Bændablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
Á FAGLEGUM NÓTUM
Landbótasjóður Land-
græðslunnar hefur verið
starfræktur frá árinu 2003. Eitt
af markmiðum hans er að hvetja
umráðahafa lands til verndar og
endurheimtar vistkerfa (lög nr.
155/2018).
Landgræðslan fjármagnar
sjóðinn en öðrum er það einnig
heimilt. Sjóðurinn hefur frá
upphafi styrkt landbótaverkefni,
um allt land, hjá landeigendum,
félagasamtökum, sveitarfélögum
og öðrum umráðahöfum lands.
Vinnulag
Árlega er auglýst eftir umsóknum
í sjóðinn en við ákvörðun um
styrkveitingu er lögð áhersla á
verkefni sem miða að;
• stöðvun hraðfara jarðvegs-
rofs og gróðureyðingu
• endurheimt gróðurs og
jarðvegs
• sjálfbærri landnýtingu
Innan Landgræðslunnar er
starfrækt verkefnanefnd og
yfirfer hún allar umsóknir sem
berast, metur kostnað við þær
og gerir tillögu að úthlutun
til landgræðslustjóra. Einstök
verkefni geta hlotið styrk til
allt að 5 ára enda fylgi tímasett
landbótaáætlun með umsókn.
Meginreglan er að styrkur
getið numið allt að 2/3 hluta af
reiknuðum heildarkostnaði við
vinnu og kaup á aðföngum.
Að landbótaaðgerðum ársins
loknum þarf styrkþegi að skila
inn upplýsingum um magn
áburðarefna og staðsetningu
aðgerða (GPS staðsett) til að
styrkur sé greiddur.
Aðgerðir eru skráðar í
gagnagrunn sem síðan er skilað
inn í loftslagsbókhald Íslands.
Úthlutanir úr Landbótasjóði
Árið 2022 hlutu 94 verkefni
styrk úr Landbótasjóði að
heildarupphæð 99,3 milljónum
króna, auk fræs sem Landgræðslan
útvegar þar sem þess gerist þörf.
Á mynd 1 má sjá yfirlit yfir styrki
frá árinu 2008–2022. Þar má sjá
að styrkir úr Landbótasjóði hafa
á undanförnum árum hækkað og
var stærsta úthlutun úr sjóðnum
í fyrra.
Frá stofnun sjóðsins hefur hann
styrkt 177 verkefni um land allt
og nemur heildarstyrkupphæð
um 1.060 milljónum króna frá
stofnun hans, á verðlagi ársins
2022. Í þessari tölu er mótframlag
styrkþega ekki talið, en gróft má
áætla að það sé á bilinu 400–800
milljónir á tímabilinu. Samtals
má því áætla að heildarkostnaður
við landbótaverkefni sem
Landbótasjóður hefur komið að
sé á bilinu 1,4 til 1,8 milljarðar
króna. Eru þá ótalin gríðarmörg
verkefni þar sem landeigendur
og aðrir umráðahafar lands hafa
unnið að landbótum án aðkomu
Landbótasjóðs.
Unnið hefur verið að
landbótum á um 72 þúsund
hekturum frá stofnun sjóðsins
þar sem grædd hafa verið upp
rofaborð, moldir og melar svo
fátt eitt sé nefnt. Nýttur hefur
verið tilbúinn og lífrænn áburður
til verksins auk fræs.
Opnað hefur verið fyrir
umsóknir í Landbótasjóð og er
umsóknarfrestur til 22. janúar nk.
Frekari upplýsingar um sjóðinn
sem og umsóknarform er að finna á
heimasíðu Landgræðslunnar land.
is, en einnig veita héraðsfulltrúar
Landgræðslunnar um land allt
upplýsingar um sjóðinn.
Garðar Þorfinnsson.
