Bændablaðið - 12.01.2023, Side 1

Bændablaðið - 12.01.2023, Side 1
1. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 12. janúar ▯ Blað nr. 625 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Mikið fannfergi hefur verið víða um land undanfarnar vikur. Kýrin Vaka Draumsdóttir frá Minni-Mástungu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi horfir þakklát í átt að ljósmyndaranum sem skömmu áður færði hjörðinni nýtt gróffóður. Mynd / Jón Marteinn Finnbogason Yfir tonni af kjöti sóað að ósekju Á síðustu mánuðum hefur nokkrum nautgripaskrokkum verið fargað í Sláturhúsinu á Hellu vegna ákvörðunar Matvælastofnunar (MAST) um að merkingar á gripunum séu ófullnægjandi. Magnús Ingvarsson slátur- hússtjóri leiðir að því líkum að að minnsta kosti fimm skrokkum hafi verið hent vegna þessa í fyrra en auk þess hefðu tveir farið sömu leið ef ekki hefði verið fyrir DNA-sönnun á uppruna þeirra. Hóflega má áætla að ungneyti sé um 250 kg og er því hægt að gera ráð fyrir að töluvert meira en tonni af nautakjöti hafi verið sóað af þessari ástæðu. Tjón bænda sem í þessu lentu hleypur á milljónum króna. Ragnar Finnur Sigurðsson og Hrafnhildur Baldursdóttir, bændur á Litla-Ármóti í Hraungerðishreppi, hafa síðastliðna ellefu mánuði staðið í málaferlum við MAST eftir að stofnunin veitti þeim ekki undanþágu, vegna þess að naut, sem þau sendu til slátrunar í febrúar síðastliðnum, var með eyrnamerki sem stofnunin taldi ekki samræmast reglugerð um merkingar búfjár. Eyrnamerki þetta var svokallað neyðarmerki með forprentuðum upplýsingum um land og bú, en gripanúmer var handskrifað með sérstökum penna sem fylgir kaupum á merkjunum. Slíkar merkingar þóttu fullnægjandi sönnun á uppruna gripanna samkvæmt eftirlitsmönnum MAST þar til nýlega. Ragnar og Hrafnhildur rekja breytingu á túlkun reglugerðarinnar til mannabreytinga innan MAST, sem nú taki strangar á kröfum um merkingar. „Við vorum farin að heyra að eftirlitsaðilar væru farnir að taka strangar á því í sláturhúsinu ef merki vantaði í grip, eða ef gripanúmer væri handskrifað. Einnig heyrist okkur í samtali við aðra bændur að það líti út fyrir að einhverjir fái undanþágur en aðrir ekki. Þetta hljómar því eins og um sé að ræða geðþóttaákvörðun innan stofnunarinnar hverju sinni.“ Ákvörðun MAST, um að hafna undanþágubeiðni Ragnars og Hrafnhildar, var úrskurðuð ógild hjá matvælaráðuneytinu í desember og geta þau nú krafist skaðabóta. Fleiri slík mál eru í ferli. Markmið reglugerðar um merkingar búfjár er að tryggja uppruna búfjárafurða en í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að þrátt fyrir að nautgripurinn hafi verið merktur með handskrifuðu gripanúmeri léki enginn vafi á uppruna hans. Ragnar og Hrafnhildur segjast hafa brugðist skjótt við þegar þau fregnuðu af því að farga ætti skrokknum og beðið um undanþágu. „Enginn vafi var á um hvaða grip ræddi og því töldum við að gefa ætti undanþágu því rekjanleiki væri til staðar. Héraðsdýralæknir heldur því engu að síður til streitu að henda eigi gripnum. Okkur finnst dapurlegt að fórna lífi gripsins til einskis með tilliti til matarsóunar og umhverfis,“ segir Hrafnhildur. Ragnar segist hafa verið í reglulegu sambandi bæði við Magnús sláturhússtjóra og starfsmenn Matvælastofnunar í ferlinu til að reyna að leysa úr málinu á farsælan hátt. Magnús segist hafa boðist til að geyma gripinn í frysti á meðan úr málinu væri skorið en hafi fengið ítrekun frá Matvælastofnun um að henda honum. Ragnar og Hrafnhildur skilja ekki af hverju farið var fram með slíku offorsi. „Við athuguðum hvort mætti taka gripinn heim og nýta hann til eigin nota en það var ekki leyfilegt. Eingöngu átti að henda honum og af einhverri ástæðu var mikil áhersla lögð á að gripnum yrði fargað hið snarasta.“ /ghp Sjá nánar á bls. 20–21. Eimverk: Hundraðföld kornrækt Miðað við áform um stækkun viskíframleiðslunnar hjá Eimverki, verður byggrækt á þess vegum hundraðföld að tíu árum liðnum. Í dag er framleitt úr 100 tonnum, úr eigin ræktun, en áætlað er að hráefnisþörfin verði komin í tíu þúsund tonn að tíu árum liðnum. Í dag fer byggræktunin að mestu fram í Bjálmholti í Holtum, sem er í eigu Eimverks, auk þess sem hráefni berst meðal annars frá Sandhóli og Þorvaldseyri. Haraldur Haukur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Eimverks, segir að stefnan sé að auka enn frekar samstarfið við bændur á næstu árum. Stækkunin sé fyrirhuguð í fjórum þrepum og ætlunin sé að tvöfalda ræktunina strax á þessu ári – og uppskera 200 tonn í haust. Árið 2025 er gert ráð fyrir að hráefnis- þörfin verði komin í 500 tonn af þurru byggi. Samstarf við bændur í öllum landshlutum „Til að dreifa áhættunni þurfum við að komast í samstarf við bændur í öllum landshlutum, því það koma yfirleitt alltaf slæm ár á einhverjum stað á landinu. Varan sem kemur út úr öllu ferlinu er mjög verðmæt sem gerir það að verkum að við getum greitt betur fyrir kornið til að tryggja okkur það að bændur hafi áhuga á samstarfinu. Fyrir bændur þýðir þetta að það verður hægt að ganga að stöðugum markaðsaðstæðum, því þarna er kominn þessi kaupandi á markaði sem þarf mikið magn, borgar vel fyrir og hleypur ekki beint í innflutta byggið þegar það er hagstætt í verði,“ segir Haraldur. Hann segir að unnið sé að því að fá heitið „Íslenskt viskí“ sem verndað afurðaheiti. Það myndi skapa þeirra framleiðslu þá sérstöðu sem Eimverk þurfi, svo ekki þurfi að standa í samkeppni við vörur sem lítið eða ekkert sé íslenskt við. /smh Sjá nánar bls. 32–33. 3430–31 Ungur Dani kaupir Voðmúlastaði 10 Vinsælustu hrútarnir „Þetta var bölvaður bastarður“

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.