Bændablaðið - 12.01.2023, Page 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
hitaveitu í Bjálmholti. Þurrkarinn er
ekki alveg fullnýttur en hann á ekki
mikið inni og því þurfum við líklega
að fara í slíkar fjárfestingar fljótlega.
Það eru þó vannýttir þurrkarar til á
einhverjum stöðum.“
Kraftmikið norrænt bygg
Ekki eru gerðar sérstakar kröfur til
sjálfs byggsins hvað þroska varðar
eða fyllingu til framleiðslunnar.
„Það er mjög áhugavert að í
mörgum löndum sem liggja
norðarlega er byggið notað mikið
í viskíframleiðslu,“ segir Haraldur.
„Það er meira að segja eftirsóttara
að fá kraftmikla byggið frá
norðurslóðum, eins og Skotar sem
sækja sér hráefnið til Finnlands og
Svíþjóðar þegar þeirra er á þrotum.
Við ráðum þannig mun betur við að
vinna úr því byggi sem er ekki alveg
fyrsta flokks, en það er ekki eins
auðvelt fyrir bjórframleiðendur. Það
er brösótt að gera góðan íslenskan
bjór úr íslensku byggi.
Það er alls ekki stefnan hjá
okkur að búa til eitthvað staðlað
bragð fyrir vörumerkin okkar, það
er í raun bara spennandi að vinna
alltaf með mismunandi hráefni og
þá er útkoman aldrei alveg eins –
og viðskiptavinirnir kunna að meta
það. Það getur líka verið kostur hjá
okkur þegar við verðum komin með
ræktunarstaðina enn dreifðari að fá
fram mismunandi bragðtegundir sem
taka þá mið af jarðvegi og aðstæðum
á hverjum stað.“
Taðreykt bygg til viskíframleiðslu
„Við höfum notað þá aðferð að
taðreykja hluta af bygginu sem
er þá notað í sérstaka tegund í
okkar framleiðslu. Reykingin
fer fram í þurrkaranum í raun
og veru og er hefð frá Skotlandi.
Aðferðin er upprunalega tilkomin
af nauðþurftum, því að þannig var
hægt að þurrka kornið og um leið
tók það í sig bragð. Þannig er hægt
að reykja byggið með ýmsu en við
tókum þá ákvörðun að vinna með
íslenskt sauðatað,“ segir Haraldur
en lýsir áhyggjum sínum af því að
það sé orðið takmörkuð auðlind á
Íslandi.
„Það eru ekki margir bændur í dag
sem geta skaffað þetta hráefni, en við
höfum verið í föstum viðskiptum
sem hefur dugað okkur til dagsins
í dag.
Þá komum við aftur að því að við
erum að vinna með það verðmæta
vöru að við getum boðið vel í
hráefnið – en það er samkeppni um
það. Þetta getur hins vegar orðið
vandamál á næstu stigum stækkunar.
Stækkun í fjórum þrepum
Til að ná markmiðum sínum þarf
Eimverk að stækka framleiðslu sína
í fjórum þrepum á næstu tíu árum.
„Við erum að horfa á stækkun til
að byrja með á þessu ári upp í 200
tonn – sumsé það mun verða það
byggmagn sem verður bruggað úr. Á
næsta ári verður þetta magn komið í
300–400 tonn, en árið 2025 í um 500
tonn. Þá er planið að taka smá hlé
á meðan viskíið er að eldast og ná
tekjum inn á móti. Svo er næsti fasi
árin 2027 og 2028 og loks verður
síðasta stækkunin árið 2030 þar
sem við leggjum grunninn að því að
umfang kornræktar á okkar vegum
verði komin í 10 þúsund tonna árlega
uppskeru árið 2033,“ segir Haraldur.
Hann telur að þessi framtíðarsýn
ætti að geta hleypt talsverðri bjartsýni
inn í kornræktina – og einnig vonast
hann til þess að bændur gleðjist
yfir því að hægt sé að gera úr þessu
hráefni verðmæti til útflutnings.
„Við erum auðvitað viskínördar
og langar að gera frábært viskí, en
það er svakalega mikið atriði fyrir
okkur að gera þetta á Íslandi með
alíslensku hráefni,“ segir hann.
Íslenskt viskí verði
verndað afurðaheiti
„Eitt af því sem skiptir afskaplega
miklu máli fyrir okkur er að fá
umsókn okkar til Matvælastofnunar
samþykkta, um viðurkenningu á
því að íslenskt viskí verði verndað
afurðaheiti – líkt og íslenska
lopapeysan og íslenska lambakjötið
hafa fengið. Það sem er í raun
forsenda fyrir því að við getum
fjárfest áfram og bændur með okkur,
er að fá þetta afurðaheiti verndað,“
segir Haraldur og er mikið niðri
fyrir.
„Slík viðurkenning myndi skapa
okkur þá sérstöðu sem við þurfum,
þannig að við þyrftum til dæmis ekki
að fara í samkeppni við einhvern
viskíframleiðanda hinum megin á
hnettinum sem dytti í hug að fara að
framleiða „íslenskt viskí“ – án þess
að nokkuð væri íslenskt við það.
Í dag sjáum við vörur standa við
hlið okkar í hillum hér á Íslandi sem
eru merktar „íslenskt viskí“, en það
eina íslenska við þær er að viskíinu
var kannski tappað á flöskur hér á
landi. Umsóknin hefur legið nokkuð
lengi inni hjá Matvælastofnun og við
skiljum ekki hvers vegna ekki er
hægt að afgreiða hana,“ segir hann.
Þjónustumaður
Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri • bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Bústólpi óskar eftir að ráða öflugan aðila í þjónustudeild DeLaval.
Starfssvæðið er suður- og vesturland. Við leitum að starfsmanni sem hefur
brennandi áhuga á að veita góða þjónustu, er lausnamiðaður, úrræðagóður og
hefur áhuga á tækni. Vinna starfsmannsins fer að mestu fram á sveitabæjum og
fylgja starfinu því nokkur ferðalög um landið.
Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2023.
Umsókn um starfið ásamt ferilskrá skal senda til aðstoðarframkvæmdastjóra á netfangið
hanna@bustolpi.is
Bústólpi starfrækir fóðurverksmiðju á Oddeyrartanga á Akureyri ásamt
því að reka verslun með vörur sem tengjast landbúnaði. Bústólpi er
þjónustuaðili DeLaval á Íslandi. Hjá Bústólpa starfa 27 manns. Bústólpi
hefur verið valið framúrskarandi fyrirtæki 12 ár í röð af Creditinfo.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónusta við DeLaval mjaltaþjóna ásamt
öðrum DeLaval tæknibúnaði og þátttöku í
uppsetningum mjaltaþjóna. Starfið er því
afar fjölbreytt og spennandi og býður upp
á góða möguleika á að vaxa í starfi í ört
stækkandi deild.
Hæfniskröfur
• Þjónustulund
• Jákvæðni og hæfni í samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þekking á landbúnaði er kostur
• Iðnmenntun eða reynsla af
sambærilegu starfi er kostur
• Bílpróf er skilyrði
b stolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Þorkell Jónsson er bústjóri yfir kornræktinni í Bjálmholti og faðir Haraldar.
Hér er hann við kornþurrkarann í hlöðunni.
Sigurbjörn Guðmundsson birkireykir byggið í kornþurrkaranum. Hluti
framleiðslunnar er birkireykt en svo er sérstök framleiðsla á taðreyktu viskíi,
en framboð á taði hefur minnkað mjög á undanförnum árum.
„Single Malt“ viskí. Taðreykt viskí.