Landbótasjóður
Landgræðslunnar
Moldir norðan við Bláfell á Biskupstungnaafrétti er eitt af fjölmörgum
svæðum sem grædd hafa verið upp en þar vinnur Landgræðslufélag
Biskupstungna að uppgræðslu með styrk úr Landbótasjóði.
Úthlutaðir styrkir úr Landbótasjóði fyrir árin 2008–2022.
Í lok nóvember síðastliðinn voru
á vegum RML haldnir fundir þar
sem umræðuefnið var áburður og
þættir tengdir honum.
Voru fundirnir
haldnir víða um
landið og var
fundarsókn ágæt.
Rædd voru ýmis
atriði sem hafa
þarf í huga þegar
kemur að vali á
tilbúnum áburði
og þættir sem
hafa áhrif á nýtingu hans, bæði
tilbúins áburðar og lífræns áburðar.
Margir þættir hafa áhrif á hve mikið
þarf að bera á. Ætla má að margir
bændur séu nú, og á komandi
vikum, að huga að áburðarkaupum
og gera áburðaráætlanir fyrir vorið.
Þegar gerðar eru áburðaráætlanir er
gott að hafa í huga nokkur atriði
sem m.a. voru rædd á fundunum.
Mikilvægt er að halda vel
utan um hjálplegar upplýsingar
varðandi áburðarnotkun t.d.
með góðum skráningum í Jörð. Í
þessu sambandi má nefna notkun
tilbúins og lífræns áburðar s.s.
búfjáráburðar, en einnig atriði sem
geta sagt til um árangur svo sem
sláttutíma, magn og gæði uppskeru
svo eitthvað sé nefnt. Áburðarþarfir
má áætla út frá töflugildum sem m.a.
er að finna á heimasíðu RML (undir
ráðgjöf/jarðrækt/áburður).
Nýræktir þurfa meiri áburð enda
eiga þær að gefa meiri uppskeru en
eldri tún þar sem hlutfall sáðgresis
hefur minnkað eða horfið. Í hvaða
gripi heyin eru ætluð og kröfur um
orku og efnainnihald uppskerunnar
getur einnig haft áhrif á ákvörðun
um þarfir fyrir einstök áburðarefni.
Gerð jarðvegs hefur áhrif á
áburðarþörf og í túnum sem fá
samfelda og góða áburðargjöf
Áburðaráætlanir
Í lok nóvember stóð RML fyrir fundum um áburðarmál á tíu stöðum dreift um landið. Mæting á fundina var góð og
umræður góðar um málefni tengd áburði, jarðrækt og fleiru. Myndir / ÞG og EL
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Endurskoðun
sauðfjársamnings
Nú er árið 2023 runnið upp og fram
undan er endurskoðun samnings
um starfsskilyrði sauðfjárræktar.
Væntingar sauðfjárbænda til
endurskoðunar eru talsverðar
og í upphafi samtals bænda og
ríkisins er rétt að rifja upp hver
sé tilgangur búvörulaga.
Í 1. grein
b ú v ö r u l a g a
nr. 99/1993,
með síðari
b r e y t i n g u m
er tilgangur
laganna alveg
skýr og þá er ef
til vill ágætt að
velta fyrir sér
hversu vel hefur
gengið að framfylgja lögunum.
I. kafli. Tilgangur laganna
og orðaskýringar.
1. gr. Tilgangur þessara laga er:
a. að stuðla að framförum og aukinni
hagkvæmni í búvöruframleiðslu og
vinnslu og sölu búvara til hagsbóta
fyrir framleiðendur og neytendur,
b. að framleiðsla búvara til neyslu
og iðnaðar verði í sem nánustu
samræmi við þarfir þjóðarinnar og
tryggi ávallt nægjanlegt vöruframboð
við breytilegar aðstæður í landinu,
c. að nýttir verði sölumöguleikar
fyrir búvörur erlendis eftir því sem
hagkvæmt er talið,
d. að kjör þeirra sem landbúnað
stunda verði í sem nánustu samræmi
við kjör annarra stétta,
e. að innlend aðföng nýtist sem
mest við framleiðslu búvara, bæði
með hliðsjón af framleiðsluöryggi
og atvinnu,
f. að stuðla að jöfnuði á milli
framleiðenda í hverri búgrein hvað
varðar afurðaverð og markað.
Við, sem þekkjum til land-
búnaðarins, sjáum strax að það er
einkum d. liður sem vekur athygli
okkar. Ekki hefur tekist að tryggja
sauðfjárbændum sanngjarna af
komu.Það hefur afkomuvöktun
RML sýnt okkur og skýrslaByggða
stofnunar frá síðasta vori staðfestir
það. Starf bóndans krefst
sérhæfingar, sérþekkingar á mörgum
sviðum framleiðslu og dýravelferðar,
ábyrgðar á framleiðslu matvæla og
margra annarra sérhæfðra þátta.
Við þurfum að horfa til starfa
bænda af virðingu og hlusta eftir
þeirri skýlausu og sanngjörnu
kröfu að sauðfjárbændur hafi tekjur
sambærilegar við aðrar stéttir
sem þurfa að bera sömu og eða
svipaða ábyrgð. Lengi vel var það
vandi sauðfjárbænda að búa ekki
að gögnum eða upplýsingum sem
studdu við kröfur þeirra um bætt
lífskjör. Það hefur þó mikið áunnist
í þeim efnum á síðustu árum og
stöndum við mun betur í dag heldur
en við gerðum fyrir sjö árum.
Til að halda áfram á réttri braut
með það að markmiði að búgreinin nái
árangri og þar með að styrkja okkar
stöðu þurfum við að nýta öll verkfæri
sem til eru í verkfærakistunni. Þess
vegna verðum við að líta til þess að
það er alveg skýrt í búvörulögum
að verðlagsnefnd búvara skuli meta
framleiðslukostnað sauðfjárafurða
fyrir meðalbú:
[Verðlagsnefnd metur fram-
leiðslukostnað sauðfjárafurða
fyrir meðalbú.] Miða skal við
kostnaðarútreikninga er sýni áætlaða
vinnuþörf, fjármagnskostnað,
rekstrargjöld, launakostnað og
afurðir meðalbús sem er rekið við
eðlilegar framleiðsluaðstæður.
Tilgreina skal ársvinnu á sauðfjárbúi
af stærð sem miðað er við og virða
endurgjald fyrir vinnuframlag til
samræmis við kjör þeirra sem vinna
sambærileg störf og hafa svipaða
menntun, sérhæfni og ábyrgð í
starfi á almennum vinnumarkaði.
Mat verðlagsnefndar skal taka til
endurskoðunar innan verðlagsársins
komi fram um það ósk í nefndinni.
Landssamtökum sauðfjárbænda er
heimilt að gefa út viðmiðunarverð
til framleiðenda fyrir einstaka flokka
sauðfjárafurða.
Í ljósi þessa sendu
Bændasamtökin, 20. desember sl.,
beiðni til verðlagsnefndar búvara
þess efnis að meta framleiðslukostnað
sauðfjárafurða og í framhaldinu
eigum við að berjast fyrir því að fá
verðlagsgrunn fyrir sauðfjárafurðir.
Þetta verðum við að hafa með okkur
þegar kemur að því að endurskoða
samninga við ríkið því að markmið
okkar hlýtur að vera að ná tilætluðum
árangri í gegnum búvörusamninga.
Sauðfjárbændur eru reiðubúnir
í samtalið um endurskoðun
sauðfjársamnings á þessum grunni.
Sameiginlega getum við fundið
leiðirnar að bættum kjörum.
Bætt kjör bænda, betri líðan,
betri búrekstur.
Trausti Hjálmarsson,
formaður deildar
sauðfjárbænda.
Trausti
Hjálmarsson.
Eiríkur Loftsson.
LANDGRÆÐSLA