Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 22

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 22
365 erfitt að vernda þegar þau eru notuð fyrir eins eða líkar vörur og þegar eru auðkenndar með vörumerki. Til samanburðar má nefna vísbendandi92 eða leiðandi merki, en erfitt get- ur verið að skilgreina mörkin milli þeirra og hreinna lýsandi merkja. Gott dæmi um vísbendandi vörumerki er Top Secret fyrir hártoppa.93 Líta má á það sem sterkt vísbendandi merki vegna hins gamansama þáttar þess og því verður línan á milli vísbendandi og sterkra merkja óljós. Mörkin milli þess hvenær merki getur talist vísbendandi og hvenær lýsandi eru þó algeng- ara álitaefni.94 Meginreglan er sú að ekki skuli synja umsókn um skráningu vísbendandi merkja þar sem þau hindra ekki samkeppnisaðila í að koma sínum eigin vörum eða þjónustu á framfæri. Þetta var staðfest í niðurstöðu áfrýjunarnefndar skráningarskrifstofu ESB í svokölluðu Oilgear-máli frá árinu 1998,95 þar sem óskað var skráningar fyrir m.a vökvadælur og hreyfla. Þar kom einnig fram að fyrirtæki hafi lögmæta hagsmuni af því að nota vís- bendandi eða leiðandi merki þar sem þau gefa til kynna tengsl við starfsemi, vörur eða þjónustu fyrirtækisins. Í öðrum úrskurði frá árinu 1998 fjallaði áfrýjunarnefnd skráningarskrifstofunnar um merkið Netmeeting96 fyrir m.a. tölvuforrit og margmiðlun. Nefndin hélt því fram að munurinn á lýsandi og vísbendandi vörumerkjum væri ljós. Vörumerki væri vísbendandi þegar það vísaði á óbeinan hátt til ákveðins eiginleika vöru eða þjónustu eða þegar neytandinn þyrfti að hugsa sig um til að átta sig á því að vísbendingarnar eigi við tiltekna vöru. Þetta hefði hins vegar ekki í för með sér að vísbend- andi merki ætti að skoða sem sérstaka gerð vörumerkja sem væru alltaf hæf til skráningar sem slík.97 92 Enska: Suggestive Marks. 93 Lassen, B. S. og Stenvik, A.: Oversikt over norsk varemerkerett, 2. útg., endurskoðuð, Institutt for privatrett, Osló 2003, bls. 86. 94 Í úrskurði íslensku áfrýjunarnefndarinnar í vörumerkja- og einkaleyfamálum frá 28. apríl 1992 var niðurstaðan sú að merkið Powerware, fyrir sérhæfðan búnað í flokki 9 í vöruskrá, væri vísbendandi og til þess fallið að vekja hugsanatengsl við vöru sem tengdist afli, krafti eða orku með einum eða öðrum hætti. Vegna hinnar víðtæku og mismunandi merkingar orðsins „power“, eftir því í hvaða samhengi það væri notað, taldi nefndin ekki unnt að líta svo á að það að kenna vöru eða búnað við „power“ lýsti gæðum, ástandi eða eiginleikum vörunnar eða búnaðarins. Þá var sagt í ákvörðun vörumerkjaskrárritara nr. 11/1996, um skráningarhæfi merkisins Naggur fyrir matvörur, að orðið „naggur“ gæti verið vísbendandi um stærð vöru en jafnframt skyldi líta til þess að orðið væri margrætt, þ.e. hefði fleiri en eina merkingu. Loks var tekið fram í úrskurði áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar frá 22. nóvember 2004 í máli nr. 12/2004, um mat á því hvort merkið Silk Essentials væri lýsandi fyrir tilteknar hreinlætisvörur, að merkið væri hugsanlega vísbendandi fyrir einhverjar þær vörur sem sótt var um skráningu á en ekki lýsandi fyrir neina þeirra þannig að það kæmi í veg fyrir skráningu þess hér á landi. www.els.is 95 Úrskurður R 36/1998-2 frá 22. september 1998, Oilgear, 10. mgr. 96 Úrskurður R 26/1998-3 frá 27. nóvember 1998, Netmeeting. 97 Sami úrskurður, 24.-25 mgr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.