Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 36

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 36
379 að nota við mat á því hvort tákn væri lýsandi skv. c-lið 1. mgr. 3. gr. tilskip- unarinnar. Dómstóllinn staðfesti fyrst að ákvæði b-, c- og d-liðar 1. mgr. 3. gr. sköruðust greinilega, jafnvel þótt sérhvert þessara skilyrða yrði að skoða sérstaklega.157 Af þessu leiddi að lýsandi orðmerki skorti sérkenni. Merki gæti þó skort sérkenni í tengslum við vöru eða þjónustu af öðrum ástæðum en að það væri hugsanlega lýsandi.158 Dómstóllinn komst síðan að þeirri nið- urstöðu að ef merki væri eingöngu samsett úr lýsandi orðum – í Biomild-mál- inu var fjallað um nýyrði úr lýsandi orðum – þá væri það sjálft lýsandi nema til staðar væri „merkjanlegur munur á orðinu og samsetningu orðanna“. Merkjanlegur munur gæti annaðhvort birst í því að orðasambandið væri sérstakt í eðli sínu og ef svo væri þýddi nýja orðið annað og meira en orðin ósamsett.159 Í Postkantoor-málinu hélt dómstóllinn því fram að Postkantoor hefði orðið hluti daglegs máls og öðlast eigin merkingu sem fæli í sér að það væri orðið óháð orðunum ósamsettum.160 Dómstóllinn hélt því einnig fram í þessum málum að sú staðreynd að orðin væru margræð og gætu gefið til kynna sömu eiginleika væri málinu óviðkomandi.161 Í þessu samhengi má minnast rökstuðningsins úr Doublemint-málinu. Í þessum tveimur málum kynnti dómstóllinn einnig ný skilyrði við mat á því hvort merki geti talist lýsandi. Þessi skilyrði hafa sætt nokkurri gagn- rýni.162 Annars vegar taldi dómstóllinn að ef merki væri orðmerki, sem ætti að heyrast jafnoft og það væri lesið, ætti að synja umsókn um skráningu ef annaðhvort mætti meta sjónrænt eða hljóðrænt hvort merkið væri lýs- andi.163 Undirrétturinn hefur ekki vísað til þessa tvöfalda skilyrðis síðan í febrúar 2004, og dómstóllinn hefur ekki staðfest það í síðari dómum. Hins vegar komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að merki gæti verið lýsandi með tilliti til bæði grundvallareiginleika og minniháttar eiginleika vöru og þjónustu. Dómstóllinn sagði ennfremur að í ljósi þeirra hagsmuna sem lægju að baki ákvæðinu yrðu allir að geta notað slík tákn til að lýsa eiginleikum vöru sinnar, óháð því hversu mikilvægur sá eiginleiki kynni að vera í við- skiptum.164 157 Postkantoor, 67. mgr. og Biomild, 18. mgr. 158 Postkantoor, 67. og 86. mgr. og Biomild, 18.-19. mgr. 159 Postkantoor, 100. mgr. og Biomild, 41. mgr., en þar segir m.a. „…a mark consisting of a neologism composed of elements, each of which is descriptive of characteristics of the goods or services…is itself descriptive of those characteristics within the meaning of Article 3(1)(c) of the Directive, unless there is a perceptible difference between the neologism and the mere sum of its parts.“ 160 Postkantoor, 100. mgr. 161 Postkantoor, 104. mgr. og Biomild, 25. mgr. 162 Folliard-Monguiral, A. og Rogers, D.: „Significant Case Law from 2004 on the Community Trade Mark from the Court of First Instance, the European Court of Justice and OHIM“. E.I.P.R. (2005), bls. 136. 163 Postkantoor, 99. mgr. og Biomild, 40. mgr. 164 Postkantoor, 102. mgr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.