Bændablaðið - 12.01.2023, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
Bændablaðið fékk að prufa nýjan
traktor á dögunum sem Aflvélar
flytja inn. Eins og flestar betri
dráttarvélar á markaðnum í dag,
þá er margt mjög líkt því sem
samkeppnin hefur upp á að bjóða.
Hins vegar eru nokkur atriði –
stór og smá – sem gera þessa vél
mjög áhugaverða. Eintakið í þessum
prufuakstri var útbúið fullkomnum
tölvubúnaði sem ætlaður er til að
auðvelda mikla vinnu og er átt við
allar stillingar í gegnum svokallaðan
Smart Touch snertiskjá. Vélarnar af
N línunni myndu teljast rúmlega
meðalstórar og er hægt að bera þær
saman við Massey Ferguson 6S.
Þegar gengið er aftan að Valtra N,
þá gæti þetta verið hvaða traktor sem
er, enda eru þeir flestir ekkert nema
dekkin, húsið og ámoksturstækin.
Þegar horft er á húddið fer þó ekki á
milli mála að um er að ræða græju frá
finnska dráttarvélaframleiðandanum.
Líkt og hjá flestum tegundum
dráttarvéla, þá er systkinasvipur
Valtra véla mjög sterkur og er ekki
víst að allir sjái strax hvort um er að
ræða vél af G, N eða T línunni.
Sæti fjaðrar í allar áttir
Ökumannshúsið er hinn við-
kunnanlegasti staður. Sætið fer vel
með notandann þar sem það fjaðrar
ekki bara upp og niður, heldur líka
fram og aftur og til beggja hliða.
Þegar setið er í tæki – sem eðli sínu
samkvæmt veltist til og frá – er gott
að geta einangrað skrokkinn frá
mestu höggunum.
Áðurnefnd hliðarhreyfing er ekki
mjög algeng í dráttarvélasætum, en
breytir hins vegar mjög miklu hvað
varðar þægindi.
Traktorinn er notalegur í
akstri, þökk sé áðurnefndu sæti,
ökumannshúsi á loftpúðafjöðrun,
framhásingu á loftpúðum og mikilli
hljóðeinangrun. Hún kemst upp í
57 km hraða, en í þjóðvegaakstri er
vélin afar stöðug og geta farþegi og
ökumaður spjallað í rólegheitunum.
Stiglaus skiptingin gerir alla notkun
yfirvegaða og fyrirsjáanlega. Þegar
vélin er sett í gír gerist ekkert fyrr
en notandinn ýtir á olíugjöfina eða
hraðastýringuna. Í fínvinnu eru engir
rykkir og er kúplingin óþörf nema
fyrir sérvitringa.
Innrarýmið virðist vera vandað
og allt sem notandinn snertir er úr
góðum efnum. Stýrið er leðurklætt
og eru möguleikar á stillingum
miklir. Fljótlegt er að halla stýrinu
að sér eða ýta í burtu til að auka
aðgengi, þar sem nóg er að stíga
á fótstig til að losa festinguna.
Armpúðinn hægra megin er klæddur
dökku rúskinni, en á honum sjást
auðveldlega óhreinindi. Líklegt er þó
að framleiðandinn hafi valið stama
klæðningu, þar sem öll stjórntækin
eru framan við áðurnefndan stólarm.
Takkaflóð og snertiskjár
Við fyrstu sýn virðist takkaflóðið á
stjórnborðinu vera yfirþyrmandi, og
eru eflaust einhverjir sem vilja bara
gömlu vökvastangirnar.
Snertiskjárinn gerir hins
vegar allt mun auðveldara þar
sem hugbúnaðurinn er sérlega
viðmótsþýður. Nýir notendur munu
klárlega þurfa markvissa yfirlegu til
að átta sig á hvernig hlutirnir virka,
en þar sem bæði notendahandbókin
og kerfið eru á íslensku og öll
uppsetningin greinilega mjög
rökrétt, ættu flestir að geta nýtt sér
möguleikana sem boðið er upp á.
Fljótlegt er t.d. að velja mismunandi
virkni fyrir nær alla hnappana og
er auðvelt að forrita aðgerðaraðir í
nokkra takka.
Síðarnefndi eiginleikinn gerir
notandanum til að mynda kleift að
ýta bara á einn hnapp þegar snúa
þarf við í jarðvinnu (eða hverju
sem er) í stað þess að endurtaka
alltaf nokkrar hreyfingar og þurfa
að einbeita sér að gera allt á réttum
tíma og í réttri röð.
Innbyggð vog
Traktorinn í þessum prufuakstri var
útbúinn vog í ámoksturstækjunum
sem tengist við tölvuna. Notandinn
getur því auðveldlega séð hversu
þungt hvert hlass er og tölvan sér
um að leggja þetta allt saman og telja
hversu oft er lyft.
Bændur gætu þá til að mynda
séð hversu þungar rúllurnar eru
og séð meðalþyngd; og verktakar
gætu haldið utan um hversu þungu
hlassi er mokað á hvern bíl. Þegar
kemur að því að senda verkyfirlit
eða reikning er hægt að færa gögnin
yfir í heimilistölvu.
Tölvan býður líka upp á forstilltar
hreyfingar. Með því er hægt að
skilgreina hámarks og lágmarks
hæð ámoksturstækja og skóflu
sem minnkar álagið á notandann í
miklum mokstri. Einnig er hægt að
láta skófluna hristast með því að ýta
á takka.
Tölur
Helstu mál Valtra N175 eru: þyngd
6.500 án ámoksturstækja, hæð 2.960
mm, breidd 3.660 mm, lengd 5.405
mm. Afl vélarinnar er 165 hö og 680
Nm, en með aflauka fer það upp í
201 hö og 800 Nm.
Verð Valtra í N línunni er frá
14.200.000 krónum án vsk., en sú
sem tekin var fyrir að þessu sinni
myndi kosta 22.700.000 krónur án
vsk. miðað við gengi € = 152 ISK.
Í stuttu máli
Þessi vél er vel útbúin og hefur
Valtra orðstír fyrir áreiðanleika og
að virka vel við kaldar aðstæður.
Þrátt fyrir mikinn tölvubúnað
er notkunin afar rökrétt og munu
þeir sem hafa metnað fyrir að læra
á kerfið hafa fjölbreytta möguleika í
höndum sér. Þeir sem vilja ekki nýta
sér kosti rafeindareikna geta notað
þennan traktor eins og hvern annan,
en ættu þó frekar að kaupa ódýrari
týpu með eldri tækni.
Sérstakar þakkir fá bændurnir á
Kotlaugum sem lögðu til dráttar-
vélina í þennan prufuakstur.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Valtra N175 Direct er vandaður traktor frá finnska dráttarvélaframleiðandanum sem hefur getið sér gott orðspor á Íslandi. Hér býður tölvukerfið upp á
mikla möguleika og notkunin er almennt rökrétt. Steingrátt lakkið fer dráttarvélinni vel, en hún fæst í fleiri litum. Myndir / ÁL
Ökumannshúsið er góður staður til að vera á. Sætið dempar vel högg úr
öllum áttum og berst nær enginn utanaðkomandi hávaði inn í húsið.
Útsýnið er gott með þakglugga í beinu framhaldi af framrúðunni. Allar
akstursupplýsingar eru á skjánum við gluggapóstinn, á meðan allri virkni
vélarinnar er stýrt í gegnum snertiskjáinn framan við stjórnborðið.
Smart Touch snertiskjárinn býður upp á ótal möguleika.
– Prufuakstur á Valtra N175 Direct