Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Page 50

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Page 50
393 foreldri sem almennur neytandi ekki greint þær frá vörum annarra aðila, sem er viðmiðið við mat á sérkenni tákns. 7.2 Frjálsleg eða íhaldssöm nálgun við mat á skráningarhæfi 7.2.1 Frjálsleg og rýmkandi nálgun Frjálslegri eða íhaldssamri nálgun við mat á skráningarhæfi vörumerkja er í flestum skrifum og umræðum stillt upp sem andstæðum og oft í þeim skilningi að frjálslega nálgunin sé nútímaleg og sú íhaldssama sé takmark- andi einkaréttarnálgun. Það er þó of mikil einföldun að segja að sú fyrri sé jákvæð og sú síðari neikvæð þegar kemur að skráningu vörumerkja. Baby-Dry-málið er talið vera dæmi um frjálslega og rýmkandi nálgun sem hafi markað tímamót. Umsækjandinn, Procter & Gamble, færði rök fyrir því að það að merki væri lýsandi þýddi ekki að það gæti ekki haft sér- kenni fyrir vöru ákveðins fyrirtækis. Þá byggði á sanngjarnri notkun merkis og var á móti hinni svokölluðu einkaréttarlegu nálgun. Aðallögsögumað- urinn í Baby-Dry-málinu virtist vera sammála þessum sjónarmiðum í áliti sínu og hann staðhæfði að ákvæðinu sem bannaði skráningu lýsandi merkja væri ætlað að hindra skráningu lýsandi vörutegunda sem ekki væri hægt að veita vernd.217 Spyrja má hvort dómurinn í Baby-Dry-málinu hafi leitt til breytinga á skráningarframkvæmd. Er unnt að halda því fram aðeins fimm árum eftir að dómurinn var kveðinn upp, ef tekið er tillit til síðari dóma sem virð- ast hafa dregið í land við túlkun á skráningarhæfi lýsandi merkja? Jafnvel þótt unnt sé að sýna fram á að umsóknum um skráningu Evrópuvörumerkis hafi fjölgað á árunum 2003-2006, samkvæmt tölum frá skráningarskrifstofu ESB,218 er ljóst að umsóknir á árinu 2000 voru álíka margar og á fyrrnefndu árabili. Það sýnir væntanlega að margir aðrir þættir en einn dómur um til- tekna tegund vörumerkis hafa áhrif á fjölda umsókna. Mikilvægur þáttur hér er óumdeilanlega tenging skráningarkerfis Evrópuvörumerkisins og bókunar frá 27. júní 1989219 við Madrid-samninginn um alþjóðlega skrán- ingu vörumerkja frá 14. apríl 1891, sem gilt hefur frá 1. október 2004, og felur annars vegar í sér að unnt er að sækja um skráningu Evrópuvörumerk- is á grundvelli bókunarinnar og hins vegar að hægt er að nota Evrópuvöru- merkið sem grundvöll fyrir alþjóðlegri umsókn samkvæmt bókuninni. Þetta hefur trúlega fjölgað umsóknum á árinu 2004 og 2005 og mun væntanlega gera það í framtíðinni.220 217 Mál nr. C-383/99 P, Baby-Dry, 78. mgr. álitsins. 218 OHIM’s Annual Report 2005. www.oami.eu.int 219 Protocol Relating to the Madrid Agreement Concerning the International Registration of Marks. www.wipo.int 220 Ísland er aðili að bókuninni frá 27. júní 1989, sbr. ákvæði gildandi vörumerkjalaga, nr. 45/1997.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.