúp augu. Andlitið bar öll merki hreinnar fegurðar. í því voru allir drættir hreinir og skírir. Fyrr hafði skinið ást út úr því, ást til alls þess, sem andaði, og gott var og fagurt. En nú — aðeins ástin til drengsins litla — í djúpri þreytu, andlegri og líkamlegri. Það skein út úr andliti hennar, að innra fyrir var háð barátta, hörð barátta, milli meðfædds æskufjörs — og þreytunnar, vonleysisþreytunnar, sem smám saman sljóvgaði sálarkrafta hennar.------ „Mamma! Mamma! Nú kem ég!“ — Hún horfði á litla, bláeyga glókollinn sinn. Hann kom hlaupandi til hennar með fífla og sóleyjar í fanginu. — „Mamma! Vaxa fíflar og sóleyjar í Ameríku?“ Þórunn horfði á hann undrandi, dálítið hörkulega, en hann á hana með sakleysisbrosi á vörum. „Því spyrðu þess, barnið mitt?“ spurði han og gat varla dulið klökkvann í röddinni. — Tumi svaraði engu strax. Hann var að vísu ekki heimspekilega vaxinn, en hann vissi þó sínu viti, þó lítill væri. — Tumi var aðeins á níunda árinu. — Hann var að brjóta heilann um, hvort hann hefði sagt nokkra vitleysu. »Ég þegi,“ hugsaði hann. „Það er vissara,“ sagði rödd þráans í huga hans. Móðir hans strauk hár hans blíðlega. Blíðuatlot hennar gat hann ekki staðizt. Hann lagði hendurnar litlu um háls hennar. „Segðu mér, hvers vegna þú spurðir, Tumi minn.“ „Það var á laugardaginn, mamma, þegar ég fór að gráta,“ byrjaði hann. Hún minntist þess, sem þá hafði gerzt, þess, sem hún vissi deili á. — Það var, þegar þau úr Holti komu úr kaupstaðnum. Þau stóðu við um stund hjá henni. Inga litla, dóttir Holtshjónanna, var með þeim, telpa á að gizka tíu, ellefu ára gömul, ljóshærð og bláeyg, eins og Tumi. Hún sat á hné föður síns meðan hann drakk kaffið. Tumi stóð úti við dyr og horfði á hana. Og hún hvíslaði að föður sínum, með þýðu, hljómfögru röddinni: „Á hann engan pabba?“ Tumi átti ekki að heyra það. En hann heyrði það nú samt. Og hann beit á vörina, vildi láta það sjást, að hann væri karlmaður, og færi ekki að gráta, þó eitthvað bjátaði á, eins og lítil telpa. Faðir Ingu litlu hafði engu svarað. Svo fór mamma hans fram til þess 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.