Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 25
368 ir tyggigúmmí, væri lýsandi.106 Þessi samsetning tveggja venjulegra enskra orða, án nokkurs frumleika eða hugmyndaauðgi, bæri væntanlegum neyt- anda strax þau skilaboð að varan innihéldi tvöfalt venjulegt magn af myntu eða það væri bragðbætt með tveimur tegundum myntu. Orðið Doublemint væri því lýsandi fyrir tiltekna eiginleika vörunnar og ekki skráningarhæft sem vörumerki fyrir þessa vöru skv. c-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar. Nefndin benti á að önnur hugsanleg merking orðhlutanna í Doublemint skipti ekki máli og sagði að þegar meta skuli hvort merki sé lýsandi megi ekki nota vélrænt niðurstöður úr orðabók án þess að taka tillit til viðskipta- legs raunveruleika eða hvernig ætlunin sé að nota vörumerkið.107 Í desember 1999 fjallaði áfrýjunarnefnd um hvort skrá mætti merkið Ins- tant Internet, fyrir hugbúnað sem ætti að auðvelda aðgang að samskipta- og upplýsinganetum og hugbúnaðarþjónustu.108 Nefndin hélt því fram, líkt og í Baby-Dry-málinu, að þrátt fyrir að hin áfrýjaða ákvörðun nefndi aðeins til- tekið ákvæði 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar væri ljóst af forsendum hennar að annað ákvæði 1. mgr. skipti einnig máli. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að Instant Internet lýsti gerð og áætlaðri notkun vörunnar eða þjón- ustunnar sem um var rætt og væri því ekki skráningarhæft skv. c-lið 1. mgr. Nefndin benti ennfremur á að merkið skorti sérkenni skv. b-lið 1. mgr., en ákvað þrátt fyrir þetta, í ljósi dóms undirréttar í Baby-Dry-málinu frá 8. júlí 1999, að rétt væri að vísa málinu aftur til skráningaryfirvalda til að fjalla um áunnið sérkenni merkisins við notkun skv. 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar.109 Í janúar 2000 fjallaði áfrýjunarnefnd um hugtakið Easybank, en sótt var um það sem vörumerki fyrir m.a. nettengda bankaþjónustu.110 Nefndin tók í grundvallaratriðum þá afstöðu að hugtakið Easybank væri lýsandi og skorti sérkenni og félli því undir ákvæði b- og c-liða 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar. Hugtakið Easybank var talið einföld samsetning tveggja enskra orða, venju- leg og laus við tvíræðni, og viðskiptamenn banka, sér í lagi þeir sem væru eftirtektarsamir, mundu skynja merkið sem lýsingu á eðli þeirrar þjónustu sem í boði væri en ekki sem vísun til viðskiptalegs uppruna. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að umrætt hugtak fæli augljóslega í sér lýsandi upplýs- ingar sem greinilega bentu til gerðar, gæða og þjónustu banka á netinu. Því var hugtakið óumdeilanlega talið vera lýsandi fyrir nettengda bankaþjón- ustu.111 Í mars 2000 komst áfrýjunarnefnd að því að hugtakið New Born Baby, fyrir brúður og fylgihluti þeirra, væri lýsandi í skilningi c-liðar 1. mgr. 7. gr. 106 Úrskurður R 216/1998-1 frá 16. júní 1999, Doublemint. 107 Sami úrskurður, 10.-11. mgr. 108 Úrskurður R 124/1999-1 frá 22. desember 1999, Instant Internet. 109 Sami úrskurður, 12. og 18. mgr. 110 Úrskurður R 316/1999-3 frá 31. janúar 2000, Easybank, 25. og 27. mgr. 111 Mál nr. T-87/00, Bank für Arbeit und Wirtschaft AG v OHIM, frá 5. apríl 2001, (2001) ECR II-1259, 7. og 18.-19. mgr. (Easybank).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.