Bændablaðið - 12.01.2023, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
RAFGEYMAR
Græjurnar þurfa að komast í gang!
Rafgeymar í allar gerðir farartækja
Sendum um land allt
NÝTT: Vefverslun www.skorri.is
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • skorri.is
Engar athafnir né móttaka hópa
verða í dómkirkjunni í Skálholti
fram að páskum en skellt var í lás
í kirkjunni 9. janúar síðastliðinn.
Ástæðan er sú að það er verið
að endurnýja kirkjuna algjörlega
að innan. Þegar framkvæmdum
verður lokið er búið að ljúka því
mikla endurbótastarfi, sem staðið
hefur yfir til undirbúnings fyrir 60
ára afmæli kirkjunnar en því verður
fagnað á Skálholtshátíð dagana
20.–23. júlí í sumar.
„Allt innra byrði kirkjunnar
verður lagfært, múrviðgerðir,
málning, raflagnir, ný hönnun á
lýsingu og öll ljós endurnýjuð,
allar hitalagnir og ofnar og svo
brunavarnarkerfi og hljóðkerfi,“
segir Kristján Björnsson,
vígslubiskup og bætir við:
„Tveir mánuðir í lokun eru
langur tími fyrir eina kirkju en
ekki í kirkjusögunni. Ætli eilífðin
kenni okkur ekki þolinmæði. Ég
hugsa bara um það hvað þetta
verður fallegt og mikil prýði til
næstu áratuga.
Ég er bjartsýnn á að það verði
messufært fyrir páskahátíðina en við
gætum átt eftir að ljúka einhverju
á lengri tíma.“
Kristján segir að framkvæmdirnar
kosti 25 til 30 milljónir króna.
Aðalverktakinn er Múr og mál,
sem tók kirkjuna í gegn að utan
á síðasta ári.
Með þeim eru Súperlagnir á
Selfossi og um raflagnir sér Jens
Pétur og hans fyrirtæki í Laugarási.
„En við fáum málninguna
gefins frá Málningu ehf. Svo
kostar Verndarsjóður kirkjunnar
lýsinguna og stýringu á henni. Allt
leggst á eitt með okkur núna,“ segir
alsæll vígslubiskup í Skálholti.
/MHH
Dómkirkjan í Skálholti, sem verður lokuð fram að páskum vegna mikilla
endurbóta og viðgerða inni í kirkjunni. Myndir / MHH
Bláskógabyggð:
Dómkirkjan í Skálholti
lokuð næstu tvo mánuði
Stuðla á að endurmenntun bænda
með samstarfi Bændasamtaka
Íslands og Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Bændasamtök Íslands og
Fjölbrautaskóli Suðurlands,
Garðyrkjuskólinn á Reykjum
(Endurmenntun Græna geirans)
gerðu fyrir jól með sér samkomulag
um fræðslu á sviði garðyrkju,
umhverfismála og skógræktar.
Í því felst að Endurmenntun
Græna geirans heldur námskeið á
fagsviðum garðyrkju, umhverfis-
mála og skógræktar í samstarfi við
Bændasamtökin og deildir innan
þeirra tengdar græna geiranum.
Markmið fræðslunnar er að stuðla
að sí- og endurmenntun bænda með
námskeiðahaldi og fjölbreyttri
fræðslu, bæði með stökum
námskeiðum og námskeiðsröðum.
Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSu, og Gunnar Þorgeirsson, formaður
BÍ, hittust á Selfossi til að skrifa undir samkomulagið.
Af vettvangi Bændasamtakanna:
Stuðla að endurmenntun bænda
Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup
í Skálholti, er spenntur fyrir
framkvæmdunum í Skálholtskirkju
næstu vikurnar.
Stuðningsgreiðslur
til svína-, alifugla-
og eggjabænda
Matvælaráðuneytið mun á grundvelli tillagna spretthóps um
stuðning við matvælaframleiðslu greiða samtals 450 milljónir
króna til búgreina sem ekki njóta framleiðslustuðnings
samkvæmt búvörusamningum, þ.e. svína- alifugla- og eggja-
framleiðslu.
Stuðningnum er ætlað að mæta auknum kostnaði fram-
leiðenda við fóðuröflun vegna mikilla og ófyrirséðra verð-
hækkana á árinu. Úthlutun til framleiðenda verður á grund-
velli framleiðslu ársins 2022. Munu 225 milljónir króna renna
til framleiðenda svínakjöts, 160 milljónir króna til framleiðenda
alifuglakjöts og 65 milljónir króna til eggjaframleiðenda.
Matvælaráðuneytið mun afla upplýsinga um framleiðslumagn
hjá afurðastöðvum eða Matvælastofnun etir því sem við
á. Óskað er etir umsóknum frá framleiðendum með stuttri
lýsingu á búrekstrinum þar sem fram kemur m.a.:
• Heildarupphæð fóðurkostnaðar sem umsækjandi greiddi
árið 2022. Ef annar aðili en umsækjandi greiddi fóður-
kostnaðinn þarf að gera grein fyrir því.
• Samanburður á heildarframleiðslukostnaði umsækjanda
árin 2021 og 2022.
• Önnur þau atriði sem framleiðendur vilja koma á framfæri.
Umsóknir óskast sendar inn á afurd.is eða í tölvupósti
á mar@mar.is eigi síðar en 20. janúar nk.
Stjórnarráð Íslands
Matvælaráðuneytið