Tímarit lögfræðinga - 01.12.2006, Page 111
454
son, Hrafn Bragason, Jón Steinar Gunnlaugsson, Stefán Már Stefánsson,
Þór Vilhjálmsson og Dögg Pálsdóttir.
Fundarstjóri þakkaði fráfarandi stjórnarmönnum þeirra framlag til
félagsins og óskaði nýjum stjórnarmönnum til hamingju.
Fundarstjóri gaf síðan orðið laust. Nýkjörinn formaður, Benedikt Boga-
son, þakkaði fráfarandi stjórnarmeðlimum störf í þágu félagsins og bauð
nýja velkomna. Benedikt þakkaði ennfremur Friðgeiri Björnssyni fyrir rit-
stjórn Tímarits lögfræðinga og bauð Róbert Ragnar Spanó velkominn til
starfa. Að því loknu fór hann yfir þau verkefni sem eru á döfinni en fimmta
námsferð félagsins verður í nóvember og að þessu sinni verður farið til Suð-
ur-Afríku. Lögum félagsins verður breytt en væntanlegar lagabreytingar
verða samþykktar á framhaldsaðalfundi þar sem ekki náðist tilskilinn meiri
hluti félagsmanna á þessum fundi. Ástæður lagabreytinganna eru m.a. þær
breytingar sem hafa orðið á laganámi.
4. Kosning endurskoðenda
Tillaga var um að aðalmenn yrðu Kristján Gunnar Valdimarsson og
Steinunn Guðbjartsdóttir. Samþykkt með lófataki.
5. Lagabreytingar
Áslaug Björgvinsdóttir fylgdi þeim úr hlaði. Fyrst fór Ragnhildur fund-
arstjóri yfir núgildandi lög og ákvæði þeirra um framhaldsaðalfund ef
meiri hluti félagsmanna mætir ekki á aðalfund. Áslaug fór yfir breytingar
á hverri grein fyrir sig og kynnti. Ólafur Walter Stefánsson spurði um hvað
viðurkenndur háskóli væri. Athugasemdum var beint til formanns til fram-
haldsaðalfundar.
6. Árgjald
Ákveðið sama árgjald á næsta ári.
7. Önnur mál
Þór Vilhjálmsson bað um orðið og fann að því að á málþingi hefði inn-
gangsræða verið í höndum manns sem hélt fram röngum atriðum varðandi
neitunarvald forseta. Ólafur Walter Stefánsson fann að því að á málþinginu
hafi ekki verið boðið upp á umræður. Benedikt fagnaði gagnrýni sem kom
fram vegna málþings.
Að því loknu var aðalfundi frestað og ákveðið að boða til framhaldsaðal-
fundar til að samþykkja breytingar á lögum félagsins. Alls sátu 16 fundinn í
upphafi en fjölgaði þegar leið á.
Framhaldsaðalfundur 9. febrúar 2006
Benedikt Bogason formaður setti fundinn og tilkynnti hann löglega boð-
aðan. Hann gaf Áslaugu Björgvinsdóttur orðið sem kynnti breytingartillög-