Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 4

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 4
347 sem hafa þarf í huga varðandi samráð, mat á afleiðingum löggjafar o.fl. Þá verði leitað eftir samstarfi við skrifstofu Alþingis um útgáfu leiðbeininga um gerð stjórnarfrumvarpa og dómsmálaráðherra falið að gefa út leiðbeiningar um undirbúning reglugerða. Fyrir 1. september 2007 ber hverju ráðuneyti að setja saman tveggja ára áætlun um einföldun og samræmingu löggjafar á þeim sviðum sem undir þau heyra. Forsætisráðherra mun hafa yfirumsjón með aðgerðaáætluninni en honum til aðstoðar verður samráðshópur ráðu- neyta, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins auk ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur. Í áðurnefndum gátlista við samningu stjórnarfrumvarpa eru nefnd fimm atriði sem athuga ber sérstaklega: Í fyrsta lagi nauðsyn lagasetningar, í öðru lagi hvort samning frumvarps hafi gefið tilefni til að meta hvort það sam- rýmist stjórnarskrá og ef svo er hvaða ákvæðum hennar, í þriðja lagi hvort samþykkt frumvarpsins leiði með einhverjum hætti til einföldunar opinbers regluverks eða stjórnsýslu og í fjórða lagi hvort haft hafi verið samráð við aðila utan ráðuneytisins við undirbúning frumvarps. Í fimmta lagi er loks liður sem nefnist „mat á áhrifum“ og eru þar tilgreindir fjórir undirliðir: (1) mat á kostnaðaráhrifum fyrir ríkissjóð, (2) mat á áhrifum á tekjur og útgjöld sveitarfélaga af samþykkt frumvarps, (3) mat á grundvelli laga nr. 27/1999 um opinberar eftirlitsreglur og (4) annað. Hugmyndin um að fylgt verði sérstökum gátlista við samningu stjórnar- frumvarpa er góð og tímabær. Þá er æskilegt að slíkur gátlisti verði jafnan hafður til hliðsjónar við samningu lagafrumvarpa hvort sem um stjórnar- frumvörp eða önnur lagafrumvörp er að ræða. Við þá lýsingu efnisatriða sem fram kemur í gátlistanum mætti kannski gera þá athugasemd að þegar til kastanna kemur þyrfti hún að vera nákvæmari um sum atriði til að auka líkurnar á að árangur náist. Þá er ástæða til að huga að því að útfæra þar sérstaklega hugmynd umboðsmanns Alþingis um stjórnsýslumat við undir- búning lagafrumvarpa. Ótvírætt er að það myndi í senn stuðla að því að áhrif nýmæla og lagabreytinga á störf stjórnsýslunnar yrðu metin fyrirfram og auka réttaröryggi borgaranna þegar reynir á nýjar reglur í framkvæmd. Róbert R. Spanó
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.