Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 99
annarra
breytingar þessar leiði ekki til hækkunar söluskatts eða
óbeinna skatta.
2. Að skattlagning fyrirtækja í einkarekstri verði að fullu að-
greind frá skattlagningu eigenda þeirra og þeim síðarnefndu áætlað-
ar lágmarkstekjur til skatts, þótt fyrirtækin sýni reikningslegan balla.
B. Að frádráttarliðir allir verði endurskoðaðir, bæði hjá fyrir-
tækjum og einstaklingum og settar reglur um hámarksfrádrátt vegna
vaxta svo og hvers konar hlunninda. Hámarksfrádráttur vegna vaxta-
útgjalda einstaklinga verði miðaður við skuldaupphæð, er nemi ekki
meiru en % af markaðsverði hóflegrar íbúðar miðað við fjölskyldu-
stærð.
4. Hjón verði hvort um sig sjálfstæðir skattgreiðendur, en van-
nýttur frádráttur til skatts yfirfærist á maka. Starfi bæði utan heim-
ilis, komi til sérstakur útivinnufrádráttur frá tekjum tekjulægri maka.
5. Söluskattur verði lækkaður um þau 2%, sem áður runnu til
viðlagasjóðs. Söluskattur verði afnuminn af fleiri brýnum nauð-
synjavörum en nú er.
6. Fyrningarreglum verði breytt þannig, svo og reglum um sölu-
hagnað, að fyrningar verði miðaðar við eðlilegan endingartíma og
að verðbólgugróði og söluhagnaður verði skattlagður. Reglur um
söluhagnað af einkaíbúð haldist þó óbreyttur.
7. Framtalsfrelsi sparifjár og verðtryggðra skuldabréfa verði af-
numið, þótt skattfrelsi haldist.
8. Skattaeftirlit verði stóraukið, sérstaklega varðandi söluskatts-
skil, og í því efni teknar upp eftirlitsaðferðir, sem góð reynsla er
fengin af með öðrum þjóðum.
9. Viðurlög við hvers konar skattsvikum verði hert og þau afbrot
sett á bekk með öðrum auðgunarafbrotum.
10. Komið verði nú þegar á samtímagreiðslu skatta einstaklinga.
Loku verði skotið fyrir það óréttlæti, að snögg tekjulækkun, svo sem
vegna skertrar starfsorku eða aldurs, komi harkalega niður á þeim,
sem fyrir slíku verða.
95