Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 FRÉTTIR | S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s | | B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 | Límtré-Timbureiningar Stálgrind Yleiningar PIR Steinull Hrossaútflutningur: Fjöldinn yfir meðallagi og verðið hækkar Þótt útflutningur hrossa hafi verið lakari árið 2022 en í fyrra var hann vel yfir meðallagi ef horft er til síðasta áratugar. Uppgefið verð er mun hærra en í fyrra. Mynd / Íslandsstofa Alls voru 2.085 hross flutt úr landi árið 2022. Er það töluvert minni útflutningur en metárið 2021. Hrossin fóru til átján landa Evrópu auk Bandaríkjanna. Hrossin samanstóðu af 312 stóðhestum, 823 geldingum og 950 hryssum samkvæmt tölum Worldfengs, upprunaættbók íslenska hestsins. Eins og venja er fóru langflest hross til Þýskalands, 970 talsins. Alls fóru 269 til Danmerkur, 243 til Svíþjóðar, 119 til Austurríkis, 110 til Sviss og 93 til Bandaríkjanna. Eitt hross fór til Írlands, annað til Póllands og enn annað til Rúmeníu og tvö til Ítalíu. Þá höfðu 125 af útfluttu hrossunum hlotið fyrstu verðlaun í kynbótadómi. Hæst dæmda útflutta hrossið var ein stjarna ársins, stóðhesturinn Viðar frá Skör, sem hlaut meteinkunn, 9,04, í aðaleinkunn. Hann fór til Danmerkur. Af öðrum hátt dæmdum útfluttum hrossum má nefna Sólon frá Þúfum (ae. 8,90), Brimni frá Efri-Fitjum (ae. 8,75), Spaða frá Stuðlum (ae. 8,73), Valdísi frá Auðsholtshjáleigu (ae. 8,60), heiðursverðlaunastóðhestinn Eld frá Torfunesi (ae. 8,60) og Magna frá Stuðlum (ae. 8,56). Árið 2021 var metútflutningsár síðan mælingar hófust, en þá fóru 3.341 hross utan. Árið 2020 voru þau 2.320 og var útflutningurinn 2022 því lakari en síðastliðin tvö ár. Ef horft er til útflutnings síðasta áratugar var hann hins vegar vel yfir meðallag. Bestu útflutningsárin fyrir utan árið 2021 var á fyrri hluta tuttugustu aldar, en á árunum 1993–1997 fóru að meðaltali rúm 2.600 hross út ár hvert. Uppgefið meðalverð 916.000 krónur Hagstofa Íslands heldur einnig utan um tölur tengdum útflutningi á hrossum gegnum tollskrárnúmer og hafa birt þær fyrir fyrstu tíu mánuði ársins 2022. Þar hefur útflutningur 1.465 hrossa verið gefinn upp og rúmir 1,3 milljarðar króna heildar FOB verð. Deilt niður á fjölda blasir við að meðaltalið á uppgefnu verði er tæpar 916.000 krónur sem er mun hærra verð en árið áður þegar það var um 690.000 krónur. Tollskrárnúmerin eru tvö, annars vegar „hreinræktaðir hestar til undaneldis“ og hins vegar „reiðhestar“. Meðalverðið í fyrrnefnda flokknum er um 1,2 milljónir króna en um 655 þúsund krónur í þeim síðari. Ef litið er til einstakra landa er hæsta uppgefna meðalverðið fyrir hross sem fóru til Svíþjóðar rúmar þrjár milljónir króna. Lægst er verðið fyrir hross sem fóru til Belgíu, en þar virðist 148.960 krónur vera algeng tala. /ghp Bændasamtök Íslands hafa fært Listasafni Reykjavíkur vefnaðarverk Hildar Hákonardóttur, Árshringinn, að gjöf. Verkið er eitt af stærstu verkum listakonunnar og verður á meðal þeirra fjölmörgu listaverka sem sýnd verða á umfangsmikilli yfirlitssýningu á verkum Hildar sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum 14. janúar. Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segir að Konráð Guðmundsson, hótelstjóri á Sögu, hafi keypt verkið af Hildi á sínum tíma. „Verkið samanstóð upphaflega af tólf ofnum teppum og stóðu fyrir gróður jarðar árið um kring og var hugsað sem heild.“ Vigdís segir að verkið hafi lengi verið í geymslu en hafi verið nokkrum sinnum sýnt opinberlega, meðal annars í Kaupmannahöfn árið 2018. „Þegar eigendaskipti urðu á Hótel Sögu nýverið fundust aðeins tíu hlutar verksins og verða þeir færðir Listasafni Reykjavíkur til varanlegrar varðveislu og er verkið fært safninu að gjöf án skilyrða.“ Hver hluti verksins er 202 x 94 sentímetrar og eru tíu hlutar þess færðir listasafninu að gjöf en tveir hlutar hafa glatast. Sýningin í verkum Hildar ber yfirskriftina Rauður þráður og er afrakstur rannsóknarstöðu við Listasafn Reykjavíkur sem ætlað er að endurskoða hlut kvenna í íslenskri listasögu. /VH Menning: Vefnaðarverk að gjöf Árhringurinn formlega afhentur. Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri, Hildur Hákonardóttir myndlistarmaður, Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og Sigrún Inga Hrólfsdóttir sýningarstjóri. Mynd / Listasafn Reykjavíkur Fasteignakaup: Úrræði sem eigi að nýtast ungum bændum Ungir bændur hafa verið að kalla eftir því að þeir geti nýtt öll fasteignakaupsúrræði sem almennt miða að þéttbýlinu eins og að greiða inn á lán með séreignarsparnaði eða hlutdeildarlánin svo dæmi sé tekið. Ný reglugerð, nr. 555/2017, um samræmt verklag við ráðstöfun iðngjalda til séreignarsparnaðar til stuðnings kaupa á fyrstu íbúð hefur tekið gildi. Reglugerðin tekur mið af breytingum á lögum til stuðnings til kaupa á fyrstu íbúð samkvæmt breytingalögum, 55/2022, sem tóku gildi 1. janúar 2023. Málið var opið til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda 2. til 22. desember síðastliðinn. Leggja til viðbætur Ungir bændur hafa kallað eftir því að þeir geti nýtt öll úrræðin sem almennt miða að þéttbýlinu, meðal annars til að geta greitt upp lán til kaupa á fyrstu íbúð. Á þeim forsendum sendu Bændasamtök Íslands inn umsögn um drög að reglugerð um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, mál nr. 244/2022. Og lögðu til breytingu á annarri grein reglugerðarinnar og að orðalag hennar yrði: ,,Með íbúð samkvæmt lögum nr. 111/2016 er átt við fasteign sem er skráð sem íbúðarhúsnæði í fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem og lögbýlisjörð sem þegar er í búrekstri eða ætluð er til búrekstrar. Eigandi íbúðar í skilningi laganna telst einungis sá sem skráður er eigandi í fasteignaskrá.“ Breyting Bændasamtakanna fólst í að bæta inn orðalaginu „sem og lögbýlisjörð sem þegar er í búrekstri eða ætluð er til búrekstrar.“ Staða ungra bænda erfið Þrjá umsagnir bárust og þar af ein frá Bændasamtökum Íslands. Í umsögn samtakanna segir meðal annars: „Staða þess unga fólks sem vill hefja búskap er í mörgu sambærileg við stöðu ungs fólks vegna kaupa á fyrstu íbúð þar sem í báðum tilvikum er um að ræða aðgerðir einstaklinga til að eignast húsaskjól fyrir sig og fjölskyldu sína. Staða þessa hóps hefur verið erfið þar sem kröfur eru gerðar um hátt eiginfjárframlag við kaup á fyrstu bújörð. Þannig er full þörf á því að stjórnvöld gæti þess að ívilnandi aðgerðir sem finna má stoð í lögum nýtist öllum sambærilegum hópum á grundvelli sjónarmiða um jafnræði sem og að slíkar aðgerðir tali beint inn í byggða- og atvinnustefnu út um allt land. Með slíku úrræði er einnig byggt undir að búskap sé viðhaldið á bújörðum með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á fæðuöryggi þjóðarinnar.“ Hilmar Vilberg Gylfason, yfirlögfræðingur Bændasamtaka Íslands, segir að samtökin hafi átt gott samtal við fjármála- og efnahagsráðuneytið í framhaldinu. „Þó ekki hafi verið fallist á breytingartillögu Bændasamtakanna þá hafi ráðuneytið tekið undir röksemdirnar og fengist staðfesting á því að ráðuneytið líti svo á að úrræðin eigi að nýtast ungum bændum eins og öðrum þegar íbúðarhúsnæði er hluti af kaupum á bújörðum. Einnig gaf ráðuneytið vilyrði fyrir því að ef einhverjir vankantar eru á regluverkinu sem koma í veg fyrir að ungir bændur geti nýtt sér úrræðið þá sé það vilji ráðuneytisins að bregðast við því.“ /VH Trékyllisvík á Ströndum. Mynd / Svanlaug Sigurðardóttir Hilmar Vilberg Gylfason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.