Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Síða 76
419
síðu sinni og jafnframt verið þar með gagnrýni á hljómplötuútgefendur fyrir
að vera á móti jafningjanetum undir fyrirsögninni „Join the Revolution“ og
þess utan stutt herferð sem beint var gegn hljómplötuútgefendum. Þó að
gagnrýnin á hljómplötuútgefendur hafi ekki beinlínis falið í sér hvatningu til
skráarskipta þá hefði framsetningin höfðað mjög til ungmenna sem væru í
meirihluta notendahóps Kazaa og komið þeirri hugmynd á framfæri að það
væri eftirsóknarvert að ögra hljómplötuútgefendum með því að virða ekki
höfundarétt þeirra.101
Á grundvelli framangreindra raka þá úrskurðaði dómarinn að forráða-
menn Kazaa hefðu heimilað öðrum án heimildar rétthafa að gera eintök af
vernduðum verkum og miðlað þeim til almennings og jafnframt að þeir væru
sekir um samráð í þessu sambandi.102 Dómsúrskurður var að komið skyldi
í veg fyrir að stefndu héldu áfram uppteknum hætti, þ.e. að heimila öðrum
að fremja höfundaréttarbrot, en jafningjanetið mætti starfrækja áfram að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þau voru, að annað hvort yrði sett lyk-
ilorðasía á skráardeiliforritin, sem myndi útiloka frá niðurstöðu skráarleitar
allar skrár sem rétthafar í málinu kæmu með lista yfir, og sem skylt væri
að nota. Ef sú leið yrði valin yrði slík sía hluti af öllum Kazaa skráardeili-
forritum sem dreift yrði í framtíðinni og jafnframt yrðu forráðamenn Kazaa
skyldaðir til að beita „hámarks“ þrýstingi á notendur Kazaa sem væru með
eldri útgáfur forritsins til að uppfæra í hinar nýju útgáfur með lykilorða-
síum. Hinn möguleikinn var að leitarvél Kazaa kerfisins myndi eingöngu
birta skrár sem heimild væri fyrir að nota, sem yrðu birtar með viðvörun
gegn höfundaréttarbrotum og ekki væri hægt að nálgast eintök skráa sem
væru höfundaréttarvarðar án heimildar.103 Kveðið skyldi á um bætur í sér-
stöku máli.104
Í júlí 2006 náðust sættir milli aðila utan dómstóla.105 Samkomulagið
fólst í því að forráðamenn Kazaa greiddu hljómplötuútgefendum 115 millj-
ónir dollara í skaðabætur fyrir framin höfundaréttarbrot og samþykktu að
gera Kazaa jafningjanetið að löglegum skráarskiptagrundvelli með síum.
Hljómplötuúgefendur samþykktu á móti að ganga til samkomulags við þá
um dreifingu höfundaréttarverndaðs efnis sem þeir væru rétthafar að.106
Niðurstaðan í Grokster málinu og Kazaa II málinu var að skráardeili-
forritin sem slík séu ekki ólögleg heldur framferði forsvarsmanna þeirra ef
sannað þykir að þeir hafi hvatt til höfundaréttarbrota og hagnast af brotum
101 Samantekt dómara í Kazaa II dómnum, bls. 4 í útprenti.
102 Ibid., bls. 5.
103 Ibid., bls. 5-6.
104 Ibid., bls. 6.
105 Sjá fréttatilkynningu RIAA, dags. 27. júlí 2006, um málið, aðgengileg á http://www.riaa.
com/news/newsletter/072706.asp.
106 Sjá Blackmore, N. og O’Grady, J: „Record industry and Kazaa reach A$150 million
settlement“. World Copyright Law Report, dags. 14. mars 2006, sótt á netið 26. október 2006 á
heimasíðu tímaritsins: www.worldcopyrightlawreport.com.