Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 65

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 65
408 leiðir yfirleitt til lakari afrita23 og því ólíklegra að þau yrðu notuð til frekari eintakagerðar.24 Öðru máli gegnir um stafræn afrit, því þar er oftast ómögu- legt að greina á milli frumeintaks og afrits. Þetta hefur í för með sér að engu máli skiptir hvort afrit sé gert af frumeintaki eða afriti, hvort sem um er að ræða afrit sem gert er á löglegan eða ólöglegan hátt. Spurningin um lögmæti eintaka sem afrit til einkanota eru gerð frá hefur sérstaklega komið til álita vegna dreifingar verka í gegnum jafningjanet. Flestar tónlistarskrár og kvikmyndaskrár sem eru í dreifingu eru þar í óþökk rétthafa og því ólögleg eintök. Norrænar frændþjóðir okkar hafa á undanförnum árum sett sérstök ákvæði sem kveða á um að eintakagerð til einkanota takmarkist við eintaka- gerð af löglegum eintökum.25 Áður en þær breytingar voru gerðar voru ýmsir fræðimenn á því að það bryti í bága við skuldbindingar ríkja sam- kvæmt alþjóðasamningum að heimila stafræna eintakagerð til einkanota af ólöglegum eintökum.26 Því hefur verið haldið fram hér á landi að þar sem ekki sé beint ákvæði í núgildandi höfundalögum sem banni eintakagerð til einkanota af ólöglegum eintökum þá sé vafasamt að slíkt sé ólöglegt.27 Á hinn bóginn má segja að aðild Íslands að Bernarsáttmálanum28 og TRIPS samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar29 leiði til þess að túlka verði undanþáguna um eintakagerð til einkanota á þann veg, þegar um stafræna eintakagerð sé að ræða, að hún sé eingöngu heimil af löglegum eintökum þar sem annað skaðaði „…í óeðlilegum mæli réttmæta hagsmuni rétthafa“ en báðir sáttmálarnir innihalda ákvæðið um „þriggja þrepa þröskuldinn“30 sem skilyrði fyrir öllum undanþágum frá einkarétti höfunda.31 1.3 Birting efnis á netinu í skilningi höfundalaga Hugtakið birting í höfundaréttarlegum skilningi er skilgreint í 3. mgr. 2. gr. höfundalaga. Þar segir að verk teljist birt þegar það er flutt opinberlega,32 23 T.d. ljósrit, símbréf, upptaka á segulband af útsendingu útvarps o.s.frv. 24 Sjá umfjöllun um þetta atriði í Rán Tryggvadóttir: „Áhrif nýrrar tækni...“, bls. 40-41. 25 Danir árið 2001, sjá 3. mgr. 11. gr. dönsku höfundalaganna, sbr. lög nr. 472 frá 7.6.2001, sbr. FT 2000-2001, Tillæg B, bls. 1095, o.áfr., en Norðmenn og Svíar árið 2005, sjá 4. mgr. 12. gr. norsku höfl. eins og þeim var breytt með lögum nr. 97/2005 og 4. mgr. 12. gr. sænsku höfl. eins og þeim var breytt með lögum nr. 359/2005. 26 Sjá Peter Schönning: „Lovlige kopier af ulovlige eksemplarer?“, UfR 2000 B, bls. 504. 27 Sjá grein í Morgunblaðinu, 1. október 2004, sem er byggt á viðtali við Eirík Tómasson, prófessor við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóra Sambands tónskálda og eigenda flutn- ingsréttar, STEF. 28 Sjá auglýsingu nr. 11/1999 í C-deild Stjórnartíðinda. 29 Sjá auglýsingu nr. 62/1995 í C-deild Stjórnartíðinda. TRIPS stendur fyrir Trade Related Aspects of Intellectual Property Rights. 30 Sjá 2. mgr. 9. gr. Bernarsáttmálans og 13. gr. TRIPS samningsins. 31 Sjá Schönning: „Lovlige kopier ...“, bls. 504. 32 Flutningsrétturinn tekur til þess að verk sé flutt opinberlega að áhorfendum viðstöddum, t.d. leiksýning eða tónleikar, og einnig flutningur verka um þráð eða þráðlaust, t.d. með út- varpssendingum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.