Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 15

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 15
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 1514 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 Blaðið skýrskotar strax í upphafi til fag­ og stéttar vitundar. Til dæmis er á fyrstu árum birtur nafna listi yfir þær ljósmæður sem greitt hafa félags­ gjöld sem og þær sem greitt hafa fyrir blaðið. Þá er sterk krafa um bætt kjör, enda var það ein helsta kveikjan að stofnun félagsins. Í blaðinu eru fluttar fréttir af starf semi félagsins og þróun fagsins á hinum Norður löndunum borin saman við okkar nám og starfsvið. Krafan um aukna menntun er skýr og sömuleiðis er kallað eftir aukinni endur menntun fyrir eldri ljósmæður. Oft voru læknar og lækna­ nemar höfundar að fræðslugreinum sem ýmist voru frum samdar eða þýddar. Dæmi um titla frá fyrstu ár göngum blaðsins eru: Brjóstabörn og pela börn, Betra er heilt en vel gróið, Blóðlát um og eftir tíða­ lokin, Heilsufar og matarhæfi kvenna um með­ göngu tímann, Nokkrar hugleiðingar um lögmál og gang eðlilegrar fæðingar, Hvað þarf ljósmóðir að vita um grindar hols mein semdir, Um meðferð sitjanda­ fæðingar, Fimmburarnir frægu frá Ontario, Um fóstur eyðingar, Eftirlit með vanfærum konum og börnum á fyrsta ári og Hvenær á ljósmóðir að leita læknis aðstoðar í fæðingu? Árið 1928 tók Jóhanna Laufey Friðriksdóttir, fyrsta yfirljósmóðir Fæðingardeildar Landspítalans við ritstjórn blaðsins. Hún kvartar sáran yfir því í lok fjórða áratugarins hve sjaldan „nokkurt orð eða efni“ berist frá stéttarsystrum sínum í Ljósmæðrablaðið. Greinaskrif hafa eflaust vaxið þeim í augum eins og fleiri kynsystrum þeirra á fyrstu áratugum liðinnar aldar. Í minningarorðum í Ljósmæðrablaðinu 1956 segir Jóhanna Friðriksdóttir til dæmis um Þórdísi Carlquist: Vel kunni hún að koma fyrir sig orði og hreyf menn mjög með frásagnargleði sinni, má vera að í henni hafi búið allmikil skáldskapargáfa, þó þess hafi ekki gætt á pappírnum. Til gamans má geta þess að allar þær ljósmæður sem unnu að stofnun Ljósmæðrablaðsins voru sæmdar fálkaorðunni, æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir: Þórunn Á. Björnsdóttir (1859–1935) árið 1922, Þuríður Bárðardóttir (1877–1955) árið 1938, Þórdís Elín Jónsdóttir Carlquist (1879–1956) árið 1940 og Jóhanna Laufey Friðriksdóttir (1889–1962) árið 1944. Jó ha nn a Fr ið rik sd ót tir , r its tjó ri Lj ós m æ ðr ab la ðs in s fr á 19 28 -1 9 6 1. Endurtekin auglýsing í Ljósmæðrablaðinu á 3. og 4. áratug 20. aldar. Ritstjórar hringborðsins Í tilefni af þessum merku tímamótum í sögu Ljós­ mæðra blaðsins ákváðum við (tilvonandi ritstjórar) að bjóða ritstjórum síðustu ára til hringborðsumræðna. Mættar voru Ólafía M. Guðmundsdóttir, ritstjóri frá 2001­2003, Valgerður Lísa Sigurðardóttir, ritstjóri frá 2004­2007, Hrafnhildur Ólafsdóttir, ritstjóri frá 2010­2016 og Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ritstjóri frá 2017 til 2022. Við byrjuðum á því að spyrja þær hvað hafi ein­ kennt þann tíma sem þær gegndu ritstjórastarfinu og hvað hafi verið þeim minnisstæðast. ólafía Ég byrjaði sem ritstjóri árið 2001 og það má kannski segja að við það hafi ég kynnst starfi félagsins vel. Þegar Ástþóra hætti sem for maður ákvað ég að gefa kost á mér í það em bætti en náði ekki að losa mig við blaðið. Þarna var ný búið að flytja ljós mæðra námið yfir í há skólann og ég fékk Ólöfu Ástu með mér í rit stjórnina til að styrkja þennan fræðilega grunn. Helga Gott- freðs dóttir kom svo seinna inn í þetta líka en fyrsta ritrýnda greinin sem birtist í blaðinu árið 2001 var einmitt eftir hana og var um viðhorf kvenna til mæðraverndar. Á þessum árum var sterk umræða í Ljósmæðrablaðinu um vaxandi áhyggjur af tæknivæðingu og hraða í fæðingum. Í einum af ritstjórnarpistlum Ólafíu segir: „Nú á dögum eru kröfurnar um að allt gerist á ljóshraða of háværar til að við náum að fylgja þeim eftir. Eðli starfs okkar samrýmist ekki þessu hugtaki – ljóshraði. Við þurfum að finna mótvægi við þetta hugtak, til dæmis mætti nota orðið ljósmóðurhraði.“ Þá er áhugavert að lesa það sem hún skrifar á þessum tíma um vinnu­ tímann, hún segist vera orðin langeyg eftir styttri vinnuviku fyrir vaktavinnufólk, eftir 25 ára reynslu. ólafía Já, ég byrjað snemma að tala um þetta með vaktirnar. Þetta var líka mín persónuleg reynsla. Ég var einstæð móðir í 100 prósent vaktavinnu og það var náttúru lega bara ekkert venjulegt. Í mínu tilfelli hafði ég góða hjálp, verandi í tún- fætinum hjá foreldrum og systur minni. En þetta tók 20 ár. Og þetta með hraðann, á það ekki enn við? Ég var búin að gleyma þessu, þarna hef ég greinilega dottið í gírinn. Þá er eftirtektarvert að á þessum árum var raun veru ­ legur ótti um félagið okkar; að það myndi hrein lega lognast út af eða renna saman við félag hjúkrunar­ fræðinga. Árið 2000 skrifar Dagný Zoega þáverandi ritstjóri í pistli sínum: „En það er alvarlegra með fé lagið okkar. Í það vantar ljósmæður og ef áfram heldur sem horfir blasir við að Ljósmæðrafélagið hverfi í sam einingu við Hjúkrunarfélag Íslands. Það er sorg­ legra en tárum taki að eitt elsta stéttarfélag landsins þurfi að berjast svo fyrir tilveru sinni. Kannski er líkt á komið með Ljósmæðrafélaginu og öðrum öldruðum þegnum landsins – stefnan virðist vera sú að þegar þeir eru búnir að vinna fyrir okkur mega þeir bara … það sem úti frýs. Til að finna sig í Ljósmæðrafélaginu er nauðsynlegt að vera Ljósmóðir – ekki einungis vinna við ljósmóðurstörf.“ ólöf ásta Þetta átti sér langan aðdraganda, eða frá því árið 1982 þegar forkrafa fyrir ljósmæðranám varð hjúkrunarpróf og hjúkrunarfræðingar voru ekki allir áfjáðir í að skipta um félag. Það var líka þetta með einkahugsunina, að fá kannski meira út úr því að vera í hjúkrunarfélaginu. ólafía Það skipti líka máli að við vorum í BSRB, fyrir suma hjúkrunarfræðinga var það mikilvægt. Og svo var um ræða um að félagsgjöldin væru of há. Maður þarf auðvitað að leggja meira á sig í litlu félagi. valgerður Ég man að Ástþóra, sem var formaður þegar við í fyrsta árgangi ljósmæðra úr há- skólanum út skrif uðumst, hún bauð okkur nemunum heim til sín. Þetta var mjög hátíð legt og við fengum ljósmæðra tal og ljósmæðra pípu. Þarna var verið að vinna í því að fá okkur í félagið. ólöf ásta Maður heyrir þessar vangaveltur helst í kjarabaráttu. Hvort við séum of fáar, hvort það sé grundvöllur fyrir blaðaútgáfu, hvort það eigi ekki að stefna að rafrænni útgáfu eingöngu. En í heildina séð eru allir sammála því að halda þessu félagi gangandi þótt það sé svolítið mál og við fáar. Valgerður Lísa, Ólöf Ásta, Rut, Ólafía og Hrafnhildur við hringborðið, Steinunn tók myndina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.