Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 81

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Side 81
424 hafa neitað að verða við þeirri beiðni þar sem þeir telja ekki vera rök fyrir staðhæfingum rétthafasamtakanna.128 Framkvæmdastjóri rétthafasamtak- anna Smáís129 lýsti því yfir að þeir myndu krefjast lögbanns gegn starfsemi síðunnar ef forráðamenn hennar yrðu ekki við beiðni rétthafa um að loka henni.130 Fróðlegt verður að sjá framhald þess máls en telja verður líklegt, með hliðsjón af finnska BitTorrrent dómnum sem féll nýverið, að rétthafa- samtök muni láta á þetta mál reyna fyrir dómstólum. Yrði niðurstaðan sú sama? Það fer auðvitað eftir málsatvikum og sönnunarmati í því tiltekna máli ef það kæmi til kasta dómstóla. En eru íslensk höfundalög að ein- hverju leyti öðruvísi en lög nágrannaþjóða okkar sem myndi réttlæta aðra niðurstöðu? Innleiðing tilskipunar nr. 2001/29/EB hér á landi var gerð án þess að hróflað væri við meginákvæðum höfundalaganna þar sem talið var að þau rúmuðu þau réttindi sem tilskipunin kveður á um.131 Okkar höfundalög eru því enn í höfuðatriðum eins og höfundalög hinna Norðurlandanna áður en þær innleiddu tilskipunina. Því hefur verið haldið fram að fyrir innleiðingu hennar í Noregi og Svíþjóð hafi skráarskipti í jafningjanetum verið lögleg. Ekki hefur verið fallist á það, sbr. niðurstöður í Direct Connect jafningja- netsmálum sem þar hafa gengið.132 Þeir dómar, sem og aðrir norrænir dómar sem reifaðir hafa verið hér að framan, styðja þá afstöðu löggjafans hér að ekki hafi verið bein þörf á að breyta ákvæðum íslensku höfundalaganna vegna innleiðingar tilskipunarinnar að því leyti sem varðar ábyrgð vegna brota sem framin eru með skráarskiptum höfundaverndaðra verka í jafn- ingjanetum. Því má þó enn halda fram að breytingar í samræmi við breyt- ingar hjá frændþjóðum okkar hefðu verið til skýringarauka fyrir notendur laganna og aukið gagnsæi þeirra.133 Eins og fram er komið er réttarstaðan nokkuð ljós varðandi ábyrgð ein- stakra notenda jafningjaneta vegna miðlunar af þeirra hálfu á tónlistar- og kvikmyndaskrám sem fram fer án heimildar rétthafa, en hvað með ábyrgð forráðamanna jafningjaneta hér á landi? Hvernig eru reglur um hlutdeild og ábyrgð þjónustuaðila rafrænna viðskipta? Gilda einhverjar sérreglur hér á landi sem myndu ívilna forráðamönnum íslenskra jafningjaneta? Ekki verð- 128 Sjá frétt Morgunblaðsins, „Vefsíðunni Torrent.is verður ekki lokað“, dags. 23. október 2006 og heimasíðu vefsíðunnar, www.torrent.is. 129 Samtök myndrétthafa á Íslandi, sjá www.smais.is. 130 Sjá frétt Morgunblaðsins, dags. 23. október 2006, http://mbl.is/mm/frettir/frett. html?nid=1230326. 131 Sjá Rán Tryggvadóttir: „Áhrif nýrrar tækni ...“, bls. 47. 132 Sjá líka grein Henrik Pontén: „Finn fem fel om fideling“. Aftonbladet, 31. október 2006, þar sem segir að skráarskipti, t.d. eins og eiga sér stað á sænska BitTorrent jafningjanetinu „The Pirate Bay“, séu og hafi verið ólöglegar fyrir og eftir innleiðingu tilskipunar nr. 2001/29/ EB í sænsk lög. 133 Rán Tryggvadóttir, „Áhrif nýrrar tækni...“, bls. 48. Væntanlega verður úr því bætt í boð- aðri heildarendurskoðun höfundalaganna, sjá I. kafla almennra athugasemda með frumvarp- inu til höfundalaga 2006.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.