Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 34

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 34
377 an hátt, þ.e. að orðið mætti skilja almennt sem vísbendingu um evrópska hágæðavöru og þjónustu. 5.5.2.2 Dómar dómstólsins Næsti dómur dómstólsins sjálfs í kjölfar Baby-Dry sem snerist um túlkun á ákvæði c-liðar 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar er dómurinn í Doublemint- málinu frá október 2003.146 Dómstóllinn hnekkti þar dómi undirréttarins, sem taldi augljóst að hugtakið Doublemint væri skráningarhæft þar sem það væri margrætt, a.m.k. fyrir enskumælandi neytanda, og því væri merkið ekki lýsandi skv. c-lið 1. mgr. 7. gr. Í þessu máli vakti dómstóllinn aftur athygli á að það væri í almannaþágu að synja umsókn um skráningu lýsandi tákna svo allir gætu notað þau. Í þessu samhengi vísaði dómstóllinn til Windsurfing Chiemsee málsins og Linde-málsins147 þar sem dómstóllinn mat skráningarhæfi merkja í þrívídd fyrir m.a. armbandsúr. Þá komst dómstóllinn að því í Doublemint-málinu að undirrétturinn hefði spurt rangrar spurningar þegar hann kannaði hvort orðið Doublemint væri eingöngu eða fullkomlega lýsandi. Dómstóllinn benti á að ekki væri nauðsynlegt að orð væru notuð á lýsandi hátt, nóg væri að orð- in gætu verið notuð þannig og að ein hugsanleg merking vörumerkisins gæfi til kynna eiginleika vörunnar.148 Rök undirréttarins um að ekki mætti synja umsókn um skráningu skv. c-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar voru þau að tákn sem hefðu meira en eingöngu lýsandi merkingu væru hæf til skráningar sem Evrópuvörumerki og að orðið Doublemint væri ekki hægt að skilgreina sem eingöngu lýsandi. Því tók undirrétturinn þá afstöðu að ákvæði c-liðar 1. mgr. 7. gr. yrði að túlka þannig að það útilokaði skráningu vörumerkja sem væru eingöngu lýsandi fyrir vöru og þjónustu eða eðli hennar. Dómstóllinn hélt því fram að undirrétturinn hefði notað viðmið um hvort merkið væri eingöngu lýsandi, en það væru ekki þau viðmið sem ákvæði c-liðar 1. mgr. 7. gr. kvæði á um. Því hefði undirréttinum ekki tekist að tryggja að aðrir gætu notað orðið til að gefa til kynna eiginleika vöru sinnar og þjónustu og hefði því haft rangt fyrir sér um efni ákvæðis c-liðar 1. mgr. 7. gr.149 Í Doublemint-málinu vísaði dómstóllinn ekki beint til Baby-Dry-dómsins en Jacobs aðallögsögumaður bar saman hugtökin Doublemint og Baby-Dry í áliti sínu. Hann komst að þeirri niðurstöðu að dómstóllinn ætti að ógilda dóm undirréttarins í Doublemint-málinu og gagnrýndi rökstuðninginn í dómnum. Hann sagði ennfremur að áhrif Baby-Dry-dómsins hefðu víða verið misskilin.150 Í áliti sínu í Baby-Dry-málinu hefði hann lýst þeirri skoðun 146 Mál nr. C-191/01 P, Doublemint. 147 Sameinuð mál nr. C-53/01 to 55/01 Linde AG and Others, frá 8. apríl 2003, (2003) ECR I-3161, 73. mgr. 148 Mál nr. C-191/01, Doublemint, 32. mgr. dómsins. 149 Sami dómur, 33.-36. mgr. 150 Mál nr. C-191/01 P, Doublemint, 2. mgr. álitsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.