Bændablaðið - 12.01.2023, Qupperneq 42

Bændablaðið - 12.01.2023, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 Í tengslum við þá ráðstefnu, sem sagt verður frá síðar, gafst tækifæri til að heimsækja bændur um miðbik Eng- lands, nálægt Skírisskógi, sem er Íslendingum kunnur sem heimkynni Hróa hattar og einnig höfuðstöðvar British wool í Bradford. British wool Fyrsta heimsóknin var í höfuðstöðvar British wool í Bradford. British wool eru nokkurs konar sölusamtök í eigu um það bil 35.000 breskra bænda. Aðalmarkmið þeirra er að hámarka ullarverð til eigenda sinna og hefur það tekist býsna vel þar sem ullarverð til þeirra bænda sem eru þátttakendur í British wool heldur vel í við nýsjálenskt verð og er umtalsvert hærra en verð til írskra bænda. Írsk ull ætti þó að öllu að vera sambærileg við þá bresku enda búskaparkerfi og búfjárkyn þau sömu milli landanna. Meðalverð hjá British wool er þó nokkru lægra en afurðaverð ullar hér á landi, eða 40 p/kg eða samsvarandi 70 kr./kg ullar. Töluverð breidd er þar í verði til bænda og betra verð hjá British wool sambærilegt afurðaverði hér á landi og það albesta sambærilegt besta verði hér að meðtalinni beingreiðslu fyrir ull. Samtökin sjá um að safna ull á fjölmörgum söfnunarstöðum vítt og breitt um England, Skotland, Wales og Norður-Írland, flytja hana til Bradford þar sem hún er flokkuð og svo boðin upp á 18 uppboðum sem samtökin halda reglulega árið um kring. Bændur sem skila ull til British wool fá greitt einu sinni á ári út frá því verði sem fengist hefur á uppboðum ársins, nema nýliðar sem njóta fyrirframgreiðslukjara sem jafnar ullargreiðslu til þeirra á fyrstu fimm búskaparárunum. Vel þjálfaðir flokkunarmenn í vöruhúsinu sjá um flokkun ullarinnar en flokkað er eftir gerð og fínleika ullarinnar, lit og svo hreinleika og göllum. Nýir starfsmenn í flokkun vinna með reyndum starfsmönnum í þrjú ár áður en þeir geta unnið sjálfstætt við ullarflokkunina, en vanir flokkunarmenn flokka 5 tonn ullar á dag. Reyfin eru í nánast öllum tilfellum sett í flokka í heilum reyfum en tekið er utan af allra verðmætustu reyfunum í ullarþvottastöðinni. British wool aðstoða við auglýsingaefni og votta gæðamerkingar fyrir vörur sem eru að meirihluta úr breskri ull og telja það efla eftirspurn eftir breskri ull sem hækkar verð í uppboðsfyrirkomulagi. Lögð er áhersla á að koma ull í sem flestar og fjölbreyttastar vörur til að koma allri ull í verð óháð gæðum en með áherslu á dýrari vörur, s.s. tweed efni, dýnur og sængur sem skila meiri greiðslugetu viðskiptavina á uppboði. Einnig standa samtökin fyrir grunnnámskeiðum í rúningi og meðferð ullar til að ýta undir gæði vörunnar sem kemur inn. Framkvæmdastjórinn sem tók á móti okkur lagði áherslu á að helstu sóknarfæri í hámörkun ullarverðs lægju í að segja sögu ullarinnar og draga fram breskan uppruna hennar og þá sérstöðu sem hver ullargerð býr yfir. Af þeim sökum var í gangi þróunarverkefni þar sem unnið var að því að tryggja rekjanleika ullarinnar í gegnum flokkunina og með því kerfi er hægt að upplýsa einstaka kaupendur um uppruna ullarinnar alveg niður á bú. Þetta gagnast m.a. í markaðssetningu á sérvöru og nefndi hann tweed efni úr ull frá búum í einum dal sem framleitt er á því sama svæði og gefur rekjanleikinn mikinn virðisauka vörunnar og þar með ullarinnar til frumframleiðandans. Aðaláskorunin sem fram- kvæmdastjórinn nefndi er hins vegar að fá bændur til að sinna ullinni á þann hátt að hún geti orðið verðmæt vara. Það reynist erfitt þar sem stór hluti bænda fær ekki afurðaverð sem nemur kostnaði við rúning. Bentley suffolk ræktunarbúið Matt Harding tók næst á móti okkur en hann rekur ræktunarbú í samstarfi við foreldra sína fyrir þrjú sauðfjárkyn, Suffolk, Aberblack og Aberfield. Búið byggir á gömlum merg en foreldrar og föðurforeldrar Matts ræktuðu einnig Suffolk sauðfé þar á undan honum. Búið er staðsett ekki langt frá Leicester. Matt og faðir hans fóru, upp úr 2000, í samstarf við nýsköpunarfyrirtækið Innovis um ræktun á Aberblack og Aberfield en það eru sauðfjárkyn sem Innovis hefur þróað í samstarfi við öfluga sauðfjárræktendur. Öll þessi kyn eru ræktuð vegna kjötgæða og stærðar en auk þeirra leggur Matt áherslu á auðveldan burð, hreysti lamba og lifun, góða fótstöðu, hreina afturenda sem er stórt atriði þegar dindillinn er langur, góða endingu hrúta, mikinn vöxt lamba á grasi og móðureiginleika. Allir gripir í ræktuninni eru arfhreinir fyrir verndandi arfgerð vegna riðu (ARR/ARR) og ekki markaður fyrir hrúta sem eru það ekki. Tekjur búsins byggja að langmestu leyti á hrútasölu og selja þau frá sér 200-250 veturgamla hrúta á hverju ári og er meðalverð um 125 þús./kr. á hvern hrút. Einnig selja þau gripi sem ekki henta í ræktunarstarfinu til áframhaldandi eldis og slátrunar. Ræktunin er byggð á miklum skráningum og kynbótamatsútreikningum fyrir marga mismunandi eiginleika. Matt fékk nýsköpunarverðlaun sauðfjárbænda 2021. Verð- launin fékk hann fyrir að breyta ræktunaráherslum, búrekstrar- áherslum og sölufyrirkomulagi. Áður snerist ræktun og sala bæði um að selja sýningargripi og einnig hrúta til bænda í kjötframleiðslu og hrútar voru seldir á uppboðum og sýningum. Þá voru eingöngu seldir lambhrútar sem voru fæddir í janúar og aldir á kjarnfóðri sem viðbótarfóðri til að tryggja að þeir næðu sölustærð á stuttum tíma. Fyrir um 20 árum var það orðið ljóst að þeir hrútar sem best komu út á sýningum og uppboðum voru ekki endilega þeir sem hentuðu best til undaneldis á hefðbundnum kjötframleiðslubúum og þá ákváðu þeir feðgar að umbylta kerfinu hjá sér og einbeita sér að sölu til hefðbundinna kjötframleiðslubænda, draga sig út úr uppboðum og sýningarhaldi og selja hrúta beint frá býli byggt á kynbótamati frekar en útliti. Samhliða því færðu þeir sauðburðinn aftur í apríl og maí og láta bera inni til að auðvelda nákvæmari skráningar á eiginleikum sem tengjast sauðburðinum. Þau ala alla gripi á beit allt árið um kring. Ærnar eru heima á fjölærum túnum með háu hlutfalli smára. Miklir möguleikar eru á ýmiss konar grænum greiðslum eða sérstökum umhverfisverndarstuðningi fyrir bændur í Bretlandi og hafa þau nýtt sér greiðslur sem fást fyrir að leyfa smára í túnum að blómstra fyrir býflugurnar áður en féð fer þar á beit. Í blöndu með réttum grastegundum og með réttri beitarstýringu nýtast þau tún líka vel í búrekstrinum þeirra. Lömbin fara hins vegar mörg á beit hjá nágrönnum í grænmetisrækt og annarri jarðyrkju. Þar bíta lömbin afganga eftir uppskeru af grænmeti eða gróður sem notaður er til að loka ökrum í hvíld eða milli uppskerutímabila. Samstarfsverkefni af þessu tagi auka sjálfbærni matarframleiðslu, minnka kolefnisspor og lækka kostnað hjá báðum aðilum. Aðlögunarhæfni er lykill Næst heimsóttum við annan handhafa nýsköpunarverðlauna í hópi sauðfjárbænda, David Eglin. David hefur byggt upp fjölbreytta atvinnustarfsemi á jörð sinni, sömuleiðis í nágrenni Leicester, sem áður var herflugvöllur og þjálfunarsvæði hersins. Áhuginn liggur helst í sauðfjárrækt og hann hafði stundað hana í rúm 60 ár en einnig var hann einn af þeim fyrstu Á FAGLEGUM NÓTUM Á slóðum Hróa hattar: Bændaheimsóknir í Englandi nóvember 2022 – fyrri hluti Í nóvember síðastliðnum sóttu sex ráðunautar RML sauðfjárræktar- ráðstefnu í Bretlandi. Ráðstefnan nefnist Sheep breeders round table, eða Hringborð sauðfjárræktenda, og koma þar saman ráðunautar, dýralæknar, vísindafólk og sauðfjárbændur og fara yfir þau mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Guðfinna Harpa Árnadóttir. Flokkuð ull í British wool. Á fremsta kassanum má sjá merkingar og strikamerki sem notuð eru til að auðkenna flokk og tryggja rekjanleika ullar. Myndir / GHÁ Ræktunarær af Suffolk kyni á búi Matt Harding. Matt Harding segir okkur frá sauð- fjárræktinni sinni. Suffolk og Aberfield hrútar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.