Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 80

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 80
423 undarétti með því að viðhalda jafningjanetinu og aðrir voru dæmdir fyrir aðstoð þeirra við þá fyrrnefndu. Dæmt var til greiðslu sekta, upptöku tækja sem notuð voru til brota og bóta til rétthafa.120 Við ákvörðun bótafjárhæðar var m.a. tekið mið af að ekki taldist liggja fyrir að brotin hefðu verið í ágóðaskyni en jafnframt varnaðarsjónarmiði að baki bótagreiðslum. 3. Staðan hér á landi Fyrir liggur að 32% karla og 20% kvenna hér á landi hafa notað jafn- ingjanet til að skiptast á tónlistar- og kvikmyndaskrám.121 Þó hefur ekki enn reynt á lögmæti þess fyrir dómstólum þrátt fyrir handtökur og húsleit ríkislögreglustjóra í DC++ málinu122 svonefnda í september 2004.123 Er það miður að svo lengi þurfi að bíða ákæru.124 Þessi þátttaka í jafningjanetum virðist ekki hafa haft afgerandi áhrif á sölu tónlistar hér á landi.125 Skráarskipti á netinu virðast hafa mismunandi áhrif á notendur, sumir auka kaup tónlistar en aðrir minnka í kjölfar þátt- töku í skráarskiptum í jafningjanetum.126 Hins vegar er ljóst að á meðan til eru jafningjanet sem hafa á boðstólum ólögleg höfundavernduð verk sem notendur þurfa ekki að greiða fyrir og sem auðvelt er að komast í, eiga lög- legar netsölur tónlistar og kvikmynda erfiðar uppdráttar. Sú aukning sem hefur átt sér stað í dreifingu tónlistar með tilkomu jafningjanetanna hefur því ekki skilað sér í réttu hlutfalli til þeirra sem skapa verkin. Íslenska jafningjanetið Istorrent hefur verið í fréttum undanfarið.127 Full- trúar rétthafa hafa sent forráðamönnum vefsíðunnar Torrent.is beiðni um að loka síðunni vegna meintra höfundaréttarbrota. Forráðamenn síðunnar 120 Samkvæmt frétt á heimasíðu IFPI voru ákærðir dæmdir til greiðslu 566.000 Evra, sjá http://www.ifpi.org/content/section_news/20061027a.html. 121 Sjá skýrslu Hagstofunnar, Upplýsingatækni 2006:3, bls. 26-27. 122 DC++ er eitt af þeim forritum sem byggja á Direct Connect jafningjaneta staðlinum, sjá www.wikipedia.org. 123 Sjá fréttaskýringu Morgunblaðsins, 30. september 2004, aðgengileg á slóðinni http://www. mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=821119. 124 Skýringin liggur væntanlega í að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra annar ekki verk- efnum vegna manneklu, sérstaklega skorti á sérfræðingum á mismunandi sviðum efnahags- brota, sjá skýrslu Ríkisendurskoðunar, Ríkislögreglustjóri - Stjórnsýsluúttekt, október 2006, bls. 7-8, aðgengileg á slóðinni: http://www.rikisend.althingi.is/files/skyrslur_2006/rikislogreglu- stjori.pdf. Sjá einnig viðhorf eins þátttakanda í jafningjanetinu, sem var handtekinn, á vefslóð- inni http://www.netfrelsi.is/gamalt/2006/09/u_varst_handtek.php. 125 Samkvæmt upplagseftirliti frá ParX sem unnið er fyrir Samband hljómplötuframleiðenda þá hefur árleg sala á innlendu efni aukist frá árinu 2001 til 2005 um 132 þúsund eintök en sala á erlendu efni aukist á sama tímabili um 46 þúsund eintök, upplagseftirlit 2005, bls. 8. Hins vegar var samdráttur í sölu tónlistar fyrir þann tíma eða á milli áranna 2000 og 2001 samkvæmt árs- skýrslu fyrir árið 2001 um upplagseftirlit fyrir Samband hljómplötuframleiðenda. Eins og áður segir þá er erfitt að gera grein fyrir sambandi á milli ólöglegra skráarskipta og sölu tónlistar. 126 Sjá skýrslu OECD, 2005, bls. 77. Sjá líka viðtal við íslenskan Napster-notanda árið 2000 í Morgunblaðinu, dags. 7. júní 2000, sem viðurkennir að kaup tónlistar hafi minnkað í kjölfar skráarskipta í gegnum Napster jafningjanetið. 127 Ritað á haustmánuðum ársins 2006.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.