Bændablaðið - 12.01.2023, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni
skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf
um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Svo allt
gangi smurt í vetur
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
Allir litir komnir
Vetrardekk fylgja öllum
nýjum bílum á meðan
birgðir endast!
Verð 5.350.000,-
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”.
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
SERES 3
Luxury Rafmagnsbíllinn
býður upp á ríkulegan
staðalbúnað og frágang
í hæsta gæðaflokki!
Á Voðmúlastöðum er Voðmúlastaðakapella, byggð 1946, og grafreitur. Þar
var lengi kirkjusetur en það var lagt niður árið 1912. Lukas hefur tekið að
sér umhirðu lóðarinnar, sem er í eigu þjóðkirkjunnar.
fóðrun mjólkurkúa verði lykilatriðin
í átt að hámarksárangri til framtíðar
í búrekstrinum á Voðmúlastöðum.
Almennt segir hann að lykilatriðið
sé að stilla orkufóðrun í hóf svo
holdstigunarstig sé ákjósanlegt og
líkaminn í jafnvægi, en hann telur
að almennt séu gripir á kúabúum í
of góðum holdum á Íslandi.
„Það er ekki gott, hvernig
sem á það er litið, bæði vegna
hættunnar á sjúkdómum og út
af mjólkurframleiðslunni – ekki
frekar en það er gott fyrir okkur
mannfólkið,“ segir hann.
Jarðrækt á næsta ári
„Svo ætla ég að gera ýmislegt í
jarðræktinni á næsta ári til að ná
markmiðum mínum um aukna
sjálfbærni í búrekstrinum. Ég ætla
að fara í byggrækt og svo einnig
að prófa baunaræktun, reyna að
fá hana til að virka hér. Ég held
það séu talsverðir möguleikar í
slíkri ræktun og hún er einnig
mjög hagkvæm. Það þarf ekki
áburð fyrir hana og baunirnar eru
góður próteingjafi. Ég hugsa ekki
endilega um að framleiða sem
allra mest af mjólk, heldur að gera
framleiðsluna sem hagkvæmasta.
En þetta snýst allt um að finna þetta
fína jafnvægi í öllum þáttunum,“
segir hann.
Lukas er frá Mið-Jótlandi og á
kærustu í Danmörku sem er þar við
nám í félagsráðgjöf. Hann segir að
hún sé sjálf ekki með mikinn áhuga
á kúabúskap eins og er, en ætli að
koma næsta haust á Voðmúlastaði
og þá muni þau fara út í að byggja
upp frekari ferðaþjónustu á bænum.
„Hún hefur áhuga á því að vera
hér í sveitinni og möguleikunum í
ferðaþjónustunni. Við erum núna
með eitt stórt heilsárshús hér sem
þarf að sjá um og svo viljum við
fjölga slíkum húsum upp í kannski
sex. Það hefur gengið mjög vel að
leigja þetta hús út, við höfum verið
með það á Airbnb og haft ágætar
tekjur af því frá lok júlímánaðar.“
Hér sést heilsárshúsið sem er í útleigu á Airbnb, en stefnt er á að fjölga
þeim í sex á næstu misserum